Vikan


Vikan - 07.10.1993, Side 17

Vikan - 07.10.1993, Side 17
Leikritið Ferðalok eftir Steinunni Jóhannes- dóttur var frumsýnt á Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins þann 18. september síðastliðinn. Þetta er marg- slungið verk sem vísar til tvennra tíma og fer tveim sög- um fram í senn. Verkið gerist í nútimanum en skírskotar til síðustu mánaðanna ( lífi Jónasar Hallgrímssonar og sambands hans og Þóru Gunnarsdóttur. Forvitnilegur söguþráður sem ætti að höfða til þeirra sem unna Ijóðum Jónasar. Skemmtileg sýning. Sýningin hefur fengið afar misjafna dóma og vakið upp kröftug viðbrögð svo ekki sé meira sagt. Einn gagnrýnend- anna segir meðal annars: „Þegar um er að ræða efni sem er umlukið jafnmikilli sögulegri helgi og skáldskap- ur Jónasar Hallgrímssonar, flokkast það undir blindu og bíræfni af versta tagi að ráð- ast að því með þessu móti ... Það, sem úr sker um hversu herfilega leikritið geigar, er að persónusköpun er svo veik og yfirborðsleg að hvorki ást né örvænting persónanna, sorgir né gleði, snerta nokkra taug í hug manns.“ Höfundurinn, Steinunn Jó- hannesdóttir, var tekin tali eftir þriðju sýningu á Ferðalokum. Hún var svolítið spennt, en virtist ekki hafa látið mótlætið setja sig úr jafnvægi, - enda líka fengið mikla uppörvun og hvatningu. - Er verkið þitt bara mis- skilningur, Steinunn, ertu kannski bara að grínast með Jónas? Ég er búin að stúdera þennan karakter í mörg ár og tel mig þekkja hann býsna vel. Ég lít svo á að menn geri Jónasi ekki verri greiða en að hafa hann að- eins trónandi á stalli, sveip- aðan „sögulegri helgi“. Ef enginn má snerta á honum, þá deyr hann endanlega. - „Vonandi lærir höfundur- inn - og leikhúsið - á þessum mistökum“ segir í lok gagnrýni eins dagblaðanna eftir frum- sýninguna. Leikritið var æft mjög vel og ég er búin að fara í gegnum textann með mörgum velsjá- andi leikhúsmönnum bæði innlendum og erlendum. Verkið hafði verið dæmt þannig fyrir löngu að það gengi vel upp á leiksviði. Eru það mistök hjá íslensku leik- húsi að leggja til atlögu við ís- lenskt efni sem hefur bæði skírskotun til sögunnar og nú- tímans? Á ekki íslenskt leik- hús að fjalla um íslenskan veruleika og íslenska sögu? ER JÓNAS SLÍKUR MÚHAMEÐ? Maður veit aldrei hvar maður hefur gagnrýnendur, en ég vissi hvar ég hafði sýninguna, ég var mjög sátt við hana. Ég er stolt af þessari sýningu. Mér finnst þetta vera nútíma- legt, gott leikhús. Hvað gagn- rýnendum finnst veit maður aldrei en ég gat ekki fundiö annað en viðbrögð áhorfenda á frumsýningunni væru yfirleitt mjög jákvæð. Ég átti ekki von á þessu reiðikasti sem einn gagnrýnendanna kom eftir- minnilega á framfæri. Það kom á óvart miðað við það hvernig sýningunni var al- mennt tekið. Ég skil það svo sem að ef einhvern fer inn á eitthvert svið sem er öðrum heilagt, þá verði sá síðar- nefndi sár og reiður. Maður kemur ef til vill við kviku sem einhverjir eru ekki tilbúnir að láta aðra snerta. Ég veit hversu sterkar til- finningar margir hafa til Jónasar Hallgrímssonar og því gerði ég mér Ijóst að ég væri að fara inn á sprengju- svæði. Mér finnst það vera réttur og skylda rithöfundar að fara þangað sem eitthvað er viðkvæmt, þeir eiga að fást við hluti sem