Vikan - 20.09.1995, Blaðsíða 50
LÆKNAVÍSINDI
TEXTI: HALLA SVERRISDOniR
Lyfjafræðin hefur gengið
í gegnum mörg og erfið
breytingatímabil en
þeir eru eflaust margir sem
reka upp stór augu þegar
þeir frétta að læknar séu í
einstaka tilfellum farnir að
beita á ný lyfinu Thalidomi-
de. Fá lyf hafa á sér and-
styggilegra orð en einmitt
það.
Bandaríska konan Beckie
Bell þjáðist um langt skeið af
afar sjaldgæfum sjúkdómi er
nefníst Bechets-sýki. Þetta
er sýking í munni sem grefur
bókstaflega sundur munn-
Mynd frá því
um 1970
sem sýnir
eitt fórnar-
lamba Thali-
domide
skrifa með
fætinum þar
eö hand-
leggina
vantar.
holdið og vefina í kinnunum,
jafnvel í hálsi líka. „Það var
hægt að lyfta upp efri vörinni
á mér og sjá beint upp í enn-
isholumar," segir Beckie.
Hún var komin á barm ör-
væntingar og gat ekki lengur
nærst sjálf þegar hún frétti af
því að Thalidomide gæti
SNÝRAFIUR
LYFIÐ SKELFILEGA REYNIST
GETA GERT GAGN LÍKA
komið að gagni. Hún sár-
bændi lækninn sinn um að
útvega sér lyfið og eftir að-
eins rúman sólarhring hafði
undrið gerst - sárin voru far-
in að gróa. „Það erfiðasta
var að útvega lyfið,“ segir
Beckie. Það skyldi engan
undra sem þekkir sögu þess.
„THALIDOMIDE-
BÖRNIN"
Ástæðuna þekkja þeir
sem hafa aldur til að muna
morðið á Kennedy forseta. Á
seinni hluta sjötta áratugar-
ins og í byrjun þess sjöunda
notuðu milljónir manna
Thalidomide sem róandi lyf.
m
Á sjöunda áratugnum var Thalidomide bannað og lyfið tekið af
markaði vegna þess að það orsakaði skelfilega fæðingargalla.
Nú hafa sérfræðingar uppgötvað að lyfið getur gert mikið gagn:
• Það græðir sár af völdum holdsveki.
• Það virðist draga úr sýkingarhættu í kjölfar beinmergs-
ígræðslu.
• Það virðist draga mjög úr tæringu og þyngdartapi hjá eyðni-
og berklasjúklingum.
• Það gæti komið í veg fyrir fjölgun HlV-veirunnar í mannslík-
amanum.
• Gæti stöðvað ofvöxt á æðum sem er algeng orsök blindu.
• Gæti, af sömu ástæðum, hindrað vöxt krabbameinsæxla.
Fyrir flesta olli lyfið engum
óeðlilegum aukaverkunum
en a.m.k. 10.000 konur sem
tóku það inn á meðgöngu-
tímanum, fæddu f heiminn
svokölluð „Thalidomide-
börn“, börn sem voru skelfi-
lega vansköpuð. Á þau vant-
aði útlimi, þau voru með fæt-
ur þar sem fótleggirnir
hefðu átt að vera, eða
ólögulega stubba í stað
handleggja. Hroðalegar
Ijósmyndir af þessum
bækluðu ungabörnum
bárust um heiminn eins
og eldur í sinu og vöktu
hneykslan, reiði og sorg.
Og lyfjafyrirtæki og
læknar sóru þess dýran
eið að nota lyfið aldrei
framar. í Bandaríkjunum
var lyfið bannað áður en
það komst á markað.
Samt var lyfið ekki úr
sögunni því að fram-
leiðslu þess var haldið
áfram í Brasilíu árum
saman og það var ein-
mitt þangað sem læknir
Beckie Bell þurfti að
sækja það.
UPPREISN ÆRU
Nú hefur verið að koma á
daginn að lyfinu má beita á
áhrifaríkan hátt í baráttunni
við jafnólíka sjúkdóma eins
og krabbamein, alnæmi og
augnsjúkdóma. í undirheim-
um eyðnisjúklinga fer fram
gróskumikil sölustarfsemi á
lyfinu, ekki sfst þar sem sýk-
ingar í munni hrjá marga
eyðnisjúklinga, og þar kemur
Thalidomide í góðar þarfir.
Eins og stendur vinna menn
að því að kanna raunveru-
lega virkni þess á rannsókn-
arstofum og ef niðurstaðan
verður jákvæð kann sala
þess að hefjast á ný innan
fárra ára.
Það var í ísrael sem upp-
hafið að „endurreisn“ lyfsins
átti sér stað. Árið 1965 var
holdsveikisjúklingum þar í
landi gefið lyfið í þeim til-
gangi einum að róa þá niður.
Öllum til mikillar furðu kom-
ust menn að því að það
hafði einnig græðandi áhrif á
opin sár á húð sjúklinganna.
Það var hins vegar ekki fyrr
en 1989 að Dr. Gilla Kaplan,
við Rockefeller-háskólann,
heyrði af þessu og lék for-
vitni á að vita hvernig á
þessu stæði. Hún tók að
rannsaka lyfið nánar og
komst að því að það hafði
hamlandi áhrif á framleiðslu
tumor necrosis factor alpha
(TFN-a) en það er efni í
ónæmiskerfinu. Of mikið
magn TNF-a orsakar hita-
köst, þyngdartap og vefja-
skemmdir sem og truflanir á
ónæmiskerfi líkamans. Hins
vegar er ákveðið magn
TNF-a nauðsynlegt til að við-
halda jafnvægi í ónæmis-
kerfinu. Þetta er ákaflega
viðkvæmur línudans. „Hið
klassíska tvíeggja sverð,"
segir D. Kaplan. Henni varð
hins vegar fljótlega Ijóst að
sérstaða Thalidomide fólst í
því að það hindraði ofvöxt
TNF-a, án þess þó að
útrýma efninu algerlega.
AUGNSJÚKDÓMAR
OG EYÐNI
Dr. Kaplan ákvað að reyna
lyfið á berklasjúklingum en
þeirra á meðal voru nokkrir
eyðnisjúklingar (berklar eru
algengur fylgikvilli eyðni).
Hún hefur nú staðfest að í
meira en 80 prósentum til-
vika tókst að stöðva tæring-
arferlið sem berklar valda.
Árið 1993 gerði hún kunna
aðra uppgötvun; semsé þá
að Thalodomide virtist -
a.m.k. í tilraunaglösunum -
hefta fjölgun HIV-1 veirunn-
ar. Ef svo kynni að fara að
lyfið hefði sömu áhrif í
mannslíkamanum, sem er
auðvitað alls ekki víst, gæti
notkun þess komið í veg fyr-
ir, eða seinkað því að HIV-
smitaðir fái eyðni á lokastigi.
„Ég vil ekki vekja falskar
vonir hjá neinum,“ segir Dr.
Kaplan. „Rannsóknir eru enn
á byrjunarstigi."
Hver ný vonarglæta f
myrkviði eyðnirannsókna
vekur auðvitað innilegan
FRH. Á BLS. 52
50 VIKAN 9. TBL. 1995