Vikan - 11.06.1992, Qupperneq 63
PERSONULEIKAPROF -
NIÐURSTAÐA
Frh. af bls. 27
95 STIG EÐA MEIRA
Þú vekur oft aödáun fólks meö hæfni þinni til
aö sýna þrautseigju og jafnaöargeö viö hinar
erfiöustu kringumstæöur. Þrátt fyrir aö þaö
megi vera aö þú sért á yfirborðinu sterk og
hugrökk ertu undir niðri ekki þrautseig, þar
sem þú öðlast þessa stillingu meö því aö bæla
niöur tilfinningar þínar. Þú byggir upp ákveöið
„ Ég ræö við þetta allt“ viðhorf og hefur tilhneig-
ingu til aö bregðast viö erfiðum kringumstæö-
um á vitsmunalegan frekar en tilfinningalegan
hátt. Með þessu ert þú raunverulega að
blekkja sjálfa þig meira en þá sem þú
umgengst. Reyndu því að gefa tilfinningum
þínum lausari taum, neikvæöum sem og já-
kvæðum, jafnvel þótt þaö raski ööru hverju
sjálfsímynd þinni og rósemi.
70 - 94 STIG
Þú ert svo sannarlega þrautseig persóna. Þú
ert álíka næm fyrir tilfinningalegum sársauka
og missi og flestir aörir en lætur þessar tilfinn-
ingar þó aldrei ná tökum á þér. Þú leyfir þér að
finna til depurðar um stundarsakir og hverfur
svo aftur til bjartari viðhorfa. Ástæöan fyrir því
aö sársauki dvelur aldrei lengi í huga þínum er
sú aö þú ert raunsæ persóna, laus við bæði
óraunhæfa hugaróra og látalæti og sérö alltaf
einhvern tilgang meö lífinu. Hæfni þín til aö
veita tilfinningum þinum útrás og beina þeim
inn á réttar brautir stuðlar að varanlegu and-
legu jafnvægi og jákvæöu lífsviðhorfi.
41 - 69 STIG
Þú hefur ákveöna þrautseigju til að bera, þrátt
fyrir aö geta þín til aö standast áföll sé fremur
takmörkuö. Þú ert fær um aö yfirstíga minni
háttar mótlæti og áföll í lífinu en þau stóru og
þungbæru eru þér oft ofviða og geta skilið eftir
sig sár sem gróa seint. Áhættusamt og
ævintýralegt líferni hæfir þér ekki, hins vegar
þrífst þú vel við friðsælar og öruggar aöstæö-
ur. Líkur eru á því aö þú myndir ekki nýta þér
þau tækifæri sem gætu falið í sér einhverjar
umbætur en um leið áhættu eða missi. Þessi
afstaða þín gæti hindraö þig í að ná mjög langt
í lífinu en tryggir þér þó líf sem er að jafnaöi
áhyggjulítið og öruggt.
0-40 STIG
Þú ert fær um aö takast á við óhöpp og áföll
vina þinna á mjög vitsmunalegan hátt en finnst
hreinlega sem himinn og jörö séu aö farast ef
eitthvað slæmt hendir þig sjálfa. Þú átt erfitt
meö aö horfast í augu viö eigin gjöröir og mis-
tök og ef eitthvað í lífi þínu fer miður telur þú
sökina sjaldnast þína. Það sem einkennir þig
er ósveiganleiki eöa þrjóska fremur en þraut-
seigja. Vandi þinn gæti átt sér djúpar rætur í
langvarandi vanmáttarkennd og vöntun á
sjálfsöryggi. Sem mótvægi hefur þú áunnið þér
nokkurs konar brynju yfirlætis og falsks sjálfs-
öryggis, sem gerir þaö eitt að verkum aö þú átt
erfiðara meö aö takast á viö persónuleg
vandamál þín og annmarka. Reyndu því aö
temja þér svolitla hógværö og sveigjanleika og
haföu f huga aö það er mannlegt aö gera
mistök, auk þess sem enginn krefst þess af
þér aö þú sért fullkomin.
/ 5AJAR HEhTu/t KiNb 1% MyA/A/r KVAO hljóð- Ffi-Ki RsiÐi- HljpÐ ftiiL.Lt- 'ATT ÓOL- GcuÐ / KÚST tímH- /3'L
ðCA ? 1
H'atíö M'jw T öa/ht > » \ / > >
FÉLfí-Cr DMKtC > v V > \/ 6cfíT Z \ J
LÍJUKA
/ HESTuft K'AK PRiK V > > V >
“Of /'/" z EiMS STÉTT riTÍL íboKSTOF i / >
MfíLty V /VI ATftR,- tlEiSLfí líst
Fhf\S M&K SfíuK \o ' ’ ( > 5“ 3
/ z 3 V r ? 'OTTtST KiAJÖ
Lausnarorð í síðasta blaði 1-12: RAUSNARLEGUR
12. TBL. 1992 VIKAN 63