Vikan - 20.09.1995, Qupperneq 29
Það sem ég er í raun og
veru að læra er hvernig á að
stjórna og stýra útvarps- og
sjónvarpsstöðvum, auk þess
sem ég læri einnig grund-
vallaratriði í starfi innan
þessara miðla. Þetta er því
afar fjölbreytt nám sem nær
yfir mörg svið og nemendur
geta svo seinna sérhæft sig
á því sviði sem þeir kjósa.
Meginmarkmið skólans er
að mennta nýja kynslóð
þeirra er vilja starfa innan og
stýra þessum miðlum. Fyrir
þá sem vilja t.d. eiga við
gæðaframieiðslu fyrir sjón-
varp af einhverri alvöru, ekki
bara einbeita sér að gerð
poppmyndbanda, þá held ég
að þetta nám sé mjög gott.
Að þessu námi loknu lang-
ar mig að mennta mig enn
frekar í þessari grein, eða
annarri henni tengdri. Það
heillar mig að starfa einhvers
staðar á meginlandinu í
framtíðinni. Ég er nú ekki
nema 27 ára þannig að það
getur verið spennandi að
kanna hvað aðrar þjóðir hafa
uppá að bjóða. Hins vegar
er það á langtímaáætluninni
hjá mér að reyna að fá gott
starf við þetta fag á íslandi.
Það lítur út fyrir að ég muni
fá tækifæri til að gera heim-
ildarmynd um Sviss, en skól-
inn hefur hvatt mig til þess.
Ég ætla að reyna að selja
efnið til sjónvarpsstöðva og
t.d. hefur sjónvarpsstöðin
ARTE lýst yfir ákveðnum
áhuga á verkefninu. Það er
því óneitanlega hvetjandi
þegar ég fæ svona stuðning
og í raun er óg byrjaður að
leggja línurnar og starfa að
þessu verkefni", segir Ragn-
ar Halldórsson.
ÞÖRFIN VAR BRÝN.
Aleksandar Todorovic er
skólastjóri útvarps- og
sjónvarpsakademíunnar.
Todorovic, sem er Serbi, á
að baki langa reynslu við
sjónvarpið í Belgrad, en
um árabil gegndi hann
einnig formennsku hjá
tækninefnd Sambands
evrópskra sjónvarps-
stöðva. Hvað segir hann
um stofnun skólans í
Montreux, hvers vegna var
ákveðið að koma honum á
laggirnar?
„Hugmyndin að skólanum
er komin frá Sambandi evr-
ópskra sjónvarpsstöðva.
Menn töldu að brýn þörf væri
á að stofna faglegan skóla í
Evrópu, sem byði uppá
bestu aðstæður til útvarps-
og sjónvarpsmenntunar. Fé-
lagslegar og tæknilegar
breytingar, auk breytts um-
hverfis, hafa verið svo örar
undanfarin ár í Evrópu að
mönnum fannst vanta ein-
hvern vettvang sem gæti
þjálfað fólk í að takast á við
þessar breyttu aðstæður. Út-
varps- og sjónvarpsfólk
framtíðarinnar verður að
vera fært um að þekkja þá
heild sem fjölmiðlun er hluti
af, auk þess sem það verður
á sama tíma að geta sérhæft
sig á sínu sviði. Þetta eru
þær meginhugmyndir sem
liggja að baki skólanum í
Montreux", segir Todorovic,
skólastjóri útvarps- og sjón-
varpsakademíunnar.
„Samband evrópskra sjón-
varpsstöðva styður dyggi-
lega við bakið á okkur og
tekur þátt í að þróa starf-
semina, sem miðar að því
að útskrifa kynslóð fólks sem
er reiðubúið að stýra og taka
þátt í að móta útvarp og
sjónvarp. Fólk með þá
menntun sem við bjóðum
uppá á, að okkar mati, að
geta fengið góða vinnu í
framtíðinni. í Evrópu hafa átt
sér stað miklar breytingar á
fjölmiðlamarkaðnum þar
sem margar stórar stöðvar
hafa iitið dagsins Ijós. Það
hefur sýnt sig í Ijósi þeirrar
reynslu að það er leitun að
vel menntuðu fólki innan
þessa geira, enda reyndust
allir sammála því að bregð-
ast við þörfinni með því að
setja akademíuna á stofn,“
segir skólastjórinn.
„Við erum afskaplega
ánægðir með þá reynslu
sem komin er nú þegar
fyrsta starfsárið er hálfnað.
Allt hefur gengið að óskum
og við höfum fengið afar
áhugasama nemendur til
liðs við okkur. Við gerum
okkur þó fyllilega grein fyrir
því að næstu 2-3 árin fara í
að koma hlutum í fastari
skorður og meta það sem
betur má fara. En við erum
bjartsýnir á að skólinn sé
kominn til að vera“. □
Ragnar í einu
af tækjaher-
bergjum skól-
ans. „Enn vant-
ar eitthvað
uppá tækniað-
stöðu, en mað-
ur veit að
þetta tekur
2-3 ár aö
veröa endan-
lega tilbúiö.“
Glæsileg skólabygging.
„Verndarar skólans eru allir nafntogaóir einstaklingar úr heimi sjónvarps og útvarps. Eru
I þar nöfn á borö við Peter Ustinov, Quincy Jones, Walter Cronkile og Akio Morita".
9. TBL. 1995 VIKAN 29
NAM ERLENDIS