Vikan


Vikan - 07.10.1993, Page 39

Vikan - 07.10.1993, Page 39
ekki miklar gáfur, var þrungið áhyggjum og óvissu. „Þetta andatrúarmál versnar sífellt." Ég spurði hann hissa hvað hann ætti við með því. Þá sagði Georg mér alla söguna, hvernig Símon Clode hafði smám saman fengið áhuga á andatrú og hvernig hann hafði af til- viljun hitt bandarískan miðil, frú Eurydice Spragg. Georg hikaði ekki við að kalla þessa konu helberan svindlara. Hún hafði náð miklu valdi yfir Símoni og varði svo til öllum tíma sínum í húsi hans. Þar hélt hún marga miðils- fundi þar sem andi Chris birtist afanum. Ég vil koma því strax á framfæri að ég er ekki einn þeirra sem gera grín að andatrú. Ef við vegum og metum hlutlaust þær sannanir sem eru andatrú í hag þá er margt sem hvorki er hægt að flokka undir svik né ýta til hliðar. Það eru vissar sannanir sem ekki er auðvelt að andmæla. Hins vegar er mjög auðvelt að gera sér þetta að féþúfu á óheiðarlegan hátt og eftir því sem Georg Clode sagði mér meira frá frú Eurydice Spragg varð ég þess fullviss að Símon væri ekki í góðum höndum og frú Spragg væri líklega svikari af verstu tegund. Gamli maðurinn var mjög kænn að mörgu leyti en þegar látna sonardóttirin var annars vegar var auðvelt að notfæra sér trúgirni hans. Ég velti þessu fyrir mér og það olli mér sí- fellt meiri áhyggjum. Mór þótti vænt um Maríu og Georg og ég gerði mér grein fyrir því að þau völd sem frú Spragg hafði yfir frænda þeirra gætu valdið vandræðum í framtíðinni. Við fyrsta tækifæri gerði ég mér erindi til Símonar Clode. Þar var frú Spragg í heim- sókn og að því er virtist var hún vinsamlegur og virtur gestur. Mínar verstu hugmyndir um hana reyndust á rökum reistar. Hún var þrek- in, miðaldra kona, klædd áberandi fötum. Hún tönnlaðist sífellt á setningum eins og „Okkar kæru ástvinir fyrir handan“. Eiginmaður hennar, Absalom Sþragg, var einnig í húsinu. Hann var hár og grannur, með þunglyndislegan andlitssvip og mjög flóttalegt augnaráð. Við fyrsta tækifæri reyndi ég að fá skoðanir Símonar á málinu. Hann var mjög áhugasamur og taldi frú Eurydice Spragg hreint dásamlega - hún hefði verið himnasending! Peningar sagði hann að skiptu hana engu máli heldur væri gleðin við að hjálpa mæddu hjarta næg borgun. Símon var næstum farinn að líta á frú Spragg sem dóttur sína. Síðan fór hann út í smáatriðin, hvernig hann hafði heyrt Chris tala og hve vel henni liði hjá foreldrum sínum. Hann sagði mér frá öðrum atriðum sem áttu að hafa komið að handan og út frá því litla sem ég mundi eftir Chris þótti mér þau heldur ólíkleg. Hún átti að hafa lagt áherslu á hversu vel foreldrum hennar líkaði við þessa elskulegu frú Sþragg. „En þú trúir þessu víst ekki,“ sagði hann við mig. „Þú gerir bara grín að þessu, Petherick.“ „Nei, það geri ég ekki, langt frá því. Sumir þeirra sem hafa skrifað um þessi málefni eru menn sem ég trúi hiklaust og ég myndi sam- þykkja hvaða miðil sem væri, hefðu þeir mælt með honum. Ég býst við að frú Spragg hafi góð meðmæli?" Símon fór að tína til allt það dásamlega við frú Spragg, þessa himnasendingu. Hann hafði hitt hana af tilviljun í sumarfrfi við sjóinn þar sem hann hafði dvalið í tvo mánuði - einskær hending og afleiðingarnar voru dásamlegar. Þegar ég fór heim á leið var ég ekki SAKAMÁLA ánægður. Allt það versta sem ég hafði gert mér í hugarlund átti við rök að styðjast - en hvað átti ég að gera? Eftir að hafa lagt höfuð- ið í bleyti skrifaði ég Philip Garrod en eins og ég minntist á áðan þá giftist hann Grace, elstu systurinni sem Símon Clode tók að sér eftir lát bróður síns. Ég lagði málið fyrir hann en gætti tungu minnar. Ég benti á hættuna sem fylgdi því að slík kona hefði svo mikil áhrif á huga gamals manns. Auk þess stakk ég upp á því að reynt væri að kynna Símon Clode fyrir heiðarlegum miðlum. Eg taldi að Philip ætti ekki erfitt með að koma þessu í kring. Garrod var ekki lengi að taka málin í sínar hendur. Hann gerði sér grein fyrir því að Sfmon Clode var ekki mjög heilsuhraustur og þar sem Garrod var hagsýnn maður hafði hann í hyggju að láta hvorki eiginkonu sína né systkini hennar glata þeim arfi sem þau áttu rétt á. Hann heimsótti Símon ásamt frægum gesti, engum öðrum