skipta fólk ein- hverju máli. Við lifum í frjálsu samfélagi, hér er ekki klerka- veldi eins og í íran þar sem hægt er að dæma menn jafn- vel til dauða fyrir að segja eitt- hvað Ijótt um Múhameð. Með- al klerkaveldisins í bók- menntageiranum kann að vera að Jónas sé slíkur Mú- hameð að enginn megi snerta á honum og allra síst einhver kona sem elskar hann. Þeir vilja kannski fá að elska hann einir og ráða því hvernig hann er elskaður. Slíkt get ég ekki tekið gilt. Ég verð þess vegna bara að taka því ef einhver verður svo reiður að hann gefur mér utan undir. Dómarnir voru alls ekki allir vondir, það var líka fjallað um sýninguna reiðilaust. Leikar- arnir hafa fengið einkunnir á borð við þær að þeir hafi unn- ið stóra leiksigra. Gera þeir það ef persónusköpun er ónýt? Menn hafa líka sagt að textinn sé fallegur. Auðvitað er maður missáttur við þá gagnrýni sem maður fær. Slíkt er eðlilegt. Hitt er ekki eðlilegt að gagnrýnandi sé að slá sjálfan sig til riddara á kostnað þess verks sem hann er að fjalla um, setja sjálfan sig í stjörnuhlutverkið, þannig að allir búist við því að hann segi eitthvað andstyggilegt og ef hann ekki gerir það þá hafi hann brugðist. Það eina sem ég myndi harma væri að fólk léti gagnrýnendur segja sér of mikið og vogaði sér ekki að fara og sjá sýninguna. Von mín er sú að hér sé um að ræða leið til Jónasar fyrir nú- tímafólk, ég vil ekki að hann rykfalli eða steinrenni. Ég held að hann geti lifað ef við höld- um tengslunum við persónu hans auk Ijóðanna. Tónskáld hafa varla þorað að snerta Ijóð á borð við Ferðalok, kannski vegna þess að það er búið að gera þvílíkan Mú- 'hameð úr honum, hann er að verða algjörlega ómennskur, aðeins hið fullkomna skáld og enginn má tala um það í al- vöru hvers konar maður hann var að ýmissa áliti - óalandi og óferjandi og ekki í húsum hæfur oft á tíðum. Ég held að karakterinn Jónas í verki mínu sé náskyldur Jónasi Hall- grímssyni. BRÉFASAFNIÐ VAR OPINBERUN - Hvað varð til þess að þú fórst að velta ævi Jónasar fyr- irþér? Það voru fyrst og fremst Kvæðafylgsni Hannesar Pét- urssonar sem vöktu forvitni mína. Þar skyggnist hann á bak við nokkur kvæði, kannar tilurð þeirra og rekur til ákveð- inna atburða í lífi Jónasar. Þetta kveikti í mér á sínum tíma. Þá byrjaði ég að pæla í sögu Jónasar. Eg fór að hugsa um þessa konu, Þóru, sem Jónas var sagður yrkja um í Ferðalokum. Um svipað leyti eignaðist ég bréfasafn hans og það var mér mjög mikil opinberun. Ég sá nýja hlið á manninum sem orti þessi Ijóð sem við þekkjum svo vel. Ég sá aðra hlið á honum. Bréfin eru ekki fín- pússuð eins og Ijóðin sem hann lætur frá sér fara. Þau eru af ýmsu tagi, til embættis- manna, umsóknir um styrki og stöður, bréf um lifsins gagn og nauðsynjar og loks bréf sem hann skrifar til kunningja sinna og vina, sem eru að berjast með honum í pólitík- inni, og lýsingar á því hvernig honum líður og hvað hann er að hugsa. Maður getur fylgt ferli þessa manns frá því hann byrjar að ferðast um ísland sem stórhuga og bjartsýnn KJAFTSHOGG AFTRA MÉR EKKI - SEGIR STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR, HÖFUNDUR HINS UMDEILDA LEIKRITS FERÐALOKA 20.TBL. 1993 VIKAN 17 TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.