Vikan


Vikan - 09.07.1992, Qupperneq 26

Vikan - 09.07.1992, Qupperneq 26
Á Einar Þór Gunn- laugsson BÚKSLÁTTUR NÝTT SAMSKIPTAFORM 'O Q co O 2 £ cg O oz ZD o az O £L <C S£2 i ° STUTTMYNDIN EFTIR EINAR ÞÓR GUNNLAUGSSON VEKUR ATHYGLI í LONDON Hvaö gera tveir ein- staklingar sem mæt- ast og eiga ekkert sameiginlegt tjáskiptaform? Gefa frá sér hljóö, sveifla höndum, slá í húsgögn eöa kannski enn frekar slá sér á lær, kviö og bringu eins og Diddi, Ragga og Sverrir geröu á eftirminnilegri menningar- hátíð í London síðastliðið haust. Nokkru áður en allt búk- sláttarfár hófst lá fullbúið handrit að stuttmyndinni Reg- ínu á skrifborði hér í London, alls óskylt búksláttarmeistur- unum sjálfum. Söguþráðurinn er í stuttu máli sá að einmana blóma- sölustúlka i stórborginni er lögst til hvílu eftir einn af þess- um venjulegu dögum þar sem ekkert virðist fylla lífið gleði lengur. Ekkert fær brosvipr- urnar til að taka í - jafnvel þótt trúöar hversdagsins séu hvergi langt undan. Þegar minnst varir er tilbreytingar- laust lífsmynstur hennar rofið. Mannvera utan úr fjarskanum hangir í fallhlíf fyrir utan þak- gluggann og stúlkunni tekst að bjarga henni úr hættu. Mannveran getur ekki talað en tjáir sig með öðrum hætti. Saman brjóta þau tvö sam- skiptamúr, sem í fyrstu virðist órjúfanlegur, með búkslætti. Mannveran hverfur aftur. Sköpun samskiptaforms ólíkra einstaklinga skilur hins vegar eftir sig lífsfyllingu og verö- mæta reynslu hjá Regínu. Myndin hefur hlotið mikla at- hygli fyrir að vera bæði frum- leg og skemmtileg. „Ég er að fást við sam- skiptaformið í þessari rnynd," segir Einar Þór sem auk þess að eiga handritið leikstýrði myndinni. „Búksláttur er nýtt samskiptaform í lífi þessara tveggja einstaklinga en þetta er í raun mjög alþjóðlegt fyrir- bæri sem allir skilja.“ Einar segir að upphaflega hugmyndin hjá sér hafi veriö að þessar tvær aðalpersónur myndarinnar notuðu húsgögn, hluti og ýmiss konar búkhljóð til að tjá sig. Hvort sem það var einskær heppni eða meðvitað- ir straumar höguöu örlögin þvi þannig að þarna var rétt hug- mynd á réttum stað og réttum tíma til að aðlagast annarri frumlegri hugmynd. „Ég var búinn með handritið þegar ég sá íslensku menn- ingarhátíðina kynnta með búk- sláttarflokknum í vinsælum sjónvarpsþætti. Mér fannst hugmyndin frábær og hún féll mjög vel að handritinu og grunnhugmyndinni að Reg- 26 VIKAN 14.TBL. 1992
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.