Vikan - 20.09.1995, Page 21
Hvað hefur þú farið oft í
meðferð og afvötnun?
Frá ’83 hef ég farið í 4
sinnum í meðferð og 15
sinnum í afvötnun. Lengst
hef ég verið edrú samfellt á
árunum ’85 og '86. Þá losn-
aði ég af Hrauninu 14. júní
og fór í meðferð 18. júní. Ég
man sérstaklega eftir því
hvað þetta var erfitt. Þá var
ég í tíu daga inni á Vogi. Ég
fékk vinnu á skyndibitastað
og leigði mér húsnæði. Eftir
þrjá mánuði var ég farinn að
reka staðinn því metnaður-
inn var svo mikill. Þá keypti
ég mér sjónvarp, bíl og græj-
ur. Ég vann mjög mikið og
gat aldrei neitað eftirvinnu.
Maður sem hafði
aldrei tekið ábyrgð
á neinu! Þetta var í
rauninni dæmt til
þess að falla. í
restina voru
neyslufélagar
komnir inn á skrif-
stofu til að vigta
„hraða“ o.fl. Ég féll
stuttu seinna, af-
henti eigandanum
lyklana og sagði
honum að ég gæti
þetta ekki. Eg var
orðinn það heiðar-
legur að ég gat
rætt þetta við
hann, ég náði
mjög góðum bata
á þessum tíma. Þetta er tími
sem ég hef alltaf búið að og
hefur alltaf verið í huga mér.
Mér fannst ég vera virkur
þjóðfélagsþegn á ný. Ég
borgaði mína skatta og mér
fannst ég vera virkur í lífinu.
Þetta voru 8 mánuðir í bata
og kannski 2 mánuðir á fall-
braut áður en ég datt í það.
Ég man eftir því að þegar ég
féll þá var ég að æfa líkams-
rækt. Ég fór á bar og pantaði
mér „White Russian" með
miklum rjóma. Ég var farinn
að trúa því að ég gæti drukk-
ið. Bullið: ég var löngu fallinn
áður en ég tók fyrsta glasið.
Hefurðu orðið fyrir miklum
fordómum út af þínum
sjúkdómi?
Alveg ofsalega miklum, en
í dag skipta þeir mig engu
máli. Ég skynja það svona
með sjálfan mig að ef eittvað
fallegt er sagt við mig, eða
einhver lætur vel af því sem
ég er að gera, á ég ofsalega
erfitt með að taka því. En
aftur á móti ef einhver segir
mér að halda kjafti get ég al-
veg tekið því. Þetta er ekki
eðlilegt, þetta er alveg um-
pólað og ástæðan liggur í
því hvað maður hefur alltaf
verið öfugsnúinn.
Hvar hefurðu fundið fyrir
mestum fordómum í þinn
garð?
Frá nákomnum, þá vinum
og ættingjum aðallega. Oft-
ast þá skoðun að þetta sé
aumingjaskapur; ég leit líka
á þetta sem aumingjaskap.
Faðir minn er alkóhólisti en
hann viðurkennir það ekki.
Sjálfsvirðing hans liggur í
vinnunni og hann hefur
aldrei misst sína vinnu og
stendur alltaf sína pligt. Það
fer honum mun betur að
vera í glasi hann er þá
allavega brosandi. Hann
brosir ekki þegar hann er
edrú. Það er eins og það
séu þykkir múrveggir í kring-
um hann og margir kílómetr-
ar á milli okkar þó að við sitj-
um saman. Hann er blindur
á sína líðan og honum finnst
þetta vera spurning um karl-
mennsku en hann fattar ekki
að þetta er sjúkdómur.
Ég er með móral. Ég
framdi gullrán og náði mér í
mjög mikið af peningum en
átti pantað pláss inni á Vogi
þrem dögum seinna. Ég
man að þegar ég kom inn á
Vog þá var ég byrjaður að
skrifa dagbók, svona slitrótt.
Ég var orðinn svo nojaður og
ruglaður að ég skrifaði undir
rós í dagbókina hversu mikið
gull af manni ég væri að
verða. Maður er svo ruglað-
ur í toppstykkinu. En ég gat
ekki höndlað þetta, mér
fannst þetta svo óheiðarlegt
og mér leið illa út af þessu,
enda skilaði ég þýfinu. Það
er stutt síðan þetta gerðist,
svona 2 ár. Eg ætlaði að fara
með þetta gull til Amsterdam
og selja það þar fyrir stóran
poka af „hraða" eða eitthvað
álíka. Hugurinn náði ekkert
annað, maður var svo blind-
ur, heiðarleikinn kemur ekki
með 200 kíló af „hraða“ til
manns. Ég hef átt svo mikið
af peningum að ég hef varla
getað hreyft mig fyrir þeim
og ekki leið mér neitt betur.
