Vikan - 20.09.1995, Síða 28
ALÞJOÐLEGA UTVARPS- OG SJONVARPS-
Glæsileg, hvít bygging í hjarta
borgarinnar Montreux í Sviss
minnir helst á rándýrt hótel.
Byggingin er á
besta stað í þessari
vinsælu borg og
útsýnið heldur ekki ama-
legt; glæsilegir Alparnir á
aðra hönd, á hina spegils-
létt og fagurt Genfarvatn-
ið. í nágrenninu búa margir
heimsþekktir leikarar og lista-
menn á borð við David Bowie,
Quincy Jones, Nastössju Kinski,
og Peter Ustinov. En hér er þó
ekki um að ræða hótel heldur al-
þjóðlegan skóla fyrir þá er vilja
læra allt um starfsemi útvarps og
sjónvarps, sem og um fjölmiðlun
og blaðamennsku ýmiss konar.
Alþjóðlega útvarps- og sjón-
varpsakademían í Montreux sem
hér um ræðir var sett á laggirnar
haustið 1993, en um eins árs
strembið nám er að ræða. Fyrstu
nemendurnir, 12 talsins, hófu þar
nám haustið 1994, en meðal
þeirra er íslendingurinn Ragnar
Halldórsson. Ragnar, sem er 27
ára, hóf fjölmiðlaferil sinn sem
umsjónarmaður unglingaþátta
hjá Sjónvarpinu, en síðan hefur
hann aðstoðað við upptökur, auk
þess sem hann hefur gert eigin
sjónvarpsþætti. Nýjasta afurð
Ragnars eru sjónvarpsþættirnir
íslenskir hugvitsmenn.
En hvað hefur útvarps- og
sjónvarpsakademían upp á að
bjóða og hvers vegna kaus Ragn-
ar að fara þangað til náms?
Blaðamaður hitti Ragnar að máli í
Montreux og ieitaði svara við því.
■FYRIR|
UTVARPS-
varpsvinnu. Tvær náms-
greinar í senn séu teknar
fyrir í tvær til þrjár vik-
ur og
OGSJÓNVARPS-
FÓLK
FRAM1ÍDAR-
u
m leið og ég heyrði,
af því að verið væri
að stofna skólann
varð ég mjög spenntur fyrir
því námi sem þar stóð til
boða. Ég hafði alltaf haft
mikinn áhuga á að mennta
mig frekar á þessu sviði og
því fannst mér þessi skóli al-
veg kjörinn fyrir mig, þar
sem mikil áhersla er lögð á
starf og stjórnun innan fjöl-
miðla. Ég er auðvitað með-
vitaður um að ég er á fyrsta
starfsári skólans, en því
fylgja bæði kostir og gallar.
Þannig hef ég fylgst með því
hvernig skólínn er að mótast
og eitt er víst að það er al-
vörufólk sem bæði starfar
við og stendur á bak við
hann. Maður finnur að það
er verið að koma einhverju á
fót og það er afar áhugavert
að vera þótttakandi í því.
Hins vegar eru ekki allir hlut-
ir starfseminnar smurðir
ennþá, það hefur t.d. vantað
uppá tækniaðstöðu, en mað-
ur veit að þetta tekur 2-3 ár
að verða endanlega tilbúið",
segir Ragnar Halldórsson.
SKÓLI FYRIR
AUÐKÝFINGA?
Ragnar segir að þó að
bestu skólar í útvarpi og
sjónvarpi séu e.t.v. í
Bandaríkjunum, þá sé
skólinn í Montreux sá
fyrsti sinnar tegundar í
heiminum, sem kenni allar
hliðar útvarps- og sjón-
kennaraliðið
samanstandi
af fólki,
hvaðanæva
að úr heimin-
um, sem
standi mjög framar-
lega f greininni.
Þannig séu kennar-
ar ekki hefðbundnir
háskólaprófessorar
heldur fólk sem miðlar af
reynslu sinni í útvarpi og
sjónvarpi og kemur með
hið raunverulega and-
rúmsloft inn í skólann. Það
sem vanti svo uppá geti
nemendur fundið í gögn-
um sem þeim sé vísað á.
Ragnar bætir því við að
Skólastjórinn Aleksandar
Todorovic.
nám við útvarps- og sjón-
varpsakademíuna sé gífur-
lega dýrt, árið kosti tæpar
tvær og hálfa milljón.
Ragnar tekur það hins
vegar fram að nám við
þennan tiltekna skóla
henti ekki fyrir alla. En
hvað með atvinnumögu-
leika að svona dýru námi
loknu?
„Það er eflaust sama hvert
maður fer utan að læra, það
bíður allra mikil óvissa um
það hvað tekur við. Það er
hins vegar slæmt ef menn fá
ekki góða vinnu eftir dýrt
nám. í mínum skóla er lögð
áhersla á tengsl við fólk og
fyrirtæki innan þess ramma
sem skólinn nær yfir og því
opnast þar strax leiðir fyrir
nemendur að kynna sig og
koma sér á framfæri. Svo er
það eitt af markmiðum aka-
demíunnar að hún leggi sig
fram við að hjálpa nemend-
um sem útskrifast að fá
vinnu, ef því er að skipta.
Skólinn er þegar í nánum
tengslum við sjónvarps-
stöðvar í Evrópu og t.d. má
nefna að helsti samstarfs-
aðilinn er einmitt Samband
evrópskra sjónvarpsstöðva í
Genf. Ég er því nokkuð viss
um að ég fái aðstoð skólans
við að leita mér að starfi í
Evrópu, ef svo ber undir.
Kennarar kynnast nemend-
um mjög vel, þeir eru fljótir
að sjá hvar hæfileikar fólks
liggja og leggja sig fram við
að ýta undir og hvetja nem-
endur í því sem þeir gera.
Ég held að lykiliinn að ár-
angri sé áhugi og ýtni. Með
slíkt í farteskinu er auðvelt
að fá veittan stuðning til að
koma sér áfram innan þessa
geira“.
En telurðu að það hafi
hjálpað þér í náminu að
hafa þegar öðlast ákveðna
reynslu af sjónvarps-
starfi?
„Já, það finnst mér. Við
vorum einmitt í einu fagi þar
sem kennd voru undirstöðu-
atriði í sjónvarpsþáttagerð.
Það var frekar einfalt vegna
þess að ég þekkti til, en
engu að síður þurfti ég að
læra mikið því það var búið
að pakka saman alls konar
upplýsingum sem ég hafði
ekki sjálfur rekist áður á.
Námið í skólanum er reynd-
ar mjög fræðilegt, en það
sem gerir það praktískt er
nærvera kennaranna sem
starfa innan geirans. Maður
fær það einhvern veginn á
tilfinninguna að þetta fræði-
lega hljóti einnig að vera
mjög praktískt.
28 VIKAN 9. TBL. 1995