Vikan


Vikan - 12.11.1992, Qupperneq 54

Vikan - 12.11.1992, Qupperneq 54
THELMA SNYRTIVORUSETT FRÁ NO NAME MEÐ 50% AFSLÆTTI Nú býSst lesendum Vikunnar aS eignast þennan glæsilega snyrti- vörukassa fró NO NAME með 50% afslætti. AÐEINS KR. 4.995 + PÓSTBU RÐARGJ ALD KASSINN INNIHELDUR: • 10augnskuggar -4 kinnalitir ■ litlaust púöur -2 augnblýantar ■ 2 varalitapenslar - hyljari ■ maskari -varagloss ■yddari ■ förðunarburstar PONTUNARSEÐILL Vinsamlegast sendiö mér NO NAME snyrtivörusettið Naf n:__________________________________________________ Hfiimili: Póstnúmer: Staöur: Kt.: Sími: Utanáskrift: Sambúöin, Ármúla 20, 108 Reykjavík S 813122 krúnurakaði hann á sér kollinn til að tryggja að hann léti örugglega ekki undan freistingum og færi út úr húsi. Þrýstingurinn verkaði illa á börnin, sérstaklega á Valentín. Honum leiddist í skóla. Nú nýtur hann sín miklu betur og honum hefur farið mikiö fram við lærdóm- inn. Hann hefur fengið áhugann sem vantaði þegar álagið var hon- um ofviða. Börnin hafa þó mikið samband við föður sinn og hitta hann reglu- lega. Einnig hefur haldist gott samband milli mín og Gretu, fyrr- verandi tengdamóður minnar, og það þykir mér vænt um. Við hitt- umst jafn mikið og áður og hún er alltaf jafn elskuleg við mig. Hún getur heldur ekkert að því gert hvernig hjónabandi okkar Fredís lauk og henni þykir jafn vænt um mig og börnin sem fyrr. Það hefur svo sem gengið á ýmsu í hennar hjónabandi og hún hefur alltaf sagt að karlmenn séu allir eins. Því sé kona engu bætt- ari þótt hún skilji við eiginmann- inn, ef hann heldur framhjá henni, og fái sér annan. Sá verði hvort eð er orðinn eins innan skamms og farinn að stunda sömu iðju. TRÚI EKKI LENGUR Á GOTT HJÓNABAND g trúi ekki lengur á gott k hjónaband til æviloka. Ég !■ get ekki fengið mig til þess þegar ég horfi upp á alla skilnað- ina ðg öll vandamálin sem koma upp á milli hjóna. Hjónabandið hefst með lygi strax við altarið. Við erum látin heita því að vera maka okkar trú alla ævi. Þannig er það ekki í raun og veru nú á dögum. Fólki finnst ekkert tiltökumál að stofna til nýrra kynna og stefna þannig hjónabandi sínu í voða. Það ber ekki virðingu fyrir hjónabandinu og þarfnast ekki hvort annars í sama mæli og fyrr á tímum. Hér áður fyrr var annað upp á teningnum. Karlmaðurinn vann úti en konan inni á heimilinu. Þá varð fólk að halda saman og berjast saman. Nú er mun auðveldara fyrir hjón aö skilja ef eitthvað kem- ur upp á. Konur eru sjálfstæðari en áður og geta staðið á eigin fót- um fjárhagslega ef því er aö skipta. Þær láta ekki lengur bjóða sér hvað sem er, aðeins til að halda fjölskyldunni sameinaðri. Sumt er þó mögulegt að fyrir- gefa, en erfitt getur reynst aö byggja upp traust að nýju. Fram- hjáhald er alltaf hjúskaparbrot, alltaf svik við makann. Þó finnst mér ólíku saman að jafna hvort einhver slysast til að halda fram- hjá einu sinni eða tvisvar í ein- hverju bráðræði eða hvort hann fer að lifa tvöföldu lífi. Þúsundir karlmanna eru alltaf ótrúir konum sínum en hafa ekki nokkra löngun til að fara frá þeim. Þeir vilja hafa ástandið eins og það er; eiga konu, börn og heimili en vera þó frjálsir að því að vera með öðrum konum. Fyrir kemur að sú hugsun læð- ist að mér að ef til vill sé framhjá- hald allt að því eðlilegt. Oft finnst mér eins og það sé karlmönnum náttúrulegt að vilja vera meö öör- um konum, þótt þeir elski þær ekki. Sá maður sem jafnan er konu sinni trúr væri samkvæmt því að breyta gegn eðli sínu. Þjóðfélagið kyndir undir þessa girnd. Nektarmyndir af konum eru alls staðar og klámmyndir eru sýndar. Karlar vilja sjá þetta. Þeir gimast þær konur sem bjóða sig. Ástin til eiginkonunnar getur alveg verið óbreytt og oft er ekkert ann- að á bak við framhjáhaldiö en full- næging líkamlegra hvata. Það er svo ríkt í fólki nú á dög- um að standast ekki freistingarn- ar. Allir verða að fá allt sem þá langar í. Hvað sem það kostar, hvað sem það hefur í för með sér. Auðvitað eru margar undantekn- ingar frá þessu. Og auðvitað eru einnig til giftar konur sem girnast aðra karlmenn en eiginmenn sína. Oft fer þó svo að ef sæt stelpa gefur giftum manni hýrt auga rýk- ur hann til. Og ég held að þegar karlmaöur byrjar að halda framhjá eigi hann erfitt með að hætta því. Ætli það sé ekki bara ósk- hyggja að halda að makinn geti ætíö verið trúr? Þess vegna finnst mér endur og svanir svo dásam- legir fuglar. í mínum huga eru þeir tákn hreinleikans, þvi þeir halda sig alltaf við sama makann. Svanir fella flugfjaðrirnar og eru í sárum þar til nýjar fjaðrir eru vaxnar. Ég var líka í sárum um langt skeið. Alla þessa löngu mánuði, eftir að Fredí sagði mér frá hjúskaparbroti sínu og þar til hann var farinn af heimilinu, leið mér mjög illa. Ég var vansæl, reið, örvæntingarfull, sinnulaus og bit- ur. Um tíma leið mér svo illa að ég sá ekki stjörnurnar á himnin- um. Ég veit ekki fegurri sjón í þess- um heimi en stjörnubjartan himin. Ef mér líður vel sé ég hann. Ann- ars er eins og ég sé slegin blindu. Þegar ég fór að taka eftir stjörn- unum að nýju fann ég að mér var farið að líða betur. Þær voru óum- deilanlegt merki um aö ég væri að ná mér, væri farin að breytast aft- ur. Ég var að veröa heil á nýjan leik.. □ 50 VIKAN 23.TBL. 1992
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.