Vikan - 11.06.1992, Qupperneq 66
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR
Tanita Tikaram hefur snúið baki
við vinsældapoppinu.
TANITA TIKARAM:
ELEVEN KINDS OF
LONELINESS
EINMANALEIKI
Tanita sló í gegn svo um mun-
aði meö plötu sinni Ancient
Heart sem kom út 1989. Síðan
hefur henni ekki tekist að ná
sömu vinsældum aftur en
engu að síður gefið út plötu á
hverju ári. Fjórða platan
hennar, sem kom út fyrir
skömmu, heitir Eleven Kinds
of Loneliness eða Ellefu teg-
undir einmanaleika. Óhætt er
að segja að þetta sé þyngsta
og tormeltasta platan hennar
til þessa. Textarnir eru margir
nokkuð svartsýnir og við þá
leika Tanita og félagar hennar
ekki neina léttlyndislagstúfa.
Tanita hefur einfaldlega
þessa stefnu, hefur sem sé
snúið baki við vinsældapopp-
inu. Þetta finnst undirrituðum
furðulegt því stúlkan virtist
hafa mikla hæfileika til að
semja skemmtilega popptón-
list. Á nýjustu plötunni er hún
hins vegar komin nálægt hin-
um endanum, þó að tónlistin
sé ekki beint leiðinleg. Hún er
vel flutt og söngur Tanitu
stendur enn fyrir sínu, svo
sem i lögunum Trouble, Hot
Stones og Love Don’t Need
No Tyrrany, sem er léttasta
lagið á plötunni, og Men and
Women, fallegasta lagi plöt-
unnar. Tanita semur allt efni
sitt sjálf og vonandi léttist yfir-
bragðið á næstu plötu. Sú
kemur væntanlega út á næsta
ári ef miðað er við það sem á
undan er gengið.
STJÖRNUGJÖF: ★★★
S2
O'
MADNESS:
DIVINE MADNESS
GUÐDÓMLEG GEGGJUN
Tuttugu og einn smellur á sex
árum, öll lögin fóru ofar en í
tuttugasta sæti, geggjuð
myndbönd, fyrstu þrjár plöt-
urnar voru samtals 150 vikur á
vinsældalistum. Saga hljóm-
sveitarinnar er saga velgengni
og vinsælda. Bresku grínist-
arnir í hljómsveitinni Madness
- gjörið svo vel!
Alls eru 22 lög á safndiskn-
um Divine Madness, í þessum
einstaka Madness-stíl sem er
svokölluð ska-tónlist. Hrein
reggí-áhrif og poppáhrif (eink-
um hin síðari ár á ferli
Madness) láta líka á sér
kræla, svo sem í lögunum
Grey Day, It Must Be Love,
Our House og Michael Caine.
Önnur lög, sem mætti nefna af
Divine Madness, eru Night
Boat to Cairo, One Step
Beyond, Driving in My Car og
House of Fun.
f rauninni eru orð óþörf um
þessa plötu, hún skýrir sig al-
gerlega sjálf. Hin guðlega
geggjun er skylduhlustun fyrir
alla, konur og kalla, léttir lund
og bætir meltinguna. Kauptu
hana og þaö strax!
STJÖRNUGJÖF: ★★★★★
<D
>
&
o
▼ Mad-
ness var án
efa vin-
sælasta
hljómsveit
Bretlands á
árunum
1979-1985.
HUGARORAR HALLGERÐAR
MJALLHVITI
NAUÐGAÐ
Glæta. Eins og það sé í
j lagi að fela fyrir öllum
að það hafa fæðst
hér í Hrafnanesinu frekar Ijótir
púðluhvolpar. Málið er að
mamma er í geðsýkiskasti
vegna þess að Mjallhvít, þessi
ofdekraða geðvonda púðlutík,
eignaðist mjög flippaða hvolpa
fyrir viku. Það má segja að það
eins og vanti yfirbragð rétta
kynsins á þessi afstyrmi þann-
ig að þegar horft er á þá dettur
manni í hug að eitthvað mikið
hafi gleymst í samsetningunni.
Til dæmis eru fæturnir eins og
sæmilega stórir blýantar en
höfuðið á stærð við gamla
körfuboltann minn.
Pabbi er alveg með það á
tæru að Ijótur labradorhundur
hafi nauðgað Mjallhvíti og
þessi skaði verði aldrei bættur.
Það sést svo innilega hvað
þau eru flóttaleg þegar einhver
spyr um hvolpana. Þau fela þá
í kjallaranum og maður veit
svo meiri háttar vel að þau
ætla að reyna að losna við þá
á ósmekklegan hátt. Það sjá
allir. Þetta er svo lúmskt lið.
Ég er þess vegna búin að
plotta rosalega gott mál. Ég
talaði bara við Tótu frænku og
bað hana að redda góðum
heimilum fyrir þá. Fólk fær ekki
þúðluhunda af Hrafnanesinu á
hverjum degi svona má segja
næstum ókeypis. Rosalega
verður annars gott að fá
hundraðþúsundkallinn til að
komast loksins í sæmilega
gott dress og eitt og annað
smá. Eins og til dæmis vantar
mig svo innilega ný tæki og
sennilega verð ég að splæsa í
skó líka. Það sjá allir að maður
verður svo pirraður á að hafa
ekki nema rétt fimmtán pör til
skiptanna.
Það fattar enginn þetta með
höfuðin og fæturna enda má
fólk bara vera alsælt með aö
tengjast Hrafnanesinu svona
rosalega í gegnum púðlubibb-
urnar. Tóta, þessi herfa, pælið
í því, heimtaði frekjulega sölu-
laun. Sumt fólk er ótrúlega
frekt. Eins og hún megi ekki
vera ánægð að vita að hún er
að bjarga fimm hvolpum frá
munaðarleysi. Vonandi selur
hún gengið nokkuð snögg-
lega.
Baddi bróðir, þessi ástsjúki
njálgur, er enn þá einu sinni í
svelti út af gellu sem hann var
búinn að planta sér á en hann
segir að hún sé búin að svíkja
sig. Mamma má ekkert vera
að því að hugsa um mig
vegna þess að Baddi er gjör-
samlega móðursjúkur og hótar
að ganga í sjóinn ef pían birt-
ist ekki á svæðinu fyrir tólf í
kvöld. Þoli ég svona pempíur?
Nei, og þá meina ég no!
Ég næ engri athygli. Það
elskar mig örugglega enginn,
enda er ég rólega aö deyja.
Eiginlega má segja að ég sé
dáin.
Við skulum bara athuga það
að þegar ég ráðlagði Jóu vin-
konu, þegar hana vantaði í
hvelli sæmilega stóra summu
til að kaupa tölvu, að tína bara
allar rósir í garðinum upp og
selja þær hérna I Hrafnanes-
inu, þá small allt saman. Það
keyptu allir strákarnir á Nesinu
rós af henni og þar með var
búið að bjarga geðheilsunni
þann daginn og enginn gutti á
kafi í uppvaski eða öðru
þrælahaldi. Jóa á vasapening
út árið og enga öfund. Von-
andi verð ég uppgötvuð fljót-
lega. □
66 VIKAN 12. TBl. 1992