Vikan - 20.11.1995, Side 21
TEXTI:
GERÐUR
KRISTNÝ
UÓSM.:
MAGNÚS
HJÖRLEIFÍ
SON
Steinunn þarf ekki að
hugsa sig lengi um
þegar hún er beðin
um viðtal, heldur tekur því
eins og hverju öðru því sem
að höndum ber. Hún er held-
ur ekki þekkt fyrir að liggja of
lengi yfir ákvarðanatökum.
Hún giftist til dæmis eigin-
manni sínum Ólafi Haralds-
syni eftir að þau höfðu að-
eins verið saman í sjö mán-
uði.
„Margir urðu mjög hissa
yfir því hvað við giftum okkur
fljótt og sumir spáðu því að
sambandið myndi ekki end-
ast lengi. Ég trúi því hins
vegar að maður gifti sig ekki
nema einu sinni á ævinni."
Ólafur rekur fyrirtækið
Reykvísk útgáfa ásamt fleir-
um og gefur fyrirtækið meðal
annars út blöð og bæklinga
og annast umbrot og texta-
gerð. Þau Steinunn giftu sig
í Laugarneskirkju 1. ágúst
1992 og gaf sr. Sigrún Osk-
arsdóttir, vinkona Steinunnar
úr stúdentapólitíkinni, brúð-
hjónin saman. Brúðkaups-
ferðin var ekki farin fyrr en
síðastliðið sumar. Hún var
farin til Danmerkur þar sem
hjónin dvöldu í tvær vikur.
Steinunn er mjög yfirveg-
uð í framkomu. Hún situr
bein í baki með hendur í
kjöltu. Fötin, sem hún klæð-
ist, eru í dökkum jarðarlitum.
Mörgum gæti líka virst Stein-
unn vera mjög jarðbundin
kona.
„Það hafa margir sagt að
ég sé jarðbundin en mér
finnst það ekki. Hugmyndir
mínar í stjórnmálum eru til
dæmis ekki jarðbundnar.
Kannski set ég skoðanir
mínar aðeins þannig fram.
Ég hef reynt að tileinka mér
að setja þær fram án þess
að vera með æsing. Stjórn-
málamenn verða að gefa
því, sem þeir segja, ákveðið
vægi og ég tel æsing ekki
vera réttu leiðina til þess. Ef
til vill þyki ég jarðbundin
vegna þess hvað ég varð
snemma fullorðinsleg. Ég
j „Fyrir mér er Kvenna-
listinn ekki heilög stofnun.
Hugmyndirnar, sem hann
byggir á, eru hins vegar
aiveg ómissandi í
íslenskum stjórnmálum."
j „Án efa varð fráfall
móður minnar til þess að
ég þroskaðist snemma og
varð fljótt ábyrgðarfull."
■ Steinunn Valdís
Oskarsdóttir lét fyrst að
sér kveða i stúdenta-
pólitíkinni. Nú situr hún í
borgarstjórn fyrir hönd R-
listans og gegnir
formennsku í íþrótta- og
tómstundaráði.
j Gerður Kristný ræddi
við Steinunni um
Kvennalistann, pólitíkina
og móðurmissinn.
11. TBL. 1995 VIKAN 21
ÓIJUKNMAL