Vikan


Vikan - 07.10.1993, Side 59

Vikan - 07.10.1993, Side 59
◄ Skammt norður af Copiapo tekur Atacama- eyði- mörkin á sig marg- breyti- legar myndir. ▼ Ýmsir hafa týnt lífinu í óblíðri Atacama- eyði- mörkinni. tveggja hæða timburhúsi að- eins neðar í götunni. Þar djammandi fólk og dansaði á svölum og þaki við léttan og þéttan raggietakt meistara Marley. Við Riff gleymdum okkur meðal danshópanna á götum úti og þegar við rönkuð- um við okkur var ekki hlaupið að því sökum mannfjölda að komast f tæka tíð inn í áður- nefnt djammhús. Því var ekki um annað að ræða en þramma niður hliðarstræti, klifra þar upp á nærliggjandi húsþak og stökkva síðan með tilheyrandi tilhlaupi yfir í mann- ar og þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir virtist enginn möguleiki á varahlutum né viðgerð. Því var ekki annað að gera en að leita sér að nýrri vél. Ég spurði gistihúseigandann til vegar en hann kallaði á gullfallega suð- ur-ameríska stúlku sem talaði sæmilega ensku og úr varð að seinnipart þess sama dags varð ég samferða Sjass á úti- markað í útjaðri borgar þar sem flest var að finna. Eftir að hafa síðan skoðað allnokkrar vélar og fengið til- finningu fyrir verði fórum við Sjass að prútta og að hálftíma liðnum stóð ég með allt að því nýja vél í höndunum fyrir að- eins einn þriðja af gangverði enda runnu tvær grímur á sölumanninn þegar ég opnaði vélina því þar var að finna hálf- átekna filmu. Kannski var ekki við öðru að búast á sjóræn- ingjamarkaði sem þessum. Úr varð að við Sjass eydd- um kvöldinu saman og kom þá í Ijós að hún er blönduð, á móður frá Chile en írskan föð- ur. Það er skemmst frá því að segja að við eyddum töluverð- um tíma saman á þvælingi um höfuðborgina og það var sér- stakur tími með einstakri stúlku. Þegar ég hitti svo þján- ingabræður mína í ferða- mennskunni voru þeir ósparir á háðsglósurnar, bentu mér til að mynda á að ísmaðurinn héldi heldur litlum kulda þegar ónefnd suður-amerísk eyði- merkurrós væri annars vegar. Vikan á milli jóla og nýárs fuðraði upp og upp úr þurru var nýtt ár farið að glotta fram- an í okkur. Fyrri hluta gamlárs- dags eyddi ég með Sjass og fjölskyldu en þegar sól tók að skríða niður í hitamistrið hvarf ég á fund léttkenndra félag- anna enda löngu kominn tími til að sprella út það sem eftir lifði árs. Það leyndi sér hvergi að flestir voru sammála um að áramótagleðin yrði hvað villt- ust í margfrægu næturhverfi Santiago en það gekk á ýmsu þegar leigja átti farartæki til að komast í þann borgarhlutann. Fæstir leigubílstjórar vildu fara þangað nema þá kannski fyrir tvöfalt verð. Raunar virðist slíkt bókstaflega eins og óskráð lög hjá þeirri stétt í Suður-Ameríku þegar ferðamenn eru annars vegar. Á leiðarenda hittum við all- nokkra verulega hressa Ástrali og var okkur umsvifalaust boð- ið til vínsmökkunar á nærliggj- andi veitingastað. Þar gafst okkur færi á að smakka þessi líka bragðgóðu og vel fljótandi rauð- og hvítvín. Ekki tók okk- ur heldur nema rúmlega tvo tíma að fá útskrift í raddbeit- ingu og vínsmökkun enda Ástralir mun lunknari við bjór- drykkju en vínmenningu. ÁRAMÓTASVEIFLA Á ÞAKINU Loks þegar út ( mannfjöldann kom tvístaðist hópurinn að mestu en flestir ætluðu að hitt- ast um miðnætti í gömlu ◄ Alhvít saltauónin lék flestar okkar spjarir svo grátt aö þær voru helst nýti- legar á eldinn. þröngina á áðurnefndum svöl- um. Þetta heppnaðist vonum framar og skilaði okkur í villtan vinahóp rétt um miðnætti. Á slaginu tólf var glösum lyft til heiðurs nýliðinu ári og eftir léttan og laggóðan söng var dansað um allt hús, uppi á þaki, borðum og jafnvel á loft- sperrunum. Þetta var hreint ótrúlegt og það var ekki fyrr en í morgunsárið að mig tók að syfja. Þá vippaði ég mér upp á þak og lagði mig undir hýrum geislum morgunsólarinnar. Þremur tímum seinna vaknaði ég við að Oki kom með eitt- hvað matarkyns og þó svo að farið væri að nálgast hádegi á nýju ár var tónlistin ennþá á fullum styrk og liðið í léttri sveiflu. Mjög hafði þó fjölgað þeim sem Ieituðu hvíldar á sól- bökuðu þakinu. Enn og aftur sannaðist að það er ævinlega jafnóvænt og fallegt að detta inn í tilurð til- finninga í eins heitu loftslagi og þarna ríkir. Því var Sjass og þá um leið Santiago kvödd með meiri trega en hollt þykir að viðurkenna. □ 20.TBL. 1993 VIKAN 59

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.