Vikan - 20.09.1995, Síða 22
VIÐTAL OG UOSMYNDIR: ÞORSTEINN ERLINGSSON
Þcað eru ófúir sem
hafa séð hinar vin-
sælu kvikmyndir
„9 1/2 Weeks" og
„Barfly", svo ekki
sé minnst ó „Angel
Heart". Mickey
Rourke hefur ekki
sést lengi á hvfta
tjaldinu og lággja
þar að baki margar
ástæður, flestar
þeirra persónuleg-
ar. Nú segist hann
hins vegar vera
kominn aftur til að
vera, tvfefldur og
tilbúinn f slaginn.
Honum var því IjúH
að tala við blaða-
mann Vikunnar um
Iff sitt, listamanns-
feril, vonir sfnar,
vonbrigði, framtfð-
ina og fleira.
Þegar undirritað-
ur kom á hótelher-
bergi Rourkes, þar
sem viðtalið átti að
fara fram, tóku á
móti honum vsegast
sagt skrautlegar
persónur, eins og til
dæmis mjög vöðva-
stæltur náungi með
kúrekahatt, feitur,
krúnurakaður rum-
ur með hökutopp
og fleiri álfka, sem
reyndust vera Iff-
verðir kappans.
rátt fyrir að
þeir litu skuggalega út
var mér tekið opnum
örmum og boðið inn
í svítuna sem sam-
anstóð af tveimur
herbergjum. Mickey
hafði valið það
innra, þar sem finna
mátti notalega setu-
stofu, sófa og stóla,
en þar settumst við,
ásamt leikstjóra nýj-
ustu myndar
Mickeys sem ber
heitið „Buliet".
Reyndar hefur
Mickey einnig verið
að vinna að annarri
mynd sem heitir
„F.T.W." sem þýðir „Fuck The
World“ og verður nafnið ekki
þýtt nánar hér.
Hann hefur ekki unnið að
kvikmynd í nokkuð langan
tíma, að minnsta kosti ekki
síðustu tvö árin, en nú segist
hann vera kominn til að vera
á þessum vettvangi.
Undirrituðum sýndist hann
nú samt ekki alveg hafa lagt
fyrra líferni á hilluna þar sem
hann var nokkuð slappur að
sjá og þurfti að fara fram
nokkrum sinnum meðan á
viðtalinu stóð, leggja sig út
af í sófann og drekka mikið
af vatni - þó að það þurfi
ekki endilega að
þýða neitt sér-
stakt.
Hann var
nokkuð skraut-
lega klæddur
miðað við aðra
þekkta viðmæl-
endur undirrit-
aðs, greiddi hár-
ið stíft aftur með
klístri og vakti
það sérstaka at-
hygli að nýjar
tennur höfðu
verið smíðaðar í
efri góminn þar
sem minnst fjór-
ar tii sex hafði
vantað sem
vafalaust er af-
leiðing boxins.
Ég hafði hitt
hann kvöldiö áð-
ur þar sem hann
var að fara til kvöldverðar en
það var með erfiðismunum
sökum fólks, sem hópaðist í
kringum hann, að hann gat
farið frá hótelinu yfir götuna
og notiö í nokkrar sekúndur
útsýnisins yfir sjóinn áður en
hann settist til borðs á
strandveitingastaðnum sem
tilheyrði hótelinu - slíka at-
hygli virtist hann fá þar sem
hann kom.
HAFÐI BYGGT UPP
SINN EIGIN STÍL
Við hófum spjallið eftir að
báðir höfðu komið sér vel
fyrir í þægilegu sófasettinu.
„Frank, persónan sem ég
leik í „F.T.W.," segir Mickey,
„er náungi sem átti sér
drauma en var rangur maður
á röngum tíma og gat því
ekki látið þá rætast."
Handritið að þeirri mynd
skrifaði Mickey sjálfur undir
dulnefninu Sir Eddie Cook.
„Frank var á hápunkti iífs
síns, kominn á hæsta tind
þegar hann fór inn á bar og
sá þar mann sem var að
gera konu lífið leitt en þá
gerðust atburðir sem urðu til
þess að gæfan sneri viö
honum baki,“ segir Mikey.
Mickey Rourke byggði á
sínum tima upp sinn eigin
stíl, meðal annars með því
að leika alltaf nokkurs konar
utangarðsmenn með nokkuð
dökkan bakgrunn, til dæmis
þegar hann lék „kamikaze"
lögguna í mynd Michael
Cimino „Year of the
Dragon", undirmáls-
manninn og alkó-
hólistann í „Barfly",
hinn auðsveipa
glæpamann í
„Johnny Hand-
some“ og nú síðast
Frank T. Wells, hinn
misskilda, fyrrver-
andi glæpamann og
ródeókempu en
síðastnefnda pers-
ónan er afrakstur
fjögurra ára hand-
ritsskrifa.
„Ég hafði lesið
mikið af aðsendum handrit-
um,“ segir Rourke „sem mér
líkaði ekki og var orðin hálf-
dofinn fyrir því að leika
þannig að óg tók þá ákvörð-
un að safna saman allri
þeirri reynsiu í leiklist sem
ég hafði yfir að ráða og
koma henni fyrir í heilu lagi í
þessari persónu, Frank."
Rourke, sem er einn mest
áberandi og umdeildasti leik-
ari seinni tíma, með sinn
hæfileika til að skilja hluti
eins og aðstæður Franks,
sýnir á sinn lítilláta hátt að
hann er enn einu sinni tilbú-
inn til að taka áhættu og fara
út á nýjar brautir
með því að taka
að sér hlutverk
hans.
MÓDIR
HANS GIFT
LÖGGU
Mickey heitir
að skírnarnafni
Philip Andre
Rourke og
fæddist árið
1956 í Schen-
ectady í New
York. Hann sleit
samt barns-
skónum á Miami
þar sem hann
átti ekki allt of
auðvelda æsku
- margra hluta
vegna. Móðir
hans var gift lög-
regluþjóni sem
bjó í Miami og þess vegna
urðu æskustöðvarnar þar.
Hann byrjaði feril sinn sem
boxari þar og stundaði þá
íþrótt af kappi í Miami’s Fifth
Street Gym-æfingaklúbbn-
um áður en hann flutti aftur
til New York. Þar komst hann
í kynni við þjálfara, sem
EINKAVIÐTAL
BLAÐAMANNS
VIKUNNAR VIÐ
STÓRSTJÖRNUNA
OG KVENNAGULLIÐ
Okkar maöur, Þorsteinn Erlingsson, mættur til viötals
viö Mickey Rourke. Þorsteinn segir aö sér hafi sýnst
leikarinn ekki hafa lagt fyrra líferni algjörlega á hill-
una. Veriö slappur og þurft aö leggja sig stöku sinn-
um á meöan viötaliö stóö yfir.