Vikan - 05.03.1992, Page 14
: ÞÓRDÍS BACHMANN / LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON / FÖRÐUN: KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR MEÐ NO NAME COSMBICS
HVER ER
Hún er opin og einlæg,
talar út frá sjálfstæð-
um skoðunum sínum
og tilfinningum. Hún hefur búiö
utanlands í nokkur ár, fyrst í
Berlín við dansnám á Die
Etage, síðan í New York við
módelstörf. Hún hefur nú fast
starf sem módel verðlista
snyrtivörufyrirtækisins Avon
og fór um árið í hálfs árs
sýningaferðalag um Japan
fyrir Jean Paul Gaultier.
Etta Valeska er lista-
mannsnafn, það gat
enginn stafað Edda rétt
eftir framburði og Guð-
mundsdóttir er alger
tungubrjótur fyrir ensku-
mælandi fólk.
Eftir margra ára ball-
ettnám lagði Edda leið
sína til Berlínar, þar sem
hún dvaldi
næstu
þrjú árin.
„Ég
ætlaði
mér í
kóreó-
grafíu,
sem var
auglýst sem
námsefni við
skólann, en
þegar til kom
var búið að
leggja þá deild
niður,“ segir hún.
Við skólann var
mikið af banda-
rískum kennur-
um og í Berlín
hitti Edda dans-
ara frá Alvin Ail-
ey-dansflokkn-
um. Hann sagði henni
að hún ætti góða mögu-
leika á skólavist hjá Alvin Ail-
ey. Eftir að til New York var
komið aðstoðaði starfsfólk
skólans Eddu við að finna sér
húsnæði og komast inn í þjóð-
félagið. Meðal þeirra sem
stæra sig af því að hafa dans-
að með flokki Alvins Ailey er
stórstjarnan Madonna en hún
reyndi fyrir sér sem dansari
áður en hún ákvað að leggja
heiminn að fótum sér sem
söngkona.
Edda var strax sett í afar
krefjandi danstíma hjá Alvin
Ailey, horaðist niður í 44 kíló
og þjáðist af lystarstoli um
tíma. „Enda fór það svo að
þegar ég lauk Alvin Ailey-
skólanum fékk ég um tíma al-
geran viðbjóð á öllu því sem
viðkom dansi."
DUGUR OG
DJÖRFUNG
Edda hefur verið heppin með
módelverkefni síðan hún byrj-
aði á þeim starfa enda tekur
hún starfið föstum tökum. Hún
kom sér strax upp umboðs-
skrifstofu og fer í allar þær
heimsóknir sem stofan sendir
hana í. „Þetta var mikið basl í
byrjun en ég ákvað að vera
dugleg og fara til allra sem ég
var send til,“ segir hún. Þegar
á staðinn er komið segist hún
gæta sín á því að láta ekki
skoðanir sínar í Ijós, minnast
ekki á að hún sé í sambúð og
hún segir að í raun gangi sér
betur með þvi að þykjast vera
svolítið heimsk. „Það þýðir
ekki að ég láti draga mig út í
einhverja vitleysu en ég læt
ekki mitt álit í Ijós þó mér finn-
ist viðskiptavinurinn vera að
gera eitthvaö heimskulegt.
Samkeppnin er svo mikil og ég
veit að það sem ég hugsan-
lega hefði að segja vekti enga
hrifningu en ef maður reynir að
vera mjög jákvæður í starfi og
gera sitt besta er yfirleitt um að
ræða fleiri bókanir hjá þeim
viðskiptavini. Vitanlega er
klíkugangur þar, rétt eins og
hérna,“ bætir hún við.
NEW YORK, TÓKÝÓ,
REYKJAVÍK
Nú býr Edda í East Village
ásamt Alonzo Ramos, sam-
býlismanni sínum. Alonzo er
fatahönnuður og sýningar
þeirra í Tunglinu og á Ömmu
Lú í janúar vöktu mikla athygli
gesta. Meðal þeirra verslana
sem selja föt Alonzos í
Reykjavík er Plexiglas í Borg-
arkringlunni. í Bandaríkjunum
er markaður fatahönnuða sí-
fellt að þrengjast og í New
York einni eru vígi bæði
Macy’s og Saks Fifth Avenue
að liða undir lok. Samkvæmt
bandarískri viðskiptalöggjöf
þurfa þessar stórverslanir að
staðgreiða alla vöru og því fór
svo að lokum að risarnir rið-
uðu til falls. Alonzo hefur þó
staðið kreppuna af sér hingað
til en hann selur einnig á Jap-
ansmarkað, auk New York og
Reykjavíkur.
Hvernig var svo að ferðast
um Japan með Gaultier?
„í Japan er lítið um útlend-
inga og allra fyrst fannst mér
mjög erfitt að vera þar. Ég fór
upphaflega til að dansa og bjó
rétt fyrir utan Tókýó. Fyrsta
daginn sem ég fór út í búð
störðu allir á mig eins og naut
á nývirki. Börnin bentu á mig
og fólk togaði í hárið á mér og
augnhárin. Japanir hafa svo
lítil augnhár að fólk togaði
jafnvel i augnhárin á mér úti á
götu. Ég fékk mig nú alveg full-
sadda af þessu og var alveg
miður min. Enginn talaði
ensku þar sem ég var að vinna
í upphafi, ég var bara sótt en
vissi aldrei hvert ég var að
14 VIKAN 5. TBL.1992