Vikan - 07.10.1993, Blaðsíða 42
0
FIRMAKEPPNI
GOLFKLÚBBS
REYKJAVÍKUR:
SAMUTGAFAN KORPUS SIGRAÐI
Firmakeppni Golfklúbbs
Reykjavíkur var haldin
á Grafarholtsvelli þann
18. september sl. Alls komust
keppendur 19 fyrirtækja í úr-
slit mótsins en 140 fyrirtæki
áttu fulltrúa í keppninni. Sig-
urður Pétursson, golfkennari
GR, lék í nafni Samútgáfunn-
ar Korpus hf., útgáfufyrirtækis
Vikunnar og fleiri góðra tima-
rita. Sigurður lauk átján hol-
unum á 72 höggum eða einu
höggi yfir pari. Hífandi rok var
á vellinum þannig að höggin,
sem kepþendur þurftu til aö
Ijúka átján holunum, voru
heldur fleiri en gengur og ger-
ist hjá meistaraflokkskylfing-
um. Árangur okkar manna er
því einkar glæsilegur.
Fyrirkomulag mótsins er
þannig að félagar GR skila
inn skorkorti eftir níu holu leik
i hvert skiþti sem þeir leika.
Þetta hefst fjórum til fimm vik-
um fyrir úrslitadaginn. Ein-
ungis félagar í GR geta leikið
í firmakeppninni en fyrirtækin
sjálf senda ekki tiltekna kepp-
endur á sínum vegum í
keppnina. Þeir sem eiga á þil-
inu 18-20 bestu skorin keppa
síðan til úrslita. Að þessu
sinni kepptu 19 fyrirtæki. Til
keppni á úrslitadaginn mæta
meistaraflokkskylfingar,
draga sér fyrirtæki úr þessum
19 fyrirtækja hópi og leika
síðan fyrir það fyrirtæki sem
þeir draga. Þá eru leiknar 18
holur án forgjafar.
Meðfylgjandi mynd tók
Hildur Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs
Reykjavíkur, við verðlauna-
afhendinguna. Firmakeppnin,
sem nú var haldin, er sú 49.
sem GR stendur fyrir. Úrslit
keppninnar eru veigamikill
þáttur í starfi GR, sérstaklega
þegar líða tekur á haustiö og
fylgir úrslitunum mikil og góð
stemmning. □
Föstudaginn 24. septem-
ber stóðu Kvennaklúbb-
ur Reykjavíkur og út-
varpsstöðin FM 95,7 fyrir
konukvöldið á Hótel íslandi.
Um leið og blaöamaður Vik-
unnar vatt sér inn í anddyrið
bárust honum til eyrna hlátra-
sköll, skrækir og blístur. Þeg-
ar lengra var haldiö blöstu við
honum konur hvert sem litið
var, fagurbúnar og á öllum
aldri. Hvert borö var skipað og
gleðin skein úr hverju andliti.
Þarna ríkti eftirvænting og
spenna því að enginn vissi í
raun hvað í vændum var.
Örfáir karlmenn voru á
sveimi í salnum og þá fyrst og
fremst þjónar sem sáu um að
bera á borð mat og drykk. Á
dagskrá var síðan fjöldi
skemmtiatriöa sem eingöngu
voru í höndum karla. Kynnir-
inn, Heiðar Jónsson snyrtir,
fór á kostum, eins og hans er
von og vísa, þegar hann taldi
upp ýmsa kosti og lesti karla.
Meðal atriða var tískusýning
frá verslununum Vero Moda
og Jack og Jones, Halli og
Laddi tóku nokkra góða grín-
KVENNAI
Á VEGUM KVENNAKLÚ
42 VIKAN 20.TBL. 1993