Vikan


Vikan - 07.10.1993, Page 11

Vikan - 07.10.1993, Page 11
hafi smakkað það þegar þeir eru orðnir fjórtán ára. Alli: Margir yngri líka þó að það séu kannski undanfekn- ingar. - Farið þið oft í partí í heimahúsum? Begga: Nei, eiginlega aldrei, alls ekki hjá mínum kunningjahópi, kannski einu sinni til tvisvar á ári. Alli: Nokkrum sinnum á ári, aðallega hjá bekkjarfélögum, en það var meira um það í 7. og 8. bekk. Það er miklu meiri áhætta að halda partí þegar maður er orðinn eldri. Begga: Þá fyllist húsið eða eitthvað. - Hafið þið verið í slíku teiti - þegar allt hefur farið úr böndunum jafnvel? Begga: Nei, ég var veik og komst ekki. Vinkona mín héH svoleiðis og þá fylltist húsið. Jú, reyndar hef ég verið einu sinni í slíku partíi sem önnur vinkona mín hélt. Þar fylltist húsið líka. Þá var bekknum boðið og nokkrum þar fyrir utan en áður en varði streymdi að fólk úr öllum átt- um. Það var ekkert mjög á- nægjulegt að vera þarna inni. Hún hleypti flestum inn en ekki þeim sem hún taldi sig ekki geta treyst. SJÁLFUM SÉR NÓG - Eruð þið búin að ákveða hvað þið ætlið að gera að loknum grunnskóla? Begga: Mig langar að verða íþróttakennari. Fyrst verð ég að fara í Flensborg auðvitað og taka stúdentspróf. Ég stefni á þetta. Alli: Ég fer alla vega í Flensborg hvað sem síðar verður. - Þurfið þið einhverja vasa- peninga? Alli: Ég var í unglingavinn- unni í sumar og reyndi að leggja sem mest af kaupinu inn á banka. Ég þarf lítinn vasapening frá foreldrum mín- um, ekki nema þegar eitthvað sérstakt er að gerast, ball í skólanum og því um líkt. Begga: Eg reyni alltaf að vera sjálfri mér nóg. Ég lagði hluta af laununum mínum í sumar inn á bankabók. Þann pening nota ég síðan til að borga djassballetttímana, föt fyrir skólann og svoleiðis. Ég fæ nægan vasapening fyrir að bera út Moggann. - Er gott að vera unglingur núna? Begga: Mér finnst það fínt, mjög skemmtilegt að vera til. Alli: Ég tek undir það. □ FORELDRARNIR ÞORA AÐ SEGJA I - SEGIR SIGRÚN GÍSLADÓTTIR, SKÓLASTJÓRI FLATASKÓLA í GARÐABÆ Flataskóli í Garðabæ er einn þeirra skóla þar sem komið hefur verið á nánu samstarfi við foreldra. Sigrún Gísladóttir skólastjóri hefur meðal annars lagt mikla áherslu á samráð skóla og foreldra hvað varðar útivistar- tíma nemenda skólans, sem eru á sjötta hundrað í 1. til 6. bekk. Á haustin eru línurnar lagðar. Sigrún féllst góðfús- lega á að svara nokkrum spurningum hér að lútandi. „Við höfum haft það fyrir reglu að boða foreldra á það sem við köllum haustkynning- arfundi. Þá koma þeir í stofur barnanna á eftirmiðdegi, frá hálfsex til hálfsjö. Fundarboð- ið sendi ég út með stundatöfl- unni strax og börnin byrja í skólanum svo að fólk hafi góðan fyrirvara. Síðan geng ég sjálf ásamt aðstoðarskóla- stjóra f allar stofur og útskýri fyrirkomulag það sem ég er á- byrg fyrir.“ BÖRNIN ALA SIG EKKI UPP SJÁLF „Á seinni árum hef ég verið að færa mig upp á skaftið og ver- ið með umræður og skotið að foreldrunum ýmsum hugleið- ingum varðandi uppeldið og þetta félagslega. Það snertir kannski skólann ekki beint en gerir það þó, einkum hvað varðar svefntíma og matar- æði, sem hefur mikil áhrif á vellíðan barnanna. Einnig hef ég í auknum mæli brýnt það fyrir foreldrum að börnin þurfi einhvern sem setur þeim norm og reglur. Börnin ala sig ekki upp sjálf, það erum við sem mótum þau. Þau mótast náttúrlega af umhverfinu og ekki hvað síst af heimilunum. Ég segi við foreldrana sem svo að þó að við í skólanum reynum að standa okkur vel og gerum allt sem í okkar valdi stendur þá náum við ekki árangri nema með því að vinna með þeim - við vinnum saman að sömu markmiðum." ENGINN ÚT EFTIR KVÖLDMAT „Ég segi við foreldrana að sú regla sé góð að börnin fari ekki út eftir kvöldmat þegar skóli er daginn eftir, þá er það bara eitthvað sem gildir fyrir alla. Mér finnst fólk taka þessu mjög vel og það hafa verið dæmi um að foreldrar hafi hringt til mín til þess að fá staðfestingu á þessu. Ef undantekningar eru á þessu leyfi ég mér hiksta- laust að hringja í viðkomandi foreldra og benda þeim á hvað við höfum verið að ræða okkar á milli og við hina foreldrana. í lögreglusamþykkt er kveðið á um að börn yngri en tólf ára eigi bara að vera úti til klukkan átta. Ég gæti þess að öll starf- semi hér í skólanum fari fram á leyfilegum útivistartíma. Hér hjá okkur eins og víða annars staðar er skólinn tvíset- inn. Ég tel að slíkt fyrirkomulag leiði af sér ýmis vandamál. Ég hef búið erlendis um árabil, bæði í Svíðþjóð og Bretlandi. Þar þekkist ekki að börn á skólaaldri og ungbörn séu vak- andi fram eftir öllum kvöldum. Þar fara þau miklu fyrr að sofa. Mér finnst núna að foreldrum hætti til að gleyma því að börn þurfa að sofa lengur en full- orðnir. Ég geng því fyrst á haustin í allar stofur þar sem ég ræði sérstaklega við börnin sem nú eru allt í einu farin að vera í skólanum á morgnana en voru eftir hádegi í fyrra. Ég ræði um það við þau hver að- albreytingin sé og til þess að þau hafi eitthvert gagn af ver- unni í skólanum þurfi þau að sofa vel. Þá reiknum við dæm- ið til enda, þau þurfa að vakna klukkan sjö eða hálfátta - og hvenær þurfa þau þá að fara að sofa til þess að ná sínum tíu tímum? Til gamans get ég sagt frá því að um árið var tíu ára barn eins kennarans hérna í skólan- um. Ég var búin að ganga í bekkina með þennan pistil minn og hafði gert það eins og jafnan nokkru áður en foreldrar komu á haustfundinn. Allt í einu var þetta barn farið að bjóða foreldrum sínum góða nótt á milli átta og níu. Það var vegna þess að skólastjórinn hafði sagt að svona þyrfti fyrir- komulagið að vera ef maður væri í skólanum á morgnana. Ef til vill var þetta undantekn- ingartilvik en slíkt eflir mann þó, maður veit að einhverjir ◄ Sigrún Gísladóttir, skólastjóri í Flata- skóla, lætur sig málefni barnanna miklu varöa, bæói í skólanum og utan hans. un un CD 20.TBL. 1993 VIKAN 11

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.