Vikan - 05.03.1992, Síða 18
MEÐ MAKE-UP FOREVER
Kristín Coch, nemandi Línu
Rutar, fékk að spreyta sig í
förðuninni á þessum
síðum. Kristín vinnur á
Förðunarstofunni Nýtt útlit í Keflavík,
sem er nokkurs konar útibú frá
Förðunarmeistaranum í Borgar-
kringlunni. Hún er enn í námi en hér
sjáum við að hún lofar góðu.
Kristín valdi ferskjulita, blágráa og
gula augnskugga til að skyggja
augun með á litmyndinni en á
svart-hvítu myndinni notar hún gráa,
gula og brúna skugga.
Fyrirsætan heitir Dagbjört Þórey
Ævarsdóttir og vinnur í Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli. Eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum er hún með
sítt hár á annarri en stuttklippt á
hinni. Það þótti sem sagt tilvalið að
gera stakkaskiptin veruleg.
Það er einmitt ósk Línu Rutar að
stúlkur, sem hafa áhuga á allsherjar
breytingu, sem gæti falist í klippingu
og/eða litun, ásamt förðun, og vilja
leyfa lesendum Vikunnar að sjá
stakkaskiptin, láti hana vita bréflega.
Lína Rut rekur Förðunarmeist-
arann í Borgarkringlunni, sem selur
Make-Up Forever snyrtivörurnar og
þangað skulu bréfin send.
18 VIKAN 5.TBL.1992