Vikan


Vikan - 09.07.1992, Síða 40

Vikan - 09.07.1992, Síða 40
STJÖRNUSPÁ HRÚTURINN 21. mars - 19. apríl Nú fer aö líða aö því aö stjörnuspáin þín veröi hagstæð en þaö verður þó ekki næstu tvær vikurnar. Hversdagsleikinn fer svolítiö í taugarnar á þér en ef þú lítur þér nær má fá ánægju út úr ýmsum smáatriðum. Þann 14. júlí stenduröu frammi fyrir erfiöu vali. Þá er þér fyrir bestu að hlusta á rödd hjartans. VOGIN 24. sept. - 23. okt. Þú finnur á þér aö ein- hverra breytinga er að vænta og þaö eykur þér kvíða, jafnvel svartsýni. Þér finnst illu best af lokið en málið er ekki svo einfalt. Þú ert aö fara í gegnum eins kon- ar millibilsástand; lognið á undan storminum (betri dögum í haust). Útlitið fyrir næstu daga er því skin og skúrir. cVh NAUTIÐ H 20. apríl - 20. maí Búðu þig undir að lækka hamingjuflug liðinna daga. Þetta er að vísu ágætur tími ennþá en ekki fastsetja neitt nema tilkynna þínum nánustu það fyrst. Ýmis teikn á lofti benda til að þú farir að finna svolítið fyrir óþolinmæði eftir 13. júlí. Mundu þá að einn fugl í hendi er betri en tveir í skógi. TVfBURARNIR 21. maí - 21. júní Nú er um að gera að laga sig að breyttum aðstæðum. Eitthvað virðist glepja fyrir þér og þú átt erfitt með að einbeita þér. 19. júlí er ágætur dagur til að slappa af og hugsa málin, einkum hvað framtíðina varðar. Að öðru leyti máttu vel við una næstu daga og lífið gengur sinn vanagang. KRABBINN Ö? 22. júní - 22. júlí Það kennir svolítils ó- stöðugleika í tilfinningum þínum um þessar mundir. Þetta nær há- marki þegar tunglið verður fullt þann 14. júlí og endist að minnsta kosti til 18. júlí. Um þessar mundir er rómantíkin sterkust meðal þeirra sem eru í nánum sam- böndum. Nýstofnuð kynni virka ekki eins vel þessa dagana. LJÓNIÐ 23. júlí - 23. ágúst Þú hefur farið geyst und- anfarið og nú fer þreytan að segja til sín. Hún birtist í formi efa- semda um þitt eigið ágæti og gæti jafnvel komið frai sem þung- lyndi. Létt afþreying er besta meðalið. Þér er alveg óhætt að slaka á vegna þess að engin(n) er ómissandi og þú átt tilþreytingu skilið. MEYJAN 24. ágúst - 23. sept. Afstaða himintunglanna er mörgum merkjum erfið í bili og þú sleppur ekki alveg. Ef til vill finnurðu til einhverrar vanmáttar- kenndar, til dæmis í starfi. Þetta er þó ekkert alvarlegt. Aöalatriðið er að beita orkunni út á við. Þar að auki áttu nokkrar skemmtileg- ar stundir í vændum á næstunni. SPORÐDREKINN 24. okt. - 21. nóv. Þunglamaleg áhrif Satúrn- usar leiða til þess að þér finnst frelsi þinu ógnað. Þetta er aðeins tímabundið ástand. Þú verður að laga þig að aðstæðum. Ýmsar skyldur hvíla þungt á þér. Sterk- ustu og um leið jákvæðustu straum- arnir, sem snerta þig um þessar mundir, virðast koma úr fjarlægð. BOGMAÐURINN 22. nóv. - 21. des. Frjóir hæfileikar þínir virð- ast vera í hlutleysisstöðu í bili enda er þér alveg óhætt að slaka á. Dagana 12. - 14. júlí gætirðu haft það náðugt. Farðu síðan vel með þig fram að 18. - 20. Þá er góður tími til að fara í ferðalag. Þann 22. júlí ferðu að kannast við sjálfa(n) þig á ný. STEINGEITIN 