Vikan


Vikan - 20.09.1995, Síða 34

Vikan - 20.09.1995, Síða 34
er enginn við höndina til að púðra á mér nefið af minnsta tilefni. Ég mála mig reyndar aldrei nema í sjónvarpinu. Reyndar hugsa ég mjög lítið um útlit mitt. Ég held að ég sé fremur metin vegna hæfi- leika minna en útlitsins og það er ég mjög ánægð með. FRÆGÐIN ER ERFIÐ Ellen fer að tala um frægðina. „Hver einasti að- dáandi hefur sína persónu- legu skoðun á því hver ég er. Þess vegna er auðvelt að missa sjónar á sjálfum sér „Mörgum þegar maður verður frægur. finnst að Ég reyni að halda dauða- ekkiTö sUga haldi 1 ,einkal(f mitt en Það er á svið nema í ertitt- Ég þori ekki að svara þeim tiigangi aðdáendabréfunum því að einum aö einhver gæti komist að því V^>g sexý!“ hvar ®9 b</ ~ é9 er búin að flytja þrisvar og þarf að skipta um símanúmer mán- aðarlega. Þess vegna les ég ekki bréfin lengur. Ef ég gerði það tæki ég innihaldinu of persónulega, þannig er ég nú einu sinni. Ég er alltaf dauðhrædd um að ég sé að særa tilfinningar fólks. Hvaðan kemur þessi tillits- semi? Ég var alin upp við þá skoðun að maður ætti alltaf að taka tillit til annarra. Það var alger grundvallarregla. Það er ekkert meiri fyrirhöfn að vera elskulegur við fólk heldur en að vera ruddaleg- ur. Fyrir mér er það veiga- mesti þátturinn í starfi mínu að ég er að gleðja aðra, láta þeim líða vel og fá þá til að hlæja. Það veitir mér mikla gleði. Þetta hljómar kannski hallærislega eða væmið en ég meina það. Ég er al- mennt fremur hallærisleg - ég trúi á að ævintýri geti gerst, ég er vonlaus róman- tíker og ég vil að öllum líði vel. Hvernig var æska þín í New Orteans? Fremur tíðindalítil. Þú veist; pabbi, mamma, bróðir minn og ég! Ég stundaði mikið íþróttir og hundleiddist í skólanum, enda lauk ég bara skyldunáminu. Ég hef aldrei saknað þess að vera ekki langskólagengin, enda hef ég komist prýðilega af án þess. Myndirðu segja það við æsku landsins? Einmitt: Hættið ( skólan- um, finnið ykkur klíku, prófið allar sígarettutegundir sem þið getið fundið! Nei, svona í alvöru talað; mennt er auð- vitað máttur, eins og sagt er, og fyrir þá sem líkar vel við skólann er það frábært. Ég bara þoldi hann aldrei og sem betur fer lágu hæfileikar mínir á öðrum sviðum en því akademíska. Annars hefði ég endað sem gegnilbeina á hamborgarastað. FYRIRMYNDARBARNIÐ ELLEN Varstu óþekktarormur? Nei, ég var afskaplega þægt og rólegt barn. Hagaðl mér alltaf vel og gerði aldrei neitt af mér. Þú meinar fyrir utan það að skrópa í skólanum og hanga heima og reykja? Það, já, og svo stalst ég til að keyra. Það er nú annað sem vesalings foreldrar mfn- ir vissu aldrei neitt um - fyrr en núna, vænti ég. Ég varð sjálflærður bílstjóri ansi snemma! Keyrði upp og nið- ur innkeyrsluna hjá húsinu okkar. Pabbi heldur að það hafi verið hann sem kenndi mér á bíl en ég var löngu bú- in að læra það sjálf. Honum fannst ég fara allt of hratt þó að ég væri bara á 20 eða 30 km hraða. Hann er einhver mest hægfara bílstjóri sem ég veit um. Hverjar eru fyrstu bernskuminningarnar? Ég á engar bernskuminn- ingar. Ég gæti skáldað eitt- hvað upp fyrir þig, eitthvað sem ég hef séð í bíó eða lesið, kannski. Bíddu nú við einu sinni vorum við nokkur saman, krakkarnir, og löbb- uðum út í skóg og fundum lík af manni - æi, nei, það var í „Stand by Me“! Ég man eftir því að þegar ég fór í sumarfrí með foreldrum mín- um á baðströnd var ég í stutterma bol yfir sundboln- um því að ég var