Vikan - 11.06.1992, Page 26
Æ
1. Þú hefur verið í löngu og ástríðufullu
sambandi með manni sem þú hefur tengst
sterkum tilfinningaböndum. Skyndilega og
án skýringa slítur hann sambandinu. Þú
ert:
A. Vonsvikin yfir því að maður, sem þú barst
svo sterkar tilfinningar til, hafi reynst vera
ótraustur og tilfinningalaus þorpari.
B. Sár og svikin. Það mun verða bið á því að
þú treystir öðrum manni.
C. Virkilega reið og í mikilli ástarsorg - áköf í
að ná ástum hans aftur og að ná fram
hefndum.
D. Hrygg og finnur til sektarkenndar. Þú veltir
því fyrir þér hvað þú hafir gert til að hrekja
hann I burtu.
2. „Vinkona" þín segir eitthvað við þig sem
þér finnst bæði móðgandi og óréttlátt. Þeg-
ar þú andmælir segir hún að þetta hafi ekki
verið meint sem móðgun og að þú sért
óþarflega hörundsár. Hvernig bregst þú
við?
A. Segir henni að vinskap ykkar sé lokiö og
hættir að hitta hana I einhvern tíma, ef ekki til
frambúðar.
B. Þér er svolítið skemmt yfir því á hversu
barnalegan hátt hún neitar því að hún beri
nokkurn kala til þín.
C. Eftir að hafa grátið I einrúmi yfir þessu órétt-
læti hennar ákveður þú að fyrirgefa henni.
D. Útskýrir vandlega fyrir henni hvers vegna
athugasemd hennar var móðgandi og krefst
þess aö hún biðjist afsökunar.
3. Þú reifst heiftarlega við foreldra þína síð-
ast þegar þú fórst í heimsókn til þeirra. Nú
hafa þau gert erfðaskrá þar sem þú ert
svipt arfi og systir þín fær allt sem þau láta
eftir sig. Þú:
A. Reynir allt sem þú getur til að þau taki þig
aftur í sátt.
B. Skammast þín fyrir foreldra þína sem þér
finnst bæði ómerkilegir og hefnigjarnir.
Ef þetta próf á að geta komið
þér að gagni verður þú að
svara eftirfarandi spurning-
um, sem oft eru ekki eins
einfaldar og þær virðast, af
fullri hreinskilni.
FYRRI HLUTI
26 VIKAN 12. TBL. 1992