Vikan - 20.09.1995, Page 15
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
dæmis ómöguleg við að
skrifa, ég get varla sett sam-
an sendibréf. En ég er ágæt
við að lemja niður veggi og
leggja flísar. Og óg reyni að
vinna eins mikia líkamlega
vinnu og ég get því að þá
get ég hvílt hugann á með-
an. Og ég fyllist stolti ef ein-
hver kemur í heimsókn og
segir: „Vá, æðislegt parketl",
því að ég lagði það sjálf. En
ég held ekki að ég sé yfir-
þyrmandi. Auk þess eru
flestir vinir mínir lagnir við að
handleika hamar og sög.
Svo að menn þurfa að
hafa vit á verkfærum til að
eiga séns f þig?
Helst. En ef svo er ekki vil
ég gjarnan að menn hafi vit
á einhverju sem ég veit ekk-
ert um - til dæmis snyrtivör-
um!
FÓLK Á AÐ VERA
RAUN VERULEGT -
Þegar þú lékst í „Demoli-
tion Man“ var útliti þínu
breytt algerlega, f anda
framtfðartfmasetningar
myndarinnar.
Mér fannst það frábært -
mjög frelsandi. Kunningi
minn hafði sagt við mig að
ég væri eins og Stevie Nicks
(úr Fleetwood Mac) með
þetta síða, þykka hár svo
mér fannst að kannski væri
bara fínt að breyta til. Og lét
klippa það knallstutt. Mér
fannst líf mitt taka stakka-
skiptum; ég keypti haug af
nýjum fötum- og eftir viku
var ég farin að hata stutta
hárið. Það passaði einhvern
veginn ekki við mig.
Hvað passar við þig?
Hárgreiðsla sem þarf ekki
alltaf að vera að dedúa við
og sem getur litið hirðuleys-
islega út. Ég reyni að finna
einhverja málamiðlun milli
þess að vera „vel greidd“ og
„drusluleg". í kvikmyndum á
hárið á manni að vera eins
og á venjulegu fólki og and-
litið sömuleiðis. Ég þoli það
ekki þegar fólk hefur verið í
heiftarlegu keliríi á tjaldinu
og málningin haggast ekki.
Svoleiðis kemur aldrei fyrir
mig, það klessist alltaf allt.
Hvað varstu að hugsa
þegar verið var að kvik-
mynda atriðið í „Speed“ þar
sem þið Keanu Reeves
hangið undir rútunni?
Vandamálið var að kjóllinn
minn vildi í sífellu flækjast
upp fyrir hausinn á mér! Við
reyndum að nota límband en
ekkert virkaði og ég æpti á
Keanu: „Viltu halda kjólnum
mínum niðri!“ Það var það
eina sem ég hugsaði um; að
vera ekki með allt upp um
mig.
SALSA OG
SJÁLFSTRAUST
Það hefur mikið verið gert
úr ímynd þinni sem „hvers-
dagleg manneskja". Held-
urðu að aðdáendur þínir
muni halda áfram að sjá þig
sem slíka nú þegar frægðar-
sól þfn rfs æ hærra?
Ég held að ég muni alltaf
geta leikið konuna úti á götu
ef mér sýnist svo. Sumt fólk
er þannig að maður hugsar
ósjálfrátt: „Þetta er stjarna.
Það getur ekkert að því gert,
annaðhvort er maður svo-
leiðis eða ekki. Mér finnst
fólk ekki líta á mig á þennan
hátt. Stundum finnst mér ég
samt vera æðislega flott og
glæsileg og þá geri ég sem
mest úr því - fer út í búð,
labba um göturnar og læt
glápa á mig. Og ef einhver
flautar á eftir mér þá sný ég
mér við og segi elskulega:
„Þakka þér fyrir!“
Hvenær líður þér best?
Hvenær ertu ánægðust með
sjálfa þig?
Mér finnst gaman að fara í
næturklúbba og dansa, sér-
staklega salsa og suður-
ameriska dansa. Þá finnst
mér ég vera kynæsandi - þá
veit ég að ég er kynæsandi.
Þegar ég dansa salsa kemur
allt önnur Sandra í Ijós. Þá
klæði ég mig í stutt þils, háa
hæla og þrönga blússu og
sleppi mér alveg.
Heldurðu að þú þyrftir að
vera svoleiðis allan daginn til
að öðlast fullkomið sjálfs-
traust eða nægir að vera
svona öðru hverju?
Uss, ég veit aldrei hvert
ég er að stefna. Suma daga
er allt á hreinu og ég er
ánægð með sjálfa mig. Þá
skelli ég mér út í eitthvað
verkefni þangað til ég verð
leið á því og byrja á ein-
hverju öðru. Aðra daga er ég
algerlega sljó og stundum
fer ég nærri því að valda
stórslysum á vegum úti af
því að ég er einhvern veginn
úr sambandi við lífið og til-
veruna. En ég segi bara við
sjálfa mig: „Þetta er það sem
menn kalla að vera til og ég
ætla bara að gera mitt besta
til að standa mig í stykkinu!“
■ □
i
VELKOMINA
SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR
HRAUNBÆ 102 - SIMI 587 9310
AVAXTASYRUMEÐFERÐ
Á SÉRSTÖKU KYNNINGARVERÐI
l meðferðartími í viku
í 4 skipti og krem til heimanotkunar
verð kr. 10.000,-
SILKINEGLUR • TRIMM FORM • GERUM GÖT í EYRU
1 síMtssnm
rnnsi
mm- * Hfaci&muwFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK
s NJLi-Ll
S T 0 F A N
• N • N •
Borgarkringlunni, 4. hæð,
norðurturn, sími 568 5535
ANDLITSBOÐ/
HÚÐHREINSUN
M.D. Formulations ávaxtasýrumeðferð,
áhrifamesta húðmeðferðin
sem kostur er á í dag.
Handsnyrting - Fótsnyrting
Vaxtameðferð - litun o.fl.
Gjafakort - góð gjöf fyrir alla
HARSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 <p 562 6162
ANDLITSBÖÐ, HUÐHREINSUN, LITUN,
FÓTSNYRTING, HANDSNYRTING,
DAG- OG KVÖLDSNYRTING,
VAXMEÐFERÐ
30-40% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM NÆRFÖTUM
VERSLUNARINNAR TIL 15. OKT.
Snyrtistofan Sírund
snyrting • verstun • Cjós
Cjnzmtúni 1 • 200 ‘Kópavogur • Sími 554 4025
9. TBL. 1995 VIKAN 15
VIÐSKIPTAKORT