Þetta er ekki spurning um
peninga heldur um að öðlast
andlega frelsun. Ég er næst-
um því búinn að taka út
fimm ár og átta mánuði í
fangelsi allt í allt, þá með öll-
um gæsluvarðhöldum og
öllu. Ég held að gæsluvarð-
höldin ein og sér
spanni eitt ár, ég
er 33 ára í dag og
mér finnst komið
nóg.
Finnurðu oft fyrir
löngun í vímu-
efni?
Já, ég fæ löng-
un eftir breyttu
ástandi. Það er
líka bara af því að
ég kem mér í þann
pakka. Ég get líka
fært þetta upp á
heiðarleikann
vegna þess að
það fer eftir því
hvað ég er að
gera. Eg hef farið á ball en
samt veit ég að ég er ekki til-
búinn til þess. Það hefur ver-
ið í lagi vegna þess að ég
hef farið með tveimur til
þremur AA-mönnum. Ég fæ
ekkert út úr því að fara á
böll, sumir eru að leita að
einhverju lambakjöti en ég er
ekkert að pæla í því. Ég
elska eina konu og hún veit
vel af því, en hún er sá erfið-
asti pakki sem ég hef á mig
tekið.
Hvað getur þú gert til að
halda þínum sjúkdómi
niðri?
Ef ég á að gefa þér sem
einfaldast svar þá er það að
vera heiðarlegur og fara á
AA-fundi.
Hvernig er líf þitt í dag?
Erfitt en gaman. Ef ég
verð edrú eftir ár þá sé ég
mig vera að mála og taka
listina sem vinnu frá níu til
fimm.
Lokaorð:
Mér þykir vænt um lífið. □
IMYNDLIST
FRH. AF BLS. 6.
notuð er í málaralistinni. Gifs
er látið harðna ofan á tré-
plötu og á það er borið fljót-
andi kanínulím. Þegar það er
orðið hart myndar það ákjós-
anlegan grunn fyrir málning-
una sem samanstendur af
litadufti og eggjarauðu sem
blandað er saman með vatni.
Frá því ég var í klaustrinu hef
ég alltaf gert íkona af og til.
Ég málaði aðallega málverk
þangað til fyrir tveimur árum
en þá fór ég að yfirfæra
tæknina sem notuð er við
gerð íkona yfir í mín eigin
myndverk." Við gerð verk-
anna notar Kristín tæplega
tuttugu og fjögurra karata gull
og segir hún að það taki
langan tíma, mikla þolin-
mæði og gott handverk til að
útkoman verði góð. Flest
verkin eru lítil, bæði vegna
þess að gullið er dýrt auk
þess sem tæknin sem notuð
er hentar litlum verkum.
Á sýningunni á Kjarvals-
stöðum, sem er fimmta
einkasýning Kristínar, eru
þrjú stór olíumálverk og tutt-
ugu og fimm smærri verk
sem unnin eru með fyrr-
greindri tækni. Kristín segir
að þeir sem sæki sýninguna
átti sig á því að henni sé
hugstætt tímaleysi, einfald-
leiki, manneskjur og tilfinn-
ingar en yfir heildina er
myndefnið óhefðbundið. Hún
málar ekki einungis ferhyrnd
form. Á sýningunni er lista-
verk sem er málað á kúlu,
annað er á fleti sem er í lag-
inu eins og altaristafla og svo
er verk þar sem hún hefur
málað á báðar hliðar flatar-
ins. Engir íkonar eru á sýn-
ingunni og hefur Kristín skýr-
ingu á því. „íkonar eru ekki
mín eigin verk vegna þess
að þeir eru ákveðin heim-
speki og hugmyndafræði
sem er alltaf eins. Þeir eru
gerðir eftir margra alda gam-
alli hefð, ég einungs túlka
hana og kem ákveðnu inn-
sæi til skila. Verkin sem eru á
sýningunni á Kjarvalsstöðum
eiga það sameiginlegt með
íkonunum að vera unnin með
sömu tækni. En ég er fyrst
og fremst myndlistamaður og
vil í verkum mínum koma
myndsýn minni sem sam-
tímalistamaður til skila. Ég
nýt þess að vinna með al-
dagamla tækni og brýt hefð-
ina upp á vissan hátt.“ □
■ „Ég ætla að gefa mér góðan
tíma í að vera edrú og i það
fer allur minn tími og mikil
orka."
■ „Ég ætlaði að fara með
þetta gull til Amsterdam og
selja það þar fyrir stóran poka
aff „hraða" eða eitthvað
ólíka. Hugurinn náði ekkert
annað, maður var svo blindur,
heiðarleikinn kemur ekki með
200 kíló af „hraða" til
manns."
9. TBL. 1995 VIKAN 21