Vikan


Vikan - 20.09.1995, Blaðsíða 46

Vikan - 20.09.1995, Blaðsíða 46
TONUST Hér á landi verðurðu að vera „commercial“ til að ná langt og lifa af tónlistinni. Mér fannst t.d. platan sem Björn Jörundar gaf út síðustu jól hel- víti „töff‘ plata. Þar var greini- lega á ferð listamaður sem leyfði sér að gera ýmsa óhefð- bundna hluti. En það er lýsandi fyrir íslenska markaðinn að platan seldist ekki vel. Menn þurfa alltaf að reyna að gera lýðnum til geðs, það er synd. Annað, sem ég hef áhyggjur af varðandi íslenska poppbr- ansann, er það hversu lítið er um kvenfólk þar. Það er hrylli- legt. Það sést best á Músík-til- raunum Tónabæjar, þar eru 99 prósent þátttakenda strákar og þetta virðist ekkert vera að lag- ast. Ég hef enga skýringu á þessu. Kannski hafa strákar meiri þörf fyrir að sýna sig en stelpur. Það fyndna við þetta er þó að frægasti tónlistamaður íslands fyrr og siðar er kvenmaður; Björk Guðmundsdóttir. Hún er dýrkuð og dáð erlendis. Fólk á íslandi áttar sig ekki á því, það er stolt af henni en veit ekki hversu mikil megastjarna hún er. í dag þykir mjög „töff“ að vinna með Björk í tónlistariðn- aðinum á sama hátt og það þykir „töff“ að vinna með Qu- entin Tarantino í kvikmynda- iðnaðinum. Stórir listamenn, eins og Madonna, reyna að stæla hana eins og þeir geta.“ Hvaða íslensk hljómsveit finnst þér líklegust til að ná frama í útlöndum í dag? „Það er erfitt að segja. Jet Black Joe komst nokkuð ná- lægt því, ég hef heyrt það út- undan mér. Ég bind vonir við Cigarette, hún er nokkuð „commercial" og er með bresku ívafi. Emilía Torrini á eftir að komast langt, hún fer örugglega út að reyna fyrir sér. Annars er það happa og glappa hverjir „meika“ það. Yfirleitt er það svo að þeir, sem ætla sér að verða fræg- ir, ná ekki því marki en hinir, sem eru afslappaðir, detta oft inn á framabrautina." RÚV ER TÓM VITLEYSA Er það eitthvað öðru fremur sem þú stefnir að að gera í dagskrárgerð í framtíðinni? „Ég vil helst prófa þætti sem koma inn á menningu og listir. Það væri skemmti- legt að vera með klukkutíma langan þátt á viku og taka fyrir allan fjandann, leyfa sér allt. Það kostar hins vegar peninga. Mér finnst Fiskur án reiðhjóls t.d. í takt við það sem ég vildi gera, sá þáttur er mjög líflegur.“ Þú myndir ekki viija skipta um lið og fara yfir til Ríkis- sjónvarpsins? „Ég vil ekki fara yfir á RÚV, það er bara tóm vit- leysa. Ég tel að ríkið eigi ekki að skemmta lýðnum. Karlarnir, sem stjórna hjá RÚV, eru á engan hátt í takti við dagskrárgerðina eða starfsfólkið. Þeir hafa yfirleitt hlotið pólitíska ráðningu. Að auki finnst mér dagskrárupp- byggingin á RÚV vera út í hött, þar er enga fjölbreytni að finna og lítið hugsað fyrir þörfum hins almenna áhorf- anda eða hlustanda. Fyrir- tæki eins og RÚV á enga framtíð fyrir sér.“ Og þar sem framtíðin berst f tal lýkur viðtalinu með framtíð- arsýn Pálma Guðmundssonar: „Ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni. í framtíðinni verð- ur heimilistölvan, sjónvarpið, útvarpið og allt heila dótið tengt við gagnabanka. Fólk mun geta valið sér sjónvarps- eða útvarpsefni af eins konar matseðli. Það situr heima í stofu, ýtir á takka og fær það efni sem það vill sjá, allt í gegnum gagnabanka. Þú verður þinn eiginn dagskrár- stjóri. Þannig verður hægt að nýta tímann miklu betur. I dag eyðir fólk heilu kvöldunum fyr- ir framan sjónvarpið. Segjum að þú sért búinn að horfa á fréttir og viljir næst sjá þátt klukkan níu þá verðurðu að horfa á veðurfréttir og fullt af auglýsingum þangað til. Með þessu móti ílengist fólk fyrir framan kassann. Það er framtíðin sem ég hef áhuga á og ég ætla að undirbúa mig undir hana.“ □ / 5iÐ HföVF- rsT /vó fwkx- ÍSL- Sfir wHý. SvEi MRfýUO Wssi NÚM- Efii'Ð KEjjRi S'fíG- LA/VÖ UtAM RPi Tgc —> 1 iu\lu®P djSj mm m 5Kel z UmF S6LD'dí{ > J 3 i Ft/GAfl 'fl FÖ5/CÍ BéflÐflwfii T fikA v/ \ / > 1 / 'fí- BfíEiÐU HA&i 'MALb V S~ > ' > u bORÐPi UtBaJ . / » £ »\yrjr~ i/jf\ lp , / / V / rnr / 3 t* cP Rómu. TfUA f Lausnarorð síðustu krossgátu: GAMANMÁL 46 VIKAN 9. TBL. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.