22. des. - 19. janúar Næstu tvær vikur verða mörgum annarlegur tími, nema helst fólki í jarðarmerkjunum og steingeitarfólkið sleppur alveg. Fólk virðist laðast að þér og róm- antísk sambönd ná hámarki, sér- staklega í kringum 18. júlí. Það er jafnvel hægt að treysta gott sam- band með því að fara í tveggja manna ferðalag. VATNSBERINN 20. janúar - 18. febrúar Þú hpfur ekki alveg gert hreint fyrir þínum dyrum. Þér finnst kominn tími til að stokka svolítið upp í kunningjahópnum. Gerðu það og lagfærðu síðan ýmis hugöarmál frá grunni. Heimilismálin mættu fylgja með. Þú gætir orðið á öndverðum meiði við þína nánustu 19. júlí en sam- komulag ætti að nást. FISKARNIR 19. febrúar - 20. mars Orka þín virðist beinast inn á við þessa dagana. Eftir 14. júlí (fullt tungl) dregur úr athafna- semi þinni og athyglin beinist að ýmsu sem aðrir virðast ekki taka eftir. Reyndu að halda góöu sambandi við kunningjafólkið sem finnst þú vera svolítið af- skiptalaus. Hristu af þér slenið. ■ Ókunna konan: Áttu engin systkini, stúlka litla? Lísa: Jú, ég á hálfan annan bróður. Ókunna konan: Hálfan annan bróður? Hvernig á að skilja það? Lísa: Ég á þrjá hálfbræður, og þrir háifir er sama sem einn og hálfur, eins og þú veist. ■ Eins og allir vita eru sífellt strang- ari kröfur gerðar til manna um kunnáttu í starfi enda er það þeg- ar viðurkennt - að minnsta kosti að vissu leyti - að mönnum ber réttur til launa í samræmi við það nám og þann námstíma sem starfið krefst. Má nú svo heita að einu starfsgreinarnar þar sem ekki er krafist skemmri eða lengri undirbúningsmenntunar og prófa séu þingmennska og banka- stjórn, ráðherradómur - og hljóð- færaleikur fyrir dansi. Það fylgir og öllum þessum starfsgreinum að þeir sem í þær veljast stunda þær þannig að þeir gegna ýmsum öðrum embættum og stöðum samtímis. Þegar á allt þetta er litið er því síst að undra þó að hljóð- færaleikarar vilji komast í launa- flokk með þessum „stéttarbræðr- um“ sínum - já og raunar er þetta allt sama stéttin því að allir vilja þessir aöilar láta þjóðina dansa gagnrýnislaust eftir sínum nótum. ■ Að lifa án mótstöðumanna er líkast því að tefla skák við sjáifan sig. ■ Biskup nokkur var að vísitera í smábæ í Danmörku og sté hann í stólinn en starfandi prestur þjón- aði fyrir altari. Biskupinn, sem var fanatískur templari en vissi að prestinum þótti gott „táriö", þrum- aði yfir söfnuðinn um bölvun áfengisins og allt hið illa sem af því leiddi. Endaði biskup stól- ræðuna á þessa leið. „Ef ég mætti ráða, mundi ég taka allt viskí, gin og annan brennivínsóþverra sem finnst hjá ykkur og hella því í ána sem rennur hér framhjá." Presturinn, sem hlustað hafði með tárvot augun á reiðilestur biskups, reis á fætur og sagði hátíðlega: - Og látum oss svo, kæru sóknarbörn, að lokum syngja sálminn númer 12, „Við hittumst niður við fljótið“.“ FINNDU 6 VILLUR Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda jn)Bjsn6uo6 'pw uæq quba jnjaq esruqsuiBA 'qipoq BjBq b>)sjb[j i uoji 40 VIKAN 14. TBL. 1992

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.