Vikan


Vikan - 07.10.1993, Blaðsíða 32

Vikan - 07.10.1993, Blaðsíða 32
VIÐTAL: SVANUR VALGEIRSSON/ UÓSM.: GOLLI Jón Hlöðver Áskelsson, tónlistarmaður og tón- skáld, var önnum kaf- inn við útsetningar þegar blaðamaður Vikunnar heim- sótti hann á dögunum. Hér var augjóslega atvinnumaður að verki og Ijóst að ekki yrði staðið upp fyrr en allt væri orðið eins gott og best yrði á kosið. Vinnuaðstaðan er í litlu herbergi og þar vinnur hann við tölvu að útsetningum og tónsmíðum. Jón hefur mikið að gera og lætur engan bilbug á sér finna þótt hann hafi orðið fyrir áfalli fyrir nokkrum árum og sé nú 75 prósent öryrki. Hann er auðheyrilega bjartsýnn maður og segist líta lífið allt öðrum augum eftir að hann fatlaðist. Reynsla hans hefur aukið honum bjartsýni og hann seg- ir ýmislegt sem hann leit á sem vandamál hér áður fyrr ekki vera vandamál núna. FYRST GAGGINN - SVO BARNASKÓLINN Jón Hlöðver er fæddur og uppalinn á Akureyri; fæddist í Gagnfræðaskólanum á Akur- eyri 4. júní 1945, ólst þar upp til sex ára aldurs en fluttist þá í Þingvallastræti 34 þar sem hann bjó næstu fjórtán árin. Hann hlær og segist hafa gaman af því að segja fólki frá því að fyrst hafi hann gengið í gagnfræðaskóla en síðar orðið að gera sér að góðu að ganga í barnaskóla. „Pabbi, Áskell Jónsson frá Mýri, var húsvörður og tón- listarkennari við Gagnfræða- skólann og við bjuggum þar fyrstu árin; mamma, Sigur- björg Hlöðversdóttir frá Djúpavogi, pabbi og börnin, þrjú til að byrja með en síðar bættust fjögur í hópinn. Á þessum tíma skipti miklu máli hvar menn bjuggu í bænum; hvort menn voru brekkusnigl- ar, innbæingar, þorparar eða hvað þetta heitir nú allt og rígurinn milli hverfanna var mikill." Jón hefur augljóslega nokkra unun af því að rifja upp æskuárin á Akureyri og segir krakka á þeim tíma hafa útfært í leikjum hasarinn sem nútímabörn sjá í sjón- varpinu. Hann segir menn hafa einlægt verið að safna liði og jafnan þóst vera í mik- illi hættu vegna óvina úr öðr- um hverfum sem birst gátu á hverri stundu. Hann segir Ak- ureyri hafa breyst ótrúlega mikið á þessum árum. Æsku- heimili hans var á bæjar- mörkum í þá daga og rétt fyr- ir ofan það var Grísaból og búpeningur á beit. í nágrenn- inu var fullt af hálfbyggðum húsum, draumaleiksvæði unglinga þess tíma. „Mer leiö eins og jöröin væri aö byrja aö brotna undan fótum mér.“ 32 VIKAN 20. TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.