Vikan - 07.10.1993, Blaðsíða 47
?
Eigandi pylsuvagns, sem staö-
settur er nálægt byggingu
Sameinuöu þjóöanna, festi á
vagninn spjald sem á var skrif-
aö stórum stöfum: „Ég er hlut-
laus!“ Arthur Golddbert, full-
trúi Bandaríkjanna hjá SP,
stóö eitt sinn í biöröö hjá
pylsuvagninum. Fyrir framan
hann stóö eldri kona. Hún
þekkti fulltrúann, sneri sér aö
honum og sagöi: „Ef þaö yröi
til þess að hressa upp á
heimsmálin megiö þér gjarna
vera á undan mér.“
Hver heimskingi getur séð aö
þetta er gott málverk, sagði lista-
verkasalinn.
- Já, en við erum nú ekki allir
heimskingjar.
María gamla var rúm hundrað
kíló og var í rannsókn hjá
lækninum.
- Hafið þér alltaf veriö svona
þung? spurði hann.
- Ónei, einu sinni vó ég nú
fimmtán merkur.
Albert Einstein var eitt sinn
spurður að því hvaða vopn hann
teldi að yrðu notuð í þriðju
heimsstyrjöldinni.
- Veit ekki um þá þriðju, svar-
aði þessi heimskunni eðlisfræð-
ingur. - Ég gæti giskað á þá
fjórðu.
- Hvaða vopn verða það?
-Grjót, var svarið.
Kennslukonan stígur upp í
strætisvagn og heilsar roskn-
um manni sem þar situr. Maö-
urinn horfir á konuna með
spurn í augum en henni finnst
hún kannast viö manninn þó
hún komi honum ekki fyrir sig.
Henni þykir óþægilegt aö maö-
urinn skuli horfa svona á hana
svo hún snýr sér aö honum:
Afsakið, eruö þér kannski faðir
eins af börnunum mínum?
Einn af nýliðunum kvartaði við
liðþjálfann yfir því að buxurnar,
sem honum væri úthlutað, væru
mörgum númerum of stórar.
- Það skiptir minnstu máii,
svaraði liðþjálfinn þurrlega. -
Mestu varðar að undir þeim slái
hjarta sem er heitt af föðurlands-
ást.
FINNDU 6 VILLUR
Finniö sex villur eöa fleiri á milli mynda
Eii^eqn^spj|o6 jeiuba '9 jeiuba í|J8a|eiai
g uunjil Jijdj'HS jíiueh 'f P|a |S|iæq jnpsiAI X 'UJeeq jn66sipuEH Z uæj !i|n|se66ni9 • j
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 20. apríl
Það er orðið tímabært að
þú farir að sjá í öðru Ijósi hvað það
er sem þú í raun og veru gefur og
þiggur frá öðrum. Ef þú ekki gerir
það er hætta á að þú farir á mis við
sitthvað í samskiptum þínum við
fólk.
NAUTIÐ
21. apríl-21. maí
Fullt tungl er á næstu grös-
um. Það mun gera þér kleift að til-
einka þér jákvæðar breytingar á
vinnubrögðum þínum í skóla eða á
vinnustað. Það verður væntanlega
til þess að þú takir notagildið fram
yfir aðra þætti. Margir leita hjá þér
aðstoðar vegna hagsýni þinnar og
skynsemi.
TVÍBURARNIR
22. maí-21. júní
Þú notar væntanlega
mestan tíma þinn til vinnu á næstu
dögum, ekki launanna vegna eða
hárra einkunna heldur miklu fremur
fyrir ánægjuna sem þú hefur af
störfum þínum um þessar mundir.
Sköpunargleði þín mun fá byr undir
báða vængi.
KRABBINN
22. júní - 23. júlí
Stríðni þinni er við brugðið
þessa dagana og viröist þú hafa
mikla þörf fyrir að fá útrás fyrir
hana. Af þessum sökum muntu
verða í mjög góðu skapi næstu
dagana og smita út frá þér. Leyfðu
barninu í þér að njóta sín, án þess
þó að strákskapurinn keyri úr hófi.
UÓNID
24. júlí - 23. ágúst
Fjölskyldan er þér mikil-
vægari nú en oft áður. Þó svo þú
kunnir að búa einn í herbergi úti í
bæ finnurðu þessa dagana mikla
þörf fyrir að vera með þínum nán-
ustu og að eiga einhvern að. Ýmis
persónuleg mál koma fram í dags-
Ijósið.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Hugsjónir þínar fara að
beinast æ meira að umhverfinu. í
því sambandi ferðu að velta því fyr-
ir þér hvort þú gætir lagt þitt af
mörkum, til dæmis með því að
leggja traktornum og dusta rykið af
orfinu og Ijánum, leggja bílnum og
hjóla eða að taka strætó í vinnuna
eða skólann.
VOGIN
24. september - 23. okt.
Það getur verið ágætt að
trúa á mátt sinn og megin. Þú mátt
samt ekki missa sjónar á rödd
skynseminnar og náttúrulögmálun-
um. Allir hafa sín takmörk, gáðu að
hvar þín liggja. Ef þú ferð að engu
óðslega og lætur skynsemina ráða
gæti þér orðið töluvert ágengt.
SPORÐDREKINN
24. október - 22. nóv.
Reikistjörnurnar þyrpast nú
smám saman inn í stjörnumerki
þitt, það er engu líkara en þú ætlir
að sanka þeim að þér. Það er mikil
spenna í loftinu og skemmtilegir
hlutir fara að gerast. Ekki afþakka
ábendingar frá fjölskyldu þinni
nema að vel yfirlögöu ráði.
BOGMAÐURINN
23. nóvember - 22. des.
Huldir heimar og dulhyggja
munu hafa áhrif á þig á næstunni
þó svo þú haldir því fram að þú sért
rækilega jarðbundinn og óhaggan-
legur. Náttúruöflin koma þér engu
að síður úr jafnvægi og þú kemst
að því að sjaldan er ein báran stök.
STEINGEITIN
23. desember - 20. jan.
Á næstu dögum munt þú
sækja í samkvæmi og viðburði þar
sem margt fólk kemur saman. Á-
stæðan er annars vegar sú að þú
hefur mikla þörf fyrir að sýna þig og
sjá aðra en ekki er þetta síður
vegna þess að þú hefur gaman af
að láta þig hverfa í fjöldann.
VATNSBERINN
21. janúar-20. febrúar
Þú ert um þessar mundir
upptekinn af því sem kallað er virð-
ing. Þú gerir þér Ijóst að virðing
skiptir þig meira máli en vinsældir.
Hvað sem því líður áttu eftir aö
upplifa það að þér líður vel innan
um fólk sem lítur upp til þín.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Fullt tungl er á næsta leiti
og þýðir meðal annars að nýr kafli
er að hefjast í ákveðnu sambandi
þínu við aðra manneskju. Þú verð-
ur opnari en áður fyrir nýjum hug-
myndum og næmari á það sem þú
gætir gert til þess að gleðja aðra.
20. TBL. 1993 VIKAN 47