Vikan - 20.11.1995, Blaðsíða 8
ISLENSK FEGUKÐ
vilja allir vinna en fari maður
með það hugarfar í keppnina
að sætta sig ekki við annað
en sigur verður þátttakan
gleðisnauð. Það er kostur að
vera ákveðinn og með sjálfs-
traust en löstur að vera stöð-
ugt að troða sér áfram á
kostnað annarra. Það hefur
alltaf gefist best að vera
heiðarlegur og samkvæmur
sjálfum sér. Ég varð ekki fyrir
vonbrigðum með 3. sætið.
Þegar Ungfrú Norðurlönd
keppnin fór fram var mikið
fjallað um sigur íslenskra
stúlkna undanfarin ár og
norski dómarinn var hrein-
lega með svívirðingar í okkar
garð.“
Finnst þér eitthvaö nei-
kvætt viö fegurðarsam-
keppni?
„Mér finnst flest mjög já-
kvætt. Þó hefur mér fundist
sumar stelpur hreinlega ekki
Ungfrú Norö-
urland, Sig-
ríöur Ósk
Kristjáns-
dóttir, tók
einnig þátt í
Skandinavíu-
keppninni.
Hér sjást ís-
lensku full-
trúarnir í
góöum gír f
sundlauga-
garöi í Hels-
inki. Sigríöur
Ósk heillaöi
fjölmiöiafólk
mest allra
keppenda.
ráða við þá athygli sem þær
hafa fengið í gegnum tiðina
eftir fegurðarsamkeppni. Ég
var þessarar skoðunar áður
en ég var sjálf þátttakandi og
hef séð þetta gerast. Þeim
fannst þær hreinlega vera yf-
ir aðra hafnar. Einnig verður
að gæta þess að stelpur séu
ekki of ungar þegar þær taka
þátt í keppninni."
Fékkst þú mikla athygli í
kjölfar titilsins Ungfrú
Suöurnes?
„Töluverða, og líka umtal,
en þó yfirleitt jákvætt. Ég hef
aldrei sett mig á háan hest
og mun aldrei gera það. Ég
veit hvar ég hef sjálfa mig og
Brynja Björk eftir aö hafa veriö krýnd Feguröardrottning
Suöurnesja 1995. Hún er hér meö foreldrum sínum; Önnu
Siguröardóttur starfsstúlku á leikskóla og Herði Karlssyni
leigubílstjóra.
titillinn gaf mér ákveðna
reynslu en hann breytti mér
ekki að nokkru leyti.“
Strákarnir hafa legið í
hrönnum í blómabeðinu
við gluggann þinn?
„Nei, ég get ekki sagt það.
íslenskir karlmenn haga sér
ekki þannig. Þeir eru alltaf
bestir!“
Hefuröu í hyggju að nota
fegurðina þér til framdrátt-
ar með einhverjum hætti
næstu árin?
„Ég held að framkoman
ráði mestu um það. Ég hef
verið í nokkrum auglýsingum
en þó hefur stóra tækifærið
ekki komið upp á borð til
mín.“
Hver er fegursta kona ís-
lands?
„Guðlaug Karlsdóttir, föð-
ursystir mín. Hún er 78 ára
en lítur ekki út fyrir að vera
deginum eldri en fimmtug.“
Hvern vilt þú sjá sem
næsta forseta?
„Ég er sannfærð um að
Hjálmar Árnason, þingmaður
okkar Suðurnesjamanna,
yrði verðugur fulltrúi þjóðar-
innar. Hann er fyrrverandi
skólameistari og öndvegis
maður.“
Ertu pólitísk?
„Ég styð Framsókn en ég
nenni ekki að rífast. Mér
finnst pólitík einkennast of
mikið af skítkasti og leiðind-
um. Það er ekki fyrir mig."
Hvernig sérðu þig fyrir
þér eftir tíu, fimmtán ár?
„Þá verð ég vonandi kom-
inn með tvö, þrjú börn og
yndislegan eiginmann. Við
munum búa í glæsilegu húsi,
sem mig hefur dreymt um,
og ég verð vonandi orðin
tannlæknir."
