Vikan


Vikan - 09.07.1992, Síða 10

Vikan - 09.07.1992, Síða 10
mín ein bjó í Danmörku alla sína ævi,“ segir Inga, „en hún spuröi alltaf um veðrið á íslandi í hvert sinn sem hún hringdi. Það var einhver maður, hver var það aftur? Jú, Þórður á Skógum sagði að við íslendingar ættum tvö þúsund orð yfir veðurfar." „Þrátt fyrir það höfum við aldrei lært að lifa með veðr- inu,“ segir Leifur. „Við erum skáldskaparþjóð og því erum við alltaf einhvers staðar ann- hugarflugið annars staðar. ís- lendingar eru dugleg þjóð, duglegasta fólk í heimi og þeir komast ails staðar af. Skáld- skapurinn er arfur sem við fluttum hingað með okkur á landnámsöld og vorum eftir tvö hundruð ára búsetu í land- inu farin að skrifa heimsbók- menntir. Það voru engin skáld í Noregi, þarvarenginn maður skrifandi fyrr en seint á 19. öld, ekki fyrr en Ibsen og þeir fóru að skrifa á dönsku." Tíminn að undanförnu hefur farið mest I flutninga og beinbrot. Ég var heppinn að halda lífi þegar hesturinn kastaði mér af baki... ars staðar í huganum. Allir landsmenn eru mikið í skáldskap, jafnvel þó þeir hafi aldrei heyrt hann nefndan. Annars væru allir fluttir til Suð- ur-Afríku eða Argentínu. Að stunda ullarrækt hér á hjara veraldar og stunda stórhættu- legar fiskveiöar á skipum sem farast vegna veðurofsa og ís- ingar, það er skáldskapur, sýnir að íslendingar eru með Inga er nú komin með jóla- köku Katrínar Hepburn og býður upp á ameríska mjólk með. Mjólkin er auðvitað alís- lensk en í hana eru settir ís- molar að amerískum sið. Inga segist ekki vilja flytja frá Hellu þó hún hefði ekki verið æst í að fara þangað á sínum tíma. „Ég kann vel við mig hérna,“ segir hún. Kaka Ingu og Katrínar bragðast vel og Inga segist hafa verið aö lesa ævisögu Katrínar. „Hún var mikil merk- iskona, barðist til dæmis fyrir þvi að leikkonur í Bandaríkj- unum fengju fimm daga frí í mánuði í kringum blæðingar. Þessu er haldiö við enn þann dag í dag enda hefur það sýnt sig að konur gera flest mistök og lenda í flestum slysum þessa fáu daga mánaðarins. Þetta kallar maður alvöru kvennabaráttu. Konur hér á landi hafa hins vegar misst öll sín forréttindi og ekki fengið neitt í staðinn." Talið berst aö trúmálum. Leifur er kaþólskur en Inga segist vera kaþólsk þegar hún tali við kaþólikka en votti þegar hún ræði við votta Jehóva. „Ég held ég hafi orðið kaþólsk- ur ósjálfrátt með því að lesa íslandssöguna," segir Leifur. „Lúterstrúin er svo þröng og felur dauðann í sér. Ég sá ekki nokkra ástæðu til að láta ferma mig í þjóðkirkjunni en var ekki tekinn upp í kaþólsku kirkjuna fyrr en mörgum ára- tugum síðar. Það var ekki fyrr en 1983 að ég gekk í kirkjuna, þá var ég búinn að vinna þar í mörg ár sem organisti. Það eru svo sem sömu guðir í kaþólsku kirkjunni og þeirri lút- ersku og báðar kirkjurnar eru kirkjur Krists. En það er fárán- legt að hafa ríkiskirkju og að prestar séu ríkisstarfsmenn kann ekki góöri lukku að stýra.“ - Er ekki erfitt að rækta trúna hérna, þar sem kaþólikk- ar leggja mikið upp úr kirkju- sókn? „Við höfum einu sinni haldið messu hér hjá okkur. Þá kom hingað kaþólskur prestur og nokkrir djassleikarar, meðal annars Guðmundur heitinn Ingólfsson. Þeir spiluðu í messunni. Það eru fjórir til fimm kaþólikkar á Hvolsveili auk tuttugu og fimm Pólverja, auk allra túristanna sem koma hingað. Þetta fólk þari auðvit- að að sækja sína kirkju. Séra Ágúst, prestur í Mariukirkjunni í Breiðholti, kemur og messar einu sinni í mánuði á Sel- fossi." Leifur segir íslendinga ekki bera virðingu fyrir andlegum störfum. „Það er ekki vinsam- leg afstaða til tónskálda og til dæmis finnst öllum allt í lagi að trufla tónskáld." - Ertu aö vinna að ein- hverju tónverki núna? „Tíminn að undanförnu hef- ur farið mest í flutninga og beinbrot. Ég var heppinn að halda lífi þegar hesturinn kast- aði mér af baki því ég var aldrei þessu vant meö hjálm þar sem þaö var rigning. Ætli Guð hafi ekki sent mér rigning- una, annars hefði ég áreiðan- lega höfuðkúpubrotnað því ég var á hestinum á malbikinu og datt beint á höfuðið." - Hvernig vinnurðu tón- verk? „Ég vinn helst þannig að enginn taki eftir því. Ég vinn mikið í huganum og það er ekki nógu gott því maðurtapar minni með aldrinum. Þegar ég svo sest niður og skrifa eru stórir hlutar verkanna meira og minna tilbúnir, þó það fari oft mikil vinna í að skrifa niður nóturnar. Ég bæði heyri og sé tónana áöur en ég sest niður og skrifa niður nóturnar. Þetta er flókið starf, það er í svo mörg horn að líta. Þegar skrif- að er fyrir Sinfóníuhljómsveit- ina þá er verið að skrifa fyrir mörg ólík hljóðfæri og þær manneskjur sem leika á hljóð- færin.“ - Ertu að semja mörg verk núna? „Ég er með nokkur sem ég er byrjaður á en einkum er þó eitt verk sem ég þarf að Ijúka við því það á að fara að spila það.“ Þau Inga hafa unniö saman nokkrum sinnum, Leifur samið tónlist við fimm eða sex leikrit sem Inga hefur leikstýrt. Leifur segist hafa samið tónlist við um fimmtíu leikverk og það hafi á vissum tímabilum verið aðaltekjulindin, þó hann sé ekkert sérstaklega hrifinn af þeirri vinnu. „Hann er samt svo góður við alla leikara," segir Inga, „hann hefur svo mikla samúð með þeim.“ Leif- ur gefur ekkert út á það en segist vera alinn upp i leik- húsi. Móðir hans, Alda Möller, sem lést 1948, var ein aðal- leikkonan í Reykjavík á sínum síma. Það er kominn brottfarartími enda ferðinni heitið í annað hús á staðnum. Þar býr Guö- rún Svava Svavarsdóttir ásamt eiginmanninum, Sigurði Karlssyni. Við kveöjumst á hlaðinu, kötturinn Kisa þvælist fyrir fótum okkar meðan hund- urinn Lappi er bundinn við staurá lóðinni. „Hann lenti líka í hestunum, greyið," segir Inga. „Það var stigið ofan á hann og hann missti einatána. Þetta var alfarið honum að kenna, hann var alltaf utan í hestunum en nú hefur hann lært sína lexíu. Ef hann er í bílnum og sér hest leggst hann strax á gólfið og felur sig.“ □ 10 VIKAN 14.TBL. 1992

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.