Vikan - 11.06.1992, Síða 27
C. Hættir að heimsækja þau um stundarsakir,
í þeirri trú að tíminn muni jafna þetta missætti.
D. Segir þeim (og systur þinni) hversu rotin og
andstyggileg þér finnst þau vera.
4. Það er verið að endurskipuleggja fyrir-
tækið sem þú vinnur hjá og fjölmargir
starfsmenn, að þér meðtalinni, missa vinn-
una vegna þessa. Hvernig bregst þú við?
A. Þú hefur áhyggjur af því að uppsögn þessi
komi til með að líta illa út í augum tilvonandi at-
vinnuveitenda þinna.
B. Þú veltir þvi fyrir þér hvort það hafi veriö þín
sök að þú varst meðal þeirra sem misstu vinn-
una.
C. Þér finnst sem þú hafir ekki verið metin að
verðleikum - þú ert fegin að vera laus úr þess-
ari vinnu.
D. Þú ert fremur niðurdregin en ferð samt á
fullum krafti að leita þér að nýrri vinnu.
5. Þú fréttir að fyrrverandi elskhugi þinn
hafi verið að segja niðrandi lygar um þig.
Þú:
A. Telur víst að hann sé enn gagntekinn af
þér og sé að segja þessar lygar til að fá útrás
fyrir örvæntingu sína.
B. Verður ofsareið og hótar honum öliu illu ef
hann hætti ekki að dreifa þessum lygum.
C. Hringir (alla vini þína og fullvissar þá um að
rógburður þessi sé ósannur.
D. Ákveður að leiða hann og lygar hans hjá þér
enda ekki athyglinnar virði.
6. Þú átt hlutabréf í fyrirtæki sem lendir í
fjárhagsörðugleikum, með þeim afleiðing-
um að þú tapar nokkurri upphæð. Þú ert:
A. Fremur áhyggjulaus. Ef þú ert í þessum við-
skiptum á annaö borð máttu eiga von á því aö
tapa af og til.
B. Vonsvikin og ætlar að leita ráða hjá fjár-
hagsráðgjafa þínum varðandi hverju, ef ein-
hverju, sé hægt að bjarga.
C. Áhyggjufull. Fjárhagslegt tap hefur mikil og
neikvæð áhrif á þig.
D. Örg og harðákveöin í að bæta þetta tap upp
með því að fjárfesta í einhverju öðru.
7. Þú fréttir að vinkona þín ætli að halda
boð. Þú telur víst að hún hafi gleymt að
bjóða þér og spyrð hana hvort þú megir
koma. Hún segir nei - „Þetta er þröngur
hópur fólks sem þú þekkir ekki“. Hvernig
breegst þú við?
A. Þér líður illa yfir þessari lítilsvirðingu og
hættir að hitta hana í einhvern tíma.
B. Þú hefnir þín með því að bjóða henni ekki í
nein af þínum samkvæmum.
C. Þú kemst að þeirri niðurstöðu að hún vilji
áreiöanlega ekki láta þig sjá hversu leiðinlegir
og aulalegir þessir gestir hennar eru.
D. Þú ert dálítið sár en afræður þó að þú hefðir
kannski ekki fallið inn í þennan hóp.
8. Þú ert á leiðinni í frí og flugvélinni, sem
þú ert farþegi í, er rænt af hryðjuverka-
mönnum sem ógna farþegunum með
byssum. Hvernig telur þú að þú myndir
bregst þú við?
A. Láta lítið á þér bera og bíða eftir tækifæri til
að komast undan.
B. Missa gjörsamlega stjórn á þér af hræðslu.
Þú getur haldið ró þinni undir sumum kringum-
stæðum en ekki þessum.
C. Reyna að hefja samræður við hryðjuverka-
mennina, í þeirri von að það muni bæta með-
höndlun þeirra á þér.
D. Verða gjörsamlega dofin og aðgerðalaus -
það er hvort eð er ekkert sem þú getur gert.
9. Þú ert í stóru samkvæmi og gerir þig að
algjöru fífli fyrir framan alla gestina. Hvað
gerir þú eftir á?
A. Forðast alla sem voru viðstaddir þetta kvöld
í langan tíma.
B. Snýrð þessu atviki upp í grín og segir öllum
sem þú þekkir frá því.
C. Útilokar þetta atvik úr huga þínum og lætur
sem það hafi aldrei gerst.
D. Heldur áfram eins og ekkert hafi ískorist,
jafnvel þótt þetfa nagi samvisku þína og sjálfs-
virðingu.
SÍÐARI HLUTI
Lestu eftirfarandi fullyrðing-
ar og svaraðu hverri og einni
með SATT, ÓSATT eða EKKI
VISS.
1. Ég er ekki langrækin.
2. Um leið og ég tek ákvörðun um eitthvað þá
hopa ég ekki frá henni.
3. Mér finnst mjög gaman að kynnast nýju
fólki.
4. Ég kann ekki að fara meö peninga.
5. Ég er ekki með sjálfri mér þegar ég er reið
eða í uppnámi.
6. Ég hef tilhneigingu til að axla mikla ábyrgð.
7. Öruggt og áhyggjulaust líf á ekki við mig.
8. Mér er meinilla við aö tala frammi fyrir
áheyrendum.
9. Ég þarfnast mikils tilfinningalegs stuðnings.
10. Ég kýs helst að hafa fullkomna stjórn á öllu
því sem snertir mig.
11. Það skiptir mig engu þó ég þurfi ööru
hverju að smjaðra fyrir fólki.
12. Ég þarf að vera í einrúmi þegar ég er döpur
og niðurdregin.
13. Mér líkar ekki að vera í fjölmenni.
14. Ég þoli ekki yfirborðskennt fólk.
15. Enginn getur selt mér neitt sem ég vil ekki
kaupa.
16. Stundum finnst mér gaman að hrista upp í
fólki með því að gera eða segja eitthvað
hneykslanlegt.
17. Mér líkar ekki við karlmenn sem eru of gáf-
aðir eða hámenntaðir.
18. Ég þrífst ekki ef það er enginn ákveðinn
maður í lífi mínu.
19. Ég bregst við neyð á rólegan og yfirvegað-
an hátt.
20. Það sést alltaf á mér ef einhver hefur særl
tilfinningar mínar.
STIGAGJÖF
Gefðu þér stig samkvæmt töflunum hér fyrii
neðan.
FYRRI HLUTI
A B C D
1. 10 6 0 4
2. 0 10 4 6
3. 4 10 6 0
4. 0 4 10 6
5. 10 0 4 6
6. 10 6 4 0
7. 4 0 10 6
8. 10 0 6 4
9. 4 10 0 6
SEINNI HLUTI SATT ÓSATT EKKI VISS
1. 2 0 1
2. 0 2 1
3. 2 0 1
4. 0 2 1
5. 2 0 1
6. 0 2 1
7. 2 0 1
8. 0 2 1
9. 2 0 1
10. 0 2 1
11. 2 0 1
12. 0 2 1
13. 2 0 1
14. 0 2 1
15. 2 0 1
16. 0 2 1
17. 2 0 1
18. 0 2 1
19. 2 0 1
20. 0 2 1 SJÁ NIÐURSTÖÐUR Á BLS. 6:
12. TBL. 1992 VIKAN 27