en Longman prófessor. Longman var vísindamaður en bar þó fulla virðingu fyrir andatrúnni. Hann var ekki bara stórsnjall vísindamaður heldur mjög heiðar- legur. Heimsóknin gekk ekki mjög vel. Svo virtist sem Longman hefði ekki sagt mikið á meðan á dvölinni stóð. Tveir miðilsfundir voru haldnir en ég veit ekki undir hvaða kringumstæðum. BLÁA UMSLAGIÐ Sögumaður: Petherick: Lögmaður Áheyrendur: Frökert Marple: Snjöll gömul kona Joyce Lempriére: Listamaður Raymond West: Frændi fröken Marple Sir Henry Clithering: Heimsmaður Pender: Læknir Persónur í frásögn Pethericks: Simon Clode: Ríkur skjólstæðingur Pethericks Chris Clode: Sonardóttir Símonar Grace Clode: Bróðurdóttir Símonar Maria Clode: Bróðurdóttir Símonar Georg Clode: Bróðursonur Símonar Philip Garrod: Lyfjafræðingur og eiginmaður Grace. Eurydice Spragg: Dularfullur bandarískur miðill Absalom Spragg: Eiginmaður miðilsins Longman prólessor: Virtur vísindamaður Emma Gaunt: Þjónustustúlka Símonar Lucy David: Eldabuska hjá Símoni Longman var alveg hlutlaus á meðan hann var inni í húsinu en síðar skrifaði hann Philip Garrod bréf. Þar játaði hann að sér hefði ekki tekist að standa frú Spragg að verki við svik en þó væri það hans álit að eitthvað væri gruggugt við þetta. Hann sagði jafnframt að Philip mætti sýna Símoni bréfið ef honum þætti það við hæfi og hann lagði til að hann kæmi Símoni Clode sjálfur í samband við heiðarlegan miðil. Philip Garrod fór beinustu leið til gamla mannsins með bréfið og honum til mikillar undrunar brást Símon hinn versti við og sagði þetta vera samantekin ráð til að sverta mann- orð frú Spragg, sem væri dýrlingur sem alltaf væri verið að reyna að rægja! Hún hafði víst sagt honum hve öfunduð hún væri. Símon benti á að Longman neyddist til að segja að hann hefði ekki tekið eftir neinum svikum. Frú Spragg hefði komið inn í líf hans þegar útlitið var hvað svartast og hjálpað honum og hugg- að hann. Hann var tilbúinn til þess að taka málstað hennar, jafnvel þótt það þýddi rifrildi við alla í fjölskyldunni. Hún skipti hann meira máli en nokkur annar í heiminum. Philip Garrod var kurteislega vísað út en í kjölfar þess að Símon æsti sig upp versnaði heilsa hans ótvírætt. Síðasta mánuðinn hafði hann legið í rúminu mest allan daginn og nú leit út fyrir að hann þyrfti að liggja ósjálfbjarga það sem eftir væri. Tveim dögum eftir rifrildið við Philip fékk ég boð um að hitta Símon Clode og flýtti mér til hans. Þó ég sé ekki lærður læknir fór það ekki fram hjá mér að hann var mjög veikur. Hann allt að því stóð á öndinni. „Þetta eru endalokin," sagði hann við mig. „Ég finn það. Ekki deila við mig, Petherick. En áður en ég dey verð ég að uppfylla þær skuldbindingar sem ég hef við þá persónu sem hefur gert meira fyrir mig en nokkur ann- ar í heiminum. Ég vil gera nýja erfðaskrá." „Vissulega," sagði ég. „Ef þú vilt segja mér innihaldið skal ég gera uppkast og senda þér það.“ „Það dugar ekki,“ sagði hann. „Skilurðu það ekki - ef til vill lifi ég ekki af nóttina. Hér hef ég skrifað niður það sem ég vil að verði gert.“ Hann leitaði undir koddanum sínum. „Þú get- ur sagt mér hvort það er í lagi.“ Hann náði í blað og á það höfðu nokkur orð verið hripuð með blýanti. Fyrirmælin voru mjög einföld. Frændur hans og frænka fengu 5000 pund hvert og afgangurinn af gífurlegum auðæfum hans skyldi renna til frú Eurydice Spragg „með þakklæti og aðdáun". Mér líkaði þetta illa en ég gat ekkert gert. Það var ekki hægt að bera við að hann væri ekki heill á geðsmunum, þvert á móti var hann eins skýr og við hin. Hann bað um tvær manneskjur úr þjónustu- liðinu og þær komu undir eins. Þjónustustúlk- an, Emma Gaunt, var hávaxin, miðaldra kona sem hafði unnið þar í mörg ár og hjúkrað Símóni Clode vel. Ásamt henni kom elda- buskan, íturvaxin kona um þrítugt. Símon leit á þær báðar undan úfnum augabrúnunum. „Ég vil að þið verðið vottar að erfðaskránni. Emma, náðu í blekpennann minn.“ Emma hlýddi og fór að skrifborðinu. „Ekki í vinstri skúffunni, stúlka góð,“ sagði Símon gamli pirraður. „Veistu ekki að hann er hægra megin.“ „Nei, hann er hér,“ sagði Emma og lyfti pennanum upp. 20.TBL. 1993 VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.