Vikan - 12.11.1992, Page 32
Kristy Swanson leikur rómantíska menntaskólastúlku sem kemst aó því aö henni er ætlaó
þaó hlutverk aó koma bóösugum fyrir kattarnef.
BLÓÐSUGUBANI
VIKAN Á BLAÐAMANNAFUNDI
í LOS ANGELES MEÐ AÐALLEIKONU
OG LEIKSTJÓRA MYNDARINNAR
Eg verð að viðurkenna að ég var ekkert
sérstaklega bjartsýnn þegar ég fór að
sjá myndina um Buffy blóðsugubana
(Buffy the Vampire Slayer) í kvikmyndahúsi í
Hollywood ekki alls fyrir löngu. Mér fannst
nafnið hljóma út í hött og þó að ég vissi að
um gamanmynd væri að ræða grunaði mig
helst að skotið væri vel yfir markið. Það er fátt
skemmtilegra en að fara í bíó án mikilla vænt-
inga og gæði myndarinnar koma á óvart. Sú
varð raunin ( þessu tilfelli og ég hló manna
hæst í sýningarsalnum. í stuttu máli fjallar
myndin um stelpu í gagnfræðaskóla sem
verður fyrir því óláni að finna sjálfa sig og
hlutverk sitt í lífinu og það kemur henni heldur
betur að óvörum svo ekki sé meira sagt.
í upphafi myndarinnar hefur Buffy mestan
áhuga á að vera klappdrottning fyrir körfu-
boltalið skólans og að kaupa föt, en hún er
leikin af Kristy Swanson sem áður hefur leikið
í myndum eins og Hot Shot og Pretty in Pink.
Dag nokkurn nálgast hana frakkaklæddur og
rykfallinn náungi, Merrick að nafni, sem leik-
inn er af Donald Sutherland. Hann tilkynnir
henni að hlutverk hennar í lífinu sé að drepa
vampírur og hann sé kominn til að búa hana
Leikstjórinn, Fran Rubel Kuzui, á tali viö
leikara sína, þau Kristy Swanson og Don-
ald Sutherland, sem leikur hinn frakka-
klædda og rykfallna mann sem segir stúlk-
unni hvaö henni er ætlaö.
undir það. Skiljanlega eru þetta ekki óskaör-
lög ungrar stúlku sem dreymir helst um að
hitta Michael Jackson, fara með honum til
Evrópu og deyja að því loknu. Engu að síður
tekst Merrick að telja Buffy á að koma með
sér út í kirkjugarð og eftir það er ekki aftur
snúið fyrir hana í glanspíuhlutverkið.
Nýlega var haldinn blaðamannafundur í
höfuðstöðvum 20th Century Fox kvikmynda-
fyrirtækisins í Los Angeles með Kristy Swan-
son og leikstjóranum Fran Rubel Kuzui og
blaðamaður Vikunnar þar í bæ var að sjálf-
sögðu mættur á staðinn. Við röðum okkur í
kringum tvö hringborð og í fyrstu atrennu sit ég
með leikstjóranum sem leggur áherslu á að
myndin sé gamansöm ástarsaga með
blóðsugum en ekki blóðsugumynd. Þetta er
önnur kvikmyndin hennar í fullri lengd en fyrsta
myndin heitir Tokyo Pop og mér er ekki kunn-
ugt um að hún hafi verið sýnd á íslandi en
hugsanlega er hægt að fá hana á myndbandi.
Auk þess að vera leikstjóri er Fran varafor-
seti hjá Kuzui Enterprizes sem er eitt af stærri
sjálfstæðu kvikmyndadreifingarfyrirtækjunum í
Japan en það er önnur saga. Hún geislar af
lífi og vefst ekki tunga um tönn enda getur
hún verið stolt af myndinni sem hefur fengið
mjög góða dóma vestra þótt aðsóknin gæti
verið betri. Hún byrjar á því að kanna hversu
stór hluti af upptökutækjunum hjá mér og kol-
legum mínum, sem eru ættaðir víðsvegar af
28 VIKAN 21. TBL. 1992