Vikan


Vikan - 11.06.1992, Síða 37

Vikan - 11.06.1992, Síða 37
skípela og stórum bauk af svefntöflum ... Þannig útbúinn innan klæða mætti ég Dísu í stigaganginum. Ég tók ekkert eftir svipnum á henni enda átti ég nóg með mitt. „Þarf adeins að skreppa út, Dísa mín,“ tuldraði ég og ætlaði að smeygja mér fram hjá. Hún játaöi síðar að sig hefði strax grunað fyrirætlun mlna. Dísa les fólk eins og opna bók enda sagði hún óvenju röggsöm: „Þú ferð ekki neitt fyrr en þú ert búinn að heyra fréttirnar. Komdu - ég er ekki aö básúna þetta út um allar jarðir." Hún ýtti mér á undan sér inn í íbúðina og lokaði á eftir okkur. „Við unnum tólf milljónir." Þetta sagði konan mín blákalt. „Unnum? í hverju? Við spilum ekki í neinu." „Jú, ég. Það er að segja um daginn. Ég fékk eins konar... visbendingu og lét mig hafa það að fylla út lottómiða í fyrradag. Ég sá tölu- rnar í blaðinu í morgun. Við fengum sex réttar. Ég hringdi í lottóið rétt áður en ég fór úr vinn- unni. Við erum alein með þrefaldan pott.“ Það fyrsta sem ég hugsaði um var pillubauk- urinn, hvernig ég færi að því að lauma honum inn í lyfjaskápinn aftur svo lítið bæri á. Kannski kæmust hrafn og tófa af án mín eftir allt saman. Þegar ég hengdi upp frakkann á prestinn spurði ég spúsu mína mjúkum rómi: „Og hvernig fórstu að því að rata á vinnings- tölurnar, Dísa mín?“ Hún dró upp úr pússi sínu skærrauðan pappírsmiða sem ég hafði ekki augum litið árum saman. „Þetta lá undir lyklaborðinu á tölvunni þinni. Það var annars ótrúlega mikið ryk þarna." Ég leit á miðann. Þar stóð stutt talnaruna og orðið ENTER??? undirstrikað með mörgum spurningarmerkjum. „En vísbendingin, Dísa mín? Þú fékkst vís- bendingu, sagðirðu." „Það var mjög einkennilegt. Það lá þarna diskill sem þú virðist hafa gleymt í fleiri ár. Frá því er þú mölvaðir tölvuskjáinn." Nú tók að rofa til í minningunni. Það setti aö mér vott af ónotakennd. „Og?“ „Jæja, ég varð forvitin og fór með hann í vinnuna. Þú veizt, þeir eru með samskonar tölvur og þína. Ég stakk honum í eitt drifið og • • ■“ „Ertu galin? Það er veira á disknum!" „Hvernig átti ég að vita það? Jújú, það birtist þarna skrautlegur púki með hófa og hala og til- heyrandi. Það var voða fyndið. Svo fór hann að grátbæna mig um aö ýta á „enter“. Ég tók andköf - hafði gleymt að draga and- ann I hálfa mínútu. Dísa.......ég vona að þú hafir ekki...“ Hún konan mín hélt óhögguð áfram: „Það var náttúrlega ekki um annað aö ræða en aö prófa það. Svo ég ýtti á „enter“. Þá kom vísbendingin." Ég var eitt stórt spurningarmerki. Dísa brosti. „Skjárinn nánast sprakk. Það var ótrúlegt litabað - alveg eins og flugeldasýning. Flenni- feitir stafir flössuðu upp i sífellu: „SLOPPINN! SLOPPINN!" Einhver varð greinilega mjög glaður." „Skeði ekkert rneira?" „Jújú. Svo kom „ein ósk?“ Hugsaðu þér: kvikindið var barmafullt af þakklæti. Það mátti svosem láta á það reyna. Mér fannst ég eiga það inni. Svo ég skrifaði: „Gerðu mig ríka.“ Og hvað heldurðu þá að skrattakornið hafi sagt?“ „Pass. Þó ég fengi hálftima umhugsunar- frest." „Reyndu þessar tölur“ - og birti nákvæm- lega sömu tölur og á pappírsmiðanum. Síðan slokknaði á öllu. Nú, ég hugleiddi málið: hvar er hægt að reyna tölur? Þá datt mér í hug lottóið. Þarna hefurðu það. Jæja, elskan, komdu og kysstu mig. Við erum rík!“ Ég kyssti konu mina og tók upp símann. „Hvað ætlarðu að hringja núna?“ „Panta nýjan tölvuskjá. Ég var að fá hug- mynd að sögu.“ 12. TBL.1992 VIKAN 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.