Vikan - 12.11.1992, Page 36
MEÐ NUPO-NÆRINGARDUFTINU
V’IKAN var á ferö í Dan-
mörku ekki alls fyrir löngu,
nánar tiltekið í Kaup-
mannahöfn. Þar var meðal
annars komið við á lækningastofu
prófessor dr. med. Flemming
Quaade þar sem hann tekur fólk
til meðferðar vegna offitu. Hann
er sem kunnugt er upphafsmaður
einingakerfisins svokallaða sem
sagt var frá í næstsíðasta tölu-
blaði Vikunnar en kerfið auð-
veldar fólki að fylgjast með þeim
hitaeiningum sem neytt er
umfram þær sem fást úr NUPO-
næringarduftinu.
Lækningastofan er í stóru
gömlu húsi á jarðhæðinni en íbúð
prófessorins á þeirri efri. Eftir að
blaðamaður hafði átt spjall við
hann góða stund tóku sjúklingar
hans að koma hver af öðrum á
fræðslu- og eftirlitsfund og gafst
þá tækifæri til að ræða við nokkra
þeirra.
Jena Vita Fredriksen, sextíu og
fimm ára gömul kona, varð fyrst
fyrir svörum og spurði ég hana
hvenær hún hefði byrjað á
kúrnum og hvað hún hefði þá
verið þung.
„Ég byrjaði fyrir um ári og var
þá 101 kíló en er nú 71,5 og er
því eru um þrjátíu kílóum léttari.
Það má kannski koma fram að ég
er um 150 cm á hæð. Fyrstu fjóra
mánuðina lét ég ekkert annað
ofan í mig en NUPO-duftið en
síðan byrjaði ég að borða
venjulegan mat samhliða því og
studdist við einingakerfið. Ég er
að mestu hætt að taka duftið en
fer alfarið eftir kerfinu. Það
gengur mjög vel og ég á ekki í
neinum vandræðum með
þyngdina.'1
Hvernig stóð á því að þú fórst
að fitna?
„Þetta er vandamál í ættinni.
Faðir minn hefur átt við offitu-
vandamál að stríða þannig að ég
hef vafalaust erft þetta að ein-
hverju leyti. Ég þurfti einnig að
taka inn lyf fyrir nokkrum árum
vegna hjartasjúkdóms og of mikils
blóðþrýstings en þau hafa þá
aukaverkun að maður hefur til-
hneigingu til að fitna sem ég og
gerði. En eftir að ég grenntist þarf
ég ekki lengur á lyfjunum að
halda."
Hver fannst þér helsti kostur
þessa kúrs?
„Að ég þurfti ekki að elda mat í
fjóra mánuði," segir Lena og hlær,
"og einnig að maður varð aldrei
svangur eins og oftast vill verða
þegar maður er í venjulegri
megrun."
Varstu aldrei slöpp?
„Nei, aldrei. Ég varð mun
kraftmeiri."
Hefur andleg líöan þín breyst
eftir aö þú grenntist?
„Því verður ekki lýst á annan
hátt en þann að ég er miklu
glaðari og hressari en ég var og
börnin mín tala oft um það. Það
eru einnig ótrúlega margir sem
samgleðjast mér og taka óbeinan
þátt í þessu með mér, segja mér
til dæmis að ég skuli nú ekki vera
að fá mér vínarbrauð eða því um
líkt. Fólk vill hafa mig áfram eins
og ég er og það er mér mikil
hvatning."
Hvaö var erfiöast viö þennan
kúr?
„Ég get ekki sagt að ég hafi átt
í erfiðleikum af neinu tagi og það
kom mér mjög á óvart hversu
auðvelt þetta var."
Stundaöir þú einhverja reglu-
bundna hreyfingu samhiiöa
kúrnum?
„Já ég fór út að ganga, gekk í
einn til tvo tíma daglega. Mér
fannst ég hafa mjög gott af því."
Sautján ára og yfir hundrað
kíló
Sautján ára menntaskólamær,
Iren Henriksen, hafði einnig frá
ýmsu að segja.
„Ég byrjaði á kúrnum fyrir um
fimm mánuðum og þá var ég
100,4 kíló en nú er ég rétt rúm 74
kíló þannig að ég er um 21
kílóum léttari. Ég byrjaði á að
taka NUPO-duftið eingöngu en
mér fannst það vera fullmikil
viðbrigði að borða ekkert annað
þannig að ég byrjaði fljótlega að
borða svolítið grænmeti sam-
kvæmt einingakerfinu. Ég tileink-
aði mér kerfið mjög fljótt þannig
að nú nota ég það og duftið
jöfnum höndum og stefni að því
að losna við um tíu kíló til
viðbótar. Eftir það ætla ég ein-
göngu að fara eftir einingakerfinu
og ég er viss um að það verður
hluti af mínu daglega lífi
framvegis þar sem það kemst
fljótt upp í vana. Maður kann það
svo til utanað og er alltaf að nota
það í huganum."
Hvaö var erfiðast viö þennan
kúr?
„í byrjun var erfiðast að láta
það vera að taka bara eitthvað úr
ískápnum þegar ég var svöng í
stað þess að taka duftið. Einnig
átti ég nokkuð bágt með mig
meðan á blæðingum stóð því þá
langaði mig alltaf í eitthvað sætt.
Ég hef samt aldrei verið með mat
á heilanum eins og oft vill verða
þegar maður er í megrun en það
kom erfitt tímabil, sem kemur hjá
öllum, þegar þyngdin stóð
nokkurn veginn í stað og það er
þá sem ríður á að láta ekki
deigan síga."
/ garöinum fyrir utan lækningastofuna frá vinstri: Iren Henriksen eftir aö
hafa misst 21 kg með NUPO-kúrnum, John Pickhard eftir 50 kg, Ris
Tange eftir 38 kg, Jena Vita Fredriksen eftir 30 kg og Susi Buch
Petersen eftir 23 kg. Biaöamaöur Vikunnar talaði viö þetta fólk og birtist
frásögn þess hér í greininni og síöari tölublöðum Vikunnar.