Vikan - 11.06.1992, Síða 20
TEXTl: JÓHANN GUÐNI REYNISSON LJÓSM.: BINNI
HEIMIR KARLSSON í PERSÓNULEGU VIÐTALI:
Heimir og Rúna eru rétt i þann mund að eignast
fyrsta barnið saman.
- segir hann meðal annars
og kemur víða við
Sæll,“ segir hann augliti til auglitis.
„Heimir heiti ég, Karlsson." Já,
margblessaður, varla þörf á að
kynna sig, svo þekktur maður úr
sjónvarpinu. Hann kynnir sig samt
og segist eiga von á sér. Hressilegur náungi,
maðurinn með augun blá, tær og skær. Stelp-
unum finnst hann svolítið sætur. Líka Rúnu,
kærustunni hans og sambýliskonu. Og hún er
ófrísk, rétt kominn að því að eiga þegar þetta
er ritað.
„Ég ætla rétt að vona að það verði annað-
hvort strákur eða stelpa," segir Heimir þegar
þessari vel þekktu spurningu meðal verðandi
foreldra er velt upp. Hann lætur fara vel um sig
á skrifstofunni sinni á Stuðlahálsinum, liggur
makindalega í stólnum. Fjölskyldumálin eru á
pallborðinu. „Einkamál mín væru ekki einka-
mál ef ég væri að blaðra þeim úti um allt," byrj-
ar hann og allt útlit er fyrir að ekkert fáist upp úr
honum um þetta. En öll él birtir upp um síðir,
segir máltækið og Heimir gefur hér eftir þó-
nokkuð af sjálfum sér. „Það er ekkert launung-
armál að ég bý með konu sem Rúna er kölluð.
Hún heitir reyndar fullu nafni Guðrún Guð-
mundsdóttir og er förðunarmeistari hér á Stöð
2 og víðar reyndar. Við byrjuðum að búa sam-
an í fyrra, völdum Hafnarfjörð til þess og núna
eigum við von á okkar fyrsta barni saman."
BÆÐI FRÁSKILIN
Heimir er fráskilinn og Rúna líka. Sitt í hvoru
lagi eiga þau sitt barnið hvort, stráka bæði.
„Við erum hvorugt með þau börn. Hún á sext-
án ára strák úr fyrra hjónabandi, Guðmund
Magna, og ég á einn fimm ára, Brynjar Árna,“
segir Heimir og við Iftum aftur til bæjarins í
hrauninu, Hafnarfjarðar. Þar keyptu þau Rúna
og Heimir íbúð uppi á holtinu með útsýni yfir
golfvöllinn. „Alveg meiri háttar útsýni, maður,"
áréttar Heimir og inni á milli má greina eitthvað
af golfbakteríunni illskeyttu.
„Ég er alltaf á leiðinni út á völl en hef bara
ekki haft almennilegan tíma til þess, golfið er
svo tímafrekt en ég er alltaf að bíða eftir rétta
tímanum. Settið er heima og ég er reyndar
búinn að prófa það aðeins. Golfið er mjög ögr-
andi gagnvart einstaklingnum vegna þess að
þar getur maður ekki kennt neinum um nema
sjálfum sér ef illa tekst til og það fer í taugarnar
á sumum. Síðan langar Rúnu, veit ég, til að
spila golf og hún er byrjuð að fikra sig áfram í
golfleiknum í tölvunni heima," segir Heimir og
hlær við. „Það er fyrsta skrefið," bætir hann
sposkur við.
Stjórnmál hafa ekki farið varhluta af viðveru
Heimis Karlssonar frekar en svo margt annað
í henni veröld. Hann gerist ærið kíminn þegar
20 VIKAN 12. TBL 1992