Vikan - 20.09.1995, Page 57
hefði innst inni viljað aðeins
meira fjör - eins og til dæmis
2-3 sprengingar.
Þegar karlmenn segja:
„Eg vil ekki ræða það“ þá
meina þeir það.
m Karlmenn hafa gríðar-
lega ánægju af forleik, munn-
gælum og keleríi - en finnst
það ekki vera að marka
nema þeim sé hleypt inn.
m Karlmenn fá flog ef
þeim finnst bíllinn þinn flott-
ari en þeirra. Búðu þig undir
kappakstur.
Ea Þeir eru í alvöru sann-
færðir um að þú hafir áhuga
á muninum milli hinna ýmsu
tegunda farsíma.
m Karlmenn glápa á aðrar
konur. Sumir í laumi, aðrir
opinskátt en þeir gera það
allir.
Karlmenn geta vanist
því að nota smokk en þeir
vilja frekar vera lausir við
það.
|j]|| Karlmönnum finnst það
ömurlegt þegar konur stela
bitum af matardiskunum
þeirra.
„Par“ á ekki að vera
samheiti „síamstvíbura". Karl-
menn vilja ákveðið sjálf-
stæði, líka þó að sambandið
sé alvarlegt.
EO Karlmenn eru ekki alltaf
I elskulegir við mæður sínar
en þeir ætlast til að eiginkon-
ur þeirra séu það.
22J Karlmenn óttast fátt
meira en „móðursjúkar kon-
ur“. Reyndu því að halda ró
þinni, a.m.k. fyrstu tvær vik-
urnar eða svo.
m Það er ekki vitað til
þess að karlmaður hafi beð-
ið bana þó að kona hafi neit-
að að sofa hjá honum.
m Ef þú ert að kela við
karlmann og hann býður þér
að gista en segir að hann
„ætlist ekki til neins frekar",
þá er hann annaðhvort að
blekkja þig eða sjálfan sig.
m Fótabúnaður karlmanns
er spegill sálar hans. . .
m . ef hann er í hvítum
sokkum við svarta skó skaltu
gleyma sambandinu.
23 Karlmenn verða alltaf
fúlir þegar konur skilja eftir
abrauðmylsnu í rúminu.
Það er vonlaust mál að
fá hann til að henda Bubba-
plötunum eða KR-bolnum.
Ekki reyna að fá hann til
þess.
23 Karlmenn eru ekki
huggulegir í náttfötum.
Ej| ÞÉR Á ALDREI EFTIR
AÐ TAKAST AÐ BREYTA
HONUM!!! □
9.TBL.1995 VIKAN 57