Vikan - 05.03.1992, Side 32
TEXTI: BORGÞÓR BJARNASON OG MARGRÉT ERLENDSDÓTTIR / LJÓSM.: BRAGI ÞÓR
UTSKUFAÐIR
AF LEIGU-
MARKAÐINUM
Um húsnœðismál stúdenta í Reykjavík
Frá því í haust hefur Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna farið fram á að
námsmenn í leiguhúsnæði staðfesti
leigugreiðslur með skattframtali.
Jafnframt hafa lán til fólks í leigu-
húsnæði verið lækkuð en lán til fólks í foreldra-
húsum hækkuð. Þetta er þáttur i niðurskurði
sjóðsins og frekari aðgerðir í þá átt eru fyrir-
hugaðar. I kjölfar þessara breytinga hefur
skráðu fólki í foreldrahúsum fjölgað verulega.
Þetta hefur einnig haft þau áhrif að íbúðaeig-
endur virðast nú síður vilja leigja stúdentum en
öðrum. Þótt leigutekjur séu skattskyldar tíðk-
ast ekki að gefa þær upp til skatts, að minnsta
kosti ekki nema að hluta. Leigusalar virðast
setja það fyrir sig að þurfa að telja þessar tekj-
ur fram og leita því frekar eftir öðrum leigjend-
um en stúdentum.
„Taldi mig geta ráðið við leiguna en nú
er annað að koma í ljós“
Tuttugu og þriggja ára leigjandi: „Þegar ég
byrjaði í Háskólanum, haustið 1988, bjó ég hjá
bróður mínum og mágkonu í Breiðholtinu.
Leigan var sanngjörn, 9.000 kr. á mánuði og
ekki vísitölubundin, sem var mikill kostur. Þetta
var áður en skerðingarnar frá árunum 1985 og
1986 voru leiðréttar. Ég hafði því ekki mikla
peninga á milli handanna og lág húsaleiga var
nauðsynleg til aö endar næðu saman.
í febrúar 1989 bauðst mér íbúð nálægt Há-
skólanum til leigu. Við erum þrjú sem leigjum
þessa íbúð og upphaflega var leigan 16.500
kr. á mánuði á mann. Ég taldi mig ráða við
þessa leigu því á þessum tíma höfðu :iáms-
lánin verið hækkuð. Ég sló því til. Núna er leig-
an komin upp í 21.000 kr. á mánuði og fer
stöðugt hækkandi. Þetta er orðið mér um
megn og ég verð því að fara að leita að öðru
húsnæði. Það er hins vegar ekki um auðugan
garð að gresja um þessar mundir og líklega
vonlaust hjá mér að taka íbúð á leigu. Það er
einna líklegast að ég verði að leigja stakt her-
bergi en reyndar eru stök herbergi oft á tíðum
mjög hátt verðlögð."
„Afgangurinn af láninu fer í að reka
bílinn, skólabækur, föt, skemmtanir og
aðra neyslu“
Einstaklingur í foreldrahúsum: „Ég bý með
föður mínum og fæ 34.000 kr. á mánuði í lán
Leigusalar virðast setja það
fyrir sig að þurfa að telja fram
húsaleigu þá sem námsmenn
þurfa að greiða og ieita því
frekar eftir öðrum leigjendum.