Hvaö er spennandi viö
það að vera uppi í allskon-
ar fólki heilu og hálfu dag-
ana?
„Ég hef bara svo mikinn
áhuga á tönnum. Þær eru
það fyrsta sem ég tek eftir
þegar ég hitti fólk. Þetta hlýt-
ur að vera meðfæddur
áhugi, eða mín örlög! Áður
en ég hef nám í tannlækn-
ingum langar mig til að
skoða mig um í heiminum,
m.a. dvelja veturlangt í París
við nám í frönsku. Vonandi
fer ég þangað næsta haust."
Hvað veldur því aö þú
hefur fengist við svo
margt? Lært á píanó,
stundað íþróttir auk þess
að vera í nokkrum störfum
samtímis?
„Líklega einskær áhugi á
að upplifa sem flest og viða
að mér reynslu. Eftir að ég
lauk stúdentsprófi starfaði
ég hjá Kynnis-
ferðum, seldi er-
lendum ferða-
mönnum ferðir
um ísland. Ég
vann líka á sól-
baðsstofu og í fé-
lagsmiðstöð. Eftir
sex ára píanó-
nám hóf ég að
iðka handbolta og
fótbolta og það
var skemmtilegur
tlmi.“
Hver er feg-
ursta æsku-
minningin?
„Tíminn sem ég dvaldi hjá
ömmu að Fitjum ( Skagafirði.
Þar hópaðist saman fjöldi
systkina og frændsystkina
og sá tími er dýrmætur í
endurminningunni.“
Hvað dýr náði að heilla
þig upp úr skónum?
„Kýrnar. Þær eru alveg
yndislegar, hægar og pass-
lega þrjóskar. Kannski sá ég
sjálfa mig í þeim af því að ég
er naut!“
Hvað finnst þér um þá
staðreynd að erlendar
skuldir okkar nema um
milljón á hvert manns-
barn?
„Þetta er skelfileg tilhugs-
un. Satt að segja sé ég ekki
fram á það hvernig við ráð-
um fram úr þessum vanda.
Kannski er ráðið að skipta
um fólk sem telur sig vera að
stýra landinu."
Ertu hrifnari af einum
stjórnmálamanni en öðr-
um?
„Ég hef alltaf verið rosa-
lega hrifin af Steingrími Her-
mannssyni."
Er sú hrifning áþekk
þeirri sem þú hefur á
kúm?
„Kannski! Steingrímur er
hægur og örugglega þrjósk-
ur. Þá líst mér vel á móður-
bróður minn Steindór Sig-
urðsson, framsóknarmann.
Hann er líka eins og kýrnarl'1
Manstu eftir þeim degi
sem þú varst fyrst ástfang-
in?
„Já. Það var í byrjun maí
1989. Ég varð ástfangin á
lokaballinu f skólanum og
sambandið entist í 5 ár.“
Nú áttu þrjár alsystur og
fjögur hálf-systkyni, hvað
finnst þér mikilvægast í
sambandi foreldra og
barna?
„Að þau geti talað saman
um hvað sem er og beri virð-
ingu hvert fyrir öðru.“
Gætirðu
hugsað þér aö
flytja frá Suður-
nesjum?
„Já. Ég er orðin
svo þreytt á rok-
inu. Það er
reyndar mjög gott
að búa á Suður-
nesjum því þar er
allt til alls en þeg-
ar ég byrja í há-
skólanum mun ég
væntanlega leigja
mér íbúð í
Reykjavík."
Hvaða gælun-
öfn hafa loðaö við þig?
„Aðeins móðir mín fær að
kalla mig Brynfríði en eldri
systir mín kallar mig Bearn-
ie.“
Skammastu þín fyrir eitt-
hvað sem þú hefur gert?
„Ég sé ofboðslega eftir því
að hafa bitið Hörpu, yngstu
systur mína, í bakið þegar
við vorum litlar." □
Ný mynd af þeirri
konu sem Brynja
Björk álýtur fegurstu
konu íslands.
8 VIKAN 11. TBL. 1995