svo siðprúð. Það er ég reyndar enn í dag. Heldurðu að það sé erfið- ara að vera kvenkyns gam- anleikari en karlkyns? Ég byggi ekki brandarana svo mikið á þessu kvenna- karla-dóti svo að það kemur ekki svo mikið við mig. Stundum þegar ég var að skemmta fannst mér strák- arnir reyna svolítið að spæla mig. Ef það var karlkyns grínisti á undan mér reyndi hann kannski að segja mikið af ruddalegum bröndurum og þá var stemmningin orðin ruddaleg þegar kom að mér og ég átti erfitt með að fylgja því eftir því að mitt „sjó“ var ekki svoleiðis. Mörgum finnst að konur eigi ekki að stíga á svið nema í þeim til- gangi einum að vera sætar og sexý, svo að það getur verið erfitt að sannfæra fólk um að ég sé komin til að fá það til að hlæja en ekki bara til að vera sæt. Þá er það náttúrlega enn stórkostlegra fyrir vikið þegar mér tekst það. Það er ótrúleg tilfinning þegar heill salur veltist um af hlátri, bara yfir því sem þú ert að segja. Maður hefur gífurlegt vald yfir áhorfend- unum þegar vel tekst til. BARA ÓSKÖP VENJULEG MANNESKJA Hvað finnst þér sjálfri vera fyndið? Hver er þinn uppá- hatdsgrínisti? Mér finnst David Letter- man fyndasti maður á jörðu. Hann er einn af þeim fáu sem fær mig til að hlæja upphátt heima í stofu. Ann- ars held ég að fólk sé orðið hálfsljótt vegna þess að það eru svo margir grínistar í umferð. Er einhver sem þér finnst sérstaklega slæmur? Nei, enginn sérstakur. Það eina, sem mér finnst slæmt er þegar gamanleikarar not- færa sér það vald sem þeir hafa á rangan hátt. Eg trúi á málfrelsi en það er svo auð- velt og freistandi að gera bara grín að minnihlutahóp- um, eða fólkinu í salnum, en ekki að sjálfum sér. Þarna kemur gæðablóðið upp í mér, ég er alltaf að hugsa um það hvernig öðrum líður. Hvað gerirðu helst þér til afþreyingar? Ég fer öðru hvoru í golf. Og hverjir eru draumagolf- félagarnir? David Letterman, Oprah Winfrey og Courtney Love. Ég held að okkur myndi koma ágætlega saman. Ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af klæðaburðinum því að ég veit að Courtney myndi vera alveg eins og drusla hvort sem er. Þess vegna vildi ég hafa hana með. Þú átt tvo hunda, ekki satt? Jú, mikið rétt. Trevor er Ijós Labrador og afskaplega fallegur. Murphy aftur á móti er svartur druslulegur rakki sem ég fann á athvarfi fyrir heimilislausa og yfirgefna hunda. Hann er orðinn sætur núna en þegar ég tók hann að mér var hann virkilega forljótur. Þeir voru að fara að lóga honum þegar ég birtist, greyið var svo aumingjaleg- ur og ófríður. Það hafði líka verið farið illa með hann áð- ur en hann lenti á athvarfinu. Ef ég ætlaði að strjúka hon- um flúði hann. Ég skil ekki fólk sem getur verið vont við dýr. Núna er hann kátur og hamingjusamur. Trevor var upphaflega hjá nágrönnum mínum en þau höfðu ekki nógan tíma til að hugsa al- mennilega um hann svo ég bauðst til að taka hann að mér. Ég er alltaf að þessu - að laða þá að mér sem þarfnast hjálpar. Hundarnir mínir gefa skít í það hvort ég er fræg eða ekki; og ég meina það bókstaflega. Ef þeir kúka á gólfið og ég skammast yfir því hvað ég hafi mikið að gera við að vera sjónvarpsstjarna hlusta þeir ekki á mig. En þeir elska mig sem persónu, ekki sem stjörnu. Hvernig manneskja ert þú? Ég held að ég sé bara eins og nágranninn hinum megin við ganginn. Svona eðlileg, heilbrigð manneskja. Sem ég reyndar er, heid ég. □ 34 VIKAN 9. TBL. 1995 '

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.