Vikan - 07.10.1993, Síða 62
FEMINA
ILMVATN
FRÁ FERRE1TI
NÝR FARÐI FRÁ REPÉCHAGE
Nýkominn er á markaðinn nýr farði frá
Repéchage - Perfect Skin.
Grunnefnið í honum er unnið úr
þangi og er hann því ríkur af amínósýrum,
steinefnum og vítamínum sem næra húðina
og gefa henni raka, auk þess sem þau verja
húðina fyrir skaðlegum útfjólubláum geislum
sólar. Perfect Skin hylur vel allar misfellur á
húðinni og gefur henni matta og fallega á-
ferð. Þar eð farðinn er fitulaus stíflar hann
ekki húðholurnar. Hann hentar öllum húð-
gerðum og fæst í sjö litum.
Repéchage hefur einnig sent á markaðinn
nýtt húðsnyrtiefni, C-Serum. Það er unnið úr
þangi og C-vítamini. C-Serum er einnig auð-
ugt af amínósýrum, vítamínum og snefilefn-
um sem næra húðina. Það gefur húð, sem
látið hefur á sjá vegna umhverfisáhrifa og streitu, aftur líf og frískleika.
Heildsölu og smásölu Repéchage annast Snyrtistofan N.N. í Borgarkringlunni.
Isíðasta mánuði kom á
markaðinn hér á landi ilm-
vatnið FEMINA. Það er
hannað af konu fyrir konur -
Alberfu Ferretti tískuhönnuði
sem hefur átt mikilli velgengni
að fagna í tískuheiminum að
undanförnu. Femina ilmurinn
er sagður leika sér að and-
stæðum mismunandi blóma-
ilms. Grunntónninn kemur
meðal annars frá mandarínu,
glóaldini, vatnsmelónu og
bergfléttu. Meginkeimurinn á
hins vegar rætur sínar að
rekja til fjólu, bláregns og
jasmínu.
Flaskan er afar sérstök að
gerð og lögun, tvílit með glær-
um, spírallaga tappa.
Femina fæst í 50 og 100 ml
flöskum.
INSENSE
FRÁ
GIVENCHY
Nýr herrailmur frá
Givenchy í París er
nú kominn á markað-
inn hér á landi. Ilmurinn er
mildur og á rætur sínar að
rekja til blóma og viðar. In-
sensé ilmurinn er sagður
henta vel þeim herrum sem
eru lífsglaðir og bjartsýnir og
njóta þess að lifa lífinu lifandi.
*
Ihaustlínunni frá Guerlain er boðið upp á augnskugga í sex
nýjum litbrigðum og naglalökk og varaliti i tveimur nýjum
litum - dimmrauðum og appelsínugulum. Ennfremur bæt-
ast við naglalökkin tveir litir í mildum föl-
bleikum tónum sem henta
einkar vel til notkun-
ar i erli dagsins.
HAUST-
LITIRNIR
FRÁ
GIVENCHY
W
I
Givenchy haustlínunni er j
boðið upp á tvo nýja vara-
liti, varalitsblýant og fimm
nýja augnskugga.
Annars vegar er um að-
ræða varalit nr. 23, sem er1
bleikbrúnn daglitur, og nr. 24,
sem er rauðbrúnn kvöldlitur.
Varalitsblýanturinn passar
siðan við marga varaliti. Nýju
augnskuggarnir eru í hinu vin-
sæla „Givenchy prisma" formi
sem gerir kleift að blanda
saman fimm litum.
□ □
□ □
REVLON
ABSOLUTES
HÚÐSNYRTI-
VÖRUR
Revlon fyrirtækið hefur
nú sett á markaðinn
háþróaðar húðsnyrti-
vörur. Þessi nýja kynslóð
býður upp á einstæða virkni
þróaðra efnasambanda að
sögn framleiðanda, hann
fullyrðir jafnframt að Absol-
utes vörurnar bjóði konum
upp á raunverulegar lausnir
á raunverulegum vanda-
málum húðarinnar.
Þetta mun þó ekki þýða
að notkun Revlon Absolutes
krefjist flókinna og tíma-
frekra aðgerða. Vörurnar
eru þvert á móti einfaldar
og auðveldar í notkun.
Revlon Absolutes uppfyll-
ir grunnþarfir húðarinnar
eins og hreinsun og frískun
auk þess að sjá henni fyrir
raka og næringu. Absolutes
vörurnar byggja upp húð-
ina, örva starfsemi hennar
og laða fram hámarks ár-
angur varðandi fegurð og
frískleika.
í Absolutes línunni er
boðið upp á hreinsimjólk,
djúphreinsikrem, augn-
hreinsilög og andlitsvatn og
tvenns konar rakakrem.