Vikan


Vikan - 11.06.1992, Síða 67

Vikan - 11.06.1992, Síða 67
 MEÐ KAFFINU GÓMSÆTIR EPLARÉTTIR EPLAGRATÍN Epli eru góö ein og sér, en hvernig væri nú aö prófa að elda þau á nokkra mismun- andi vegu? Uppskriftirnar hér á eftir eru allar góðar en þaö tekur dálítinn tíma að búa sumar þeirra til. FRÖNSK LÚXUS EPLATERTA ▼ Úrepl- um má gera gómsætar tertur sem eftirrétti. Deig: 200 grömm hveiti 150 grömm smjör 50 grömm sykur 2-3 msk. rjómi Fylling: 1 kg gul epli 150 grömm sykur 4-5 msk. hunang 1 hálfdós niðursoönar aprík- ósur eða ferskjur. Hnoðað deig, geymt í kæli- skáp í minnst hálfa klst. Breið- ið deigið þunnt út, klæðið smurt tertuform með deiginu, pikkið botninn með gaffli svo að hann blási ekki upp þegar bakað er. Bakið botninn við 175 gráða hita í 15 mín. Afhýðið eplin og skerið í báta, sjóðið helminginn af þeim í mauk ásamt sykrinum (100 grömm). Geymið restina af eplunum í skál með köldu vatni. Eplamaukið er sett neðst á bakaðan botninn, látið renna vel vatnið af eplabátun- um og raðið þeim fallega yfir, stráið afganginum af sykrinum yfir (50 grömm). Smyrjið eplin með hunangi, ef hunangið er of stíft þá má hita það þar til það nær æskilegri þykkt. Kak- an er sett aftur inn í ofninn og fullbökuð við 175 gráða hita í ca 20 mín. Á meðan skuluð þið merja apríkósurnar gegn- um sigti, þar til þær verða að mauki. Smyrjið tertuna með maukinu meðan hún er heit. Berið fram volgt með þeyttum rjóma. 6-7 epli sulta og sykur eftir smekk Deig: 50 grömm smjör(líki) 1 dl hveiti eða 50 grömm 2tedl mjólk 3 egg 2 msk. sykur Afhýðið eplin og fjarlægið kjarnann. Ekki skera eplin sundur. Fyllið þau með sultu og setjið þau á botninn á suffleformi. Stráið sykri yfir. Bræðið smjörlíkið og hrærið hveiti saman við það. Hitið mjólkina að suðu og hellið henni saman við hveitimass- ann. Látið þessa hræru hitna í gegn, passið að brenni ekki við. Takið pottinn af hellunni og hrærið eggjarauðum, einni í einu, saman við og síðan sykrinum. Stífþeytið eggja- hvíturnar, hrærið fyrst Vs af þeim saman við deigið og síð- an afganginum varlega. Hellið þessu yfir eplin og bakið við 175 gráður í 45 mín. Berið fram strax. EPLARJÓMI Fyrir fjóra: Bræðið 200 grömm af suðu- súkkulaði og látið það kólna aðeins. Stífþeytið 2V2 dl af rjóma. Blandið fjórum gróft rifnum eplum saman við og síðan súkkulaðinu. Það gerir ekkert til þótt súkkulaðið lendi í kekki (það á að gera það). Hellið þessu í desertglös og dreifið smátt skornum hnetum ofan á. EPLAPÆ FRÁ BRETLANDI Deig: 150 grömm smjör 200 grömm hveiti 3 msk. sykur 1 lítið egg Hnoðað deig, geymt f kæli í 1 klst. Þá er það breitt þunnt út og % hlutar deigsins settir f stórt smurt eldfast fat, ca 26 cm. Fylling: % kg súr epli 50 grömm rúsínur 100 grömm sykur rifið hýði af einni sítrónu 1 tsk. kanill V2 tsk. negull 1 tsk. kartöflumjöl Blandið saman sykri, sítrónu- hýði, kanil, negul og kartöflu- Fáir standast rjúkandi eplapæið þegar það kemur út úr ofninum. mjöli og dreifið þunnu lagi í botninn. Afhýðið eplin og sker- ið í þunna báta. Setjið eplin í formið og stráið rúsínum yfir og að síðustu afganginum af kryddblöndunni. Afgangurinn af deiginu settur yfir sem lok. Þrýstið köntunum vel saman, skerið nokkrar rákir í lokið til að hleypa gufu út úr pæinu. Bakið við 200 gráður í 30-35 mín. Berið fram volgt með þeyttum rjóma. EPLATODDÍ Þegar kalt er úti er gott að ylja sér á eplatoddí. Ódýrt og gott. I það þarf: 75 grömm sykur, soðinn með 1 Vz dl af vatni og þremur heilum kanilstöngum í 5 mínútur. Takið pottinn af hellunni og bætið Vz lítra af eplasafa og 1V2 dl af appelsínusafa saman við, ásamt safa úr einni sítrónu. Hitið upp aftur en nú má ekki sjóða. Takið kanilstangirnar úr og hellið í glös. Skreytið með sítrónusneið. MARSIPAN-EPLATERTA Deig: 150 grömm hveiti 125 grömm smjör 1 eggjarauða eða hálft egg 1 msk. rjómi. Fylling: 150 grömm marsipan 3-4 msk. kaffirjómi 3-4 gul epli ► Eftirrétt- urúreplum með þeytt- um rjóma og öðrum sætindum. 3 msk. sykur og 3 tsk. kanill hrært saman Smjörið er mulið saman við hveitið, síðan er eggjarauðu og rjóma hnoðað saman við. Deigið er geymt í kæli í eina klukkustund. Síðan er það breitt þunnt út og smurt tertu- form klætt með deiginu, best er að nota pæform með riffluð- um kanti. Rífið marsipanið gróft niður og blandið kaffirjómanum saman við. Setjið þetta yfir deigið, þar næst eru eplin skorin í þunnar sneiðar og þær lagðar ofan á og þar ofan á 3 msk. brætt smjör og síðast kanilsykurinn. Kakan er bökuð neðst í ofni við 225 gráða hita í 12 mín. Þessa köku má frysta og þíða í ofni eða ör- bylgjuofni og bera fram volga með þeyttum rjóma. EPLAEFTIRRÉTTUR 400 grömm epli V2 dl sykur 1 tsk. sítrónusafi 2 eggjahvítur Eplin eru skræld, kjarninn fjar- lægður, skorin i litla bita og soðin ásamt sykri í mauk. Kælið. Eggjahvítum og sítrónu- safa bætt sama við og allt saman hrært vel þar til hræran er Ijós og létt í sér. Berið fram strax, með rjóma bragðbætt- um með vanillusykri eða berið fram með vanillusósu. Best ískalt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.