Vikan


Vikan - 11.06.1992, Qupperneq 44

Vikan - 11.06.1992, Qupperneq 44
hafa bulio á hljóðhimnum þeirra og nethimnum svo vik- um skiptir. Þorri íbúa fylkisins er búinn að sjá þetta illræmda myndband - af fjórum hvítum lögregluþjónum að berja blökkumanninn Rodney King til óbóta - svo oft að þeir skipta sjálfkrafa um sjónvarps- rás í hvert sinn sem það birtist á skjánum. Leit er að einhverj- um sem telur að sýkna komi til greina. Nær undantekninga- laust hafa menn lýst viðbjóði sínum á aðgerðum lögreglu- mannanna og bíða eingöngu eftir að heyra hversu harðan dóm sökudólgarnir muni hljóta af hendi kviðdóms og dómara. Þó er því ekki að leyna að þeir sem hafa fylgst grannt með þessum réttarhöldum hafa undrast ýmislegt sem fyr- ir augu og eyru hefur borið. I kviðdómnum ertil dæmis eng- inn svertingi. Réttarhöldin eru haldin í útkjálkahverfi, svo- kölluðum Simidal, sem fæstir höfðu heyrt nefndan áður en réttarhöldin hófust. Eftir því sem sjónvarpsáhorfendur hafa kynnst betur íbúum þessa dalverpis hefur ýmislegt áhugavert komið á daginn, svo sem eins og það að þar býr hátt hlutfall af fyrrverandi lögregluþjónum á eftirlaunum. Þá er ekki laust við að manni hafi fundist saksóknari fylkis- ins halda slælega á sókninni sem virðist einkum hafa byggst á því að sýna þetta sögulega myndband nógu oft i ▲ Lög- reglustjór- inn er talinn eiga nokkra sök á þvi hvernig komið er. Hann hefur sýnt hör- undsdökku fólki algjöra lítilsvirð- ingu. réttarsalnum. Engu að síður eru þetta lítið annað en hefð- bundnar aðfinnslur hinna óþreyjufullu sem bíða þess eins að réttlætinu verið full- nægt áður en sumarfrí og strandferðir hefjast fyrir alvöru. Nokkrum klukkutímum síð- ar heyrir maður úrskurðinn. Lögreglumennirnir fjórir hafa verið sýknaðir. Maður þarf ekki að vera svertingi til að leggja það frá sér sem haft var fyrir stafni, hvað sem það er, og gefa sér tíma til að huga að eigin geðheilsu. Hef ég eitt- hvað misskilið þetta allt? Er þetta eitthvert hrekkjabragð sem brellumeistarar Holly- wood hafa soðið saman eina ferðina enn? Hefur Rannsókn- arréttur miðalda verið endur- vakinn? BORGIN BRENNUR Þvílíkur úrskurður! Á einni svipstundu breytast fordómar í hatur og hatur í ofbeldi. Svartir sem hvítir sem gulir æða út á göturnar og lýsa fyrirlitningu sinni á úrskurðinum. Enn einu sinni hefur kerfið neytt þá hóf- sömu til að viðurkenna fullyrö- ingar hinna öfgafyllstu: Það er ekkert réttlæti til. Eins og alltaf þegar einhver þjóðfélagshóp- ur hættir að trúa því eitt andar- tak að sanngirnin eigi upp á pallborðið brýst út ofbeldi. Eftir þetta gerast hlutirnir hratt. Lömuð lögregla, sem veit upp á sig sökina og MIÐVIKUDAGURINN 29. APRÍL íbúar Los Angeles búa sig undir daginn sem við fyrstu sýn lítur út fyrir aö verða sól- ríkur og bjartur, ósköp venju- legur dagur. Þeir sem fylgjast með fréttum þennan morgun sjá að úrskurður í svonefndu „Rodney King“ máli er vænt- anlegur á hverri stundu. Enda þótt fjölmiðlum finnist slíkt tíð- indi eru flestir orðnir leiðir á þessum réttarhöldum sem Um allan heim má finna gnægð lýðskrumara sem telja sig hafa ráð undir rifi hverju til að leysa kynþáttavandamál Ameríkana. Nær undantekn- ingalaust eru ráð þessara kaffihúsaspekinga einskis nýt þegar á hólminn er komið. Þegar betur er að gáð eru þessi vandamál svo marg- slungin og rótgróin að furðu sætir að ástandið skuli ekki vera verra en það er. Fyrir það fyrsta eiga þessi átök sér ræt- ur í mannránsferðum þræla- haldaranna sem fluttu negr- ana svo hundruðum þúsunda skipti í járnum frá heima- byggðum sínum í Afríku til hins nýja heims. Því miður verða þau blóðugu öfugspor ekki aftur tekin. Þau eru og verða órjúfanlegur hluti af menningararfi Ameríkana og eins og máltækið segir „lengi býr að fyrstu gerð“. skömmina, koðnar niður frammi fyrir réttlátri reiði fjöld- ans og bætir þar með gráu ofan á svart. Áður en varir eru ofbeldismenn teknir að lim- lesta saklaust fólk, hús venju- legra borgara, sem engan hlut eiga að máli, fuðra upp eins og eldspýtustokkar. Ruplarar og ránsmenn eru farnir að brjóta rúður og herskarar hnuplara mættir á vettvang með trukka og sendibíla til að fylla hvert autt pláss af varningi. Múgur- inn hefur völdin. En hvers vegna? spyr fólk sig i hvívetna. Hvers vegna þetta bil milli svartra og hvítra? Hvers vegna rán, mannslát, brunarústir, mannfyrirlitning, ofbeldi og eyðilegging? „Þetta er spurning um að vera mann- eskja ekki ófreskja," segir það og lokar hjá sér dyrunum og bíður... meðan útgöngu- bannið rennur sitt skeið á enda. ÓVINSÆLL LÖGREGLUSTJÓRI Lögreglustjóri Los Angeles, Daryll F. Gates, getur vart haft góða samvisku þegar hann kveður embætti sitt nú í júní. Meiri hroki er vandfundinn í einni mannssál nema á hvíta tjaldinu. Þessi sérkennilegi lögreglustjóri á mikla sök á því hvernig komið er. Hann hefur farið sínar eigin leiðir í algjörri lítilsviröingu á hörundsdökku fólki. í nýútkominni bók hefur hann sjálfan sig til skýjanna á kostnað flestra annarra og er ómyrkur í aðfinnslum um afrek margra ágætra manna og kvenna sem lagt hafa mann- réttindabaráttu blökkumanna lið. Sumir ganga svo langt að halda því fram að hann sé sjálfur meginorsök óeirðanna enda hafi öll hans vinnubrögð I gegnum árin sannað og sýnt að þar var ekki mannúð höfð að leiðarljósi heldur aðrar og ómerkari viðmiðanir. Einkum og sér í lagi hefur hann látið fá tækifæri ónotuð til þess að egna litað fólk hvenær sem hann hefur því við komið. Er nú svo komið að í þann mund sem dagar hans i embætti eru taldir líta jafnt svertingjar sem kynblendingar sem spánsk- ættaðir á hann sem tákn um fordóma þeirrar kynslóðar sem nú er aö fara frá völdum. Er raunar með ólíkindum að hinir fremur seinþreyttu til vandræða og hógværu Kali- forníubúar skyldu umbera Darryll F. Gates jafnlengi og raun ber vitni. 44 VIKAN 12. TBL. 1992
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.