Vikan - 20.11.1995, Blaðsíða 78
KOKUBLAÐ VIKUNNAR
IKOKUBUUNNU
►Furstynja er nafnið á kaffistell-
inu á bls. 46 og 47. Það kemur frá
þýska fyrirtækinu Furstenberg sem
er eitt elsta postulínsfyrirtæki þar í
landi. Kaffistellið er fílabeinslitað
með 24 karata gullrönd, sígilt stell
og vandað. Fæst hjá Tékk-Kristal í
Kringlunni og Faxafeni við Suður-
landsbraut.
►Kaffistellið á bls. 45 fæst í Maga-
sín Húsgagnahöllinni. Það heitir
Emely Rose, er úr postulíni og
kemur frá Ancher Iversen í Dan-
mörku. Einnig er til samskonar
matarstell. Stellið má setja í upp-
þvottavél og örbylgjuofn. Tólf
manna kaffistell kostar 14.690
krónur (tólf kaffibollar með undir-
skál, ábætisdiskar og kaffikanna).
Kaffibolli með undirskál kr. 490,-
stk. Ábætisdiskur kr. 490,- stk.
Kaffikanna kr. 2.930,-. Boðið er
upp á raðgreiðslur til margra ára.
-^Kaffistellið í opnunni er með
mynstrinu Old Coyntry Roses.
Það er konunglegt breskt postulín
frá Royal Albert. Stellið er hægt að
fá bæði í kaffi og mat ásamt mörg-
um skemmtilegum fylgihlutum.
Stellið fæst ásamt fleiri fallegum
vörum frá fyrirtækinu Royal Doul-
ton í verslun Guðlaugs A. Magn-
ússonar, Laugavegi 22a. Silfur-
borðbúnaðurinn er einnig frá Guð-
laugi A. Magnússyni og heitir
mynstrið „vor“.
•^Matar- og kaffistellið á bls. 43 er
með Hampton Court mynstrinu frá
Staffordshire og er eitt af stellunum
sem fæst hjá Byggt og Búið í
Kringlunni. Mögulegt er að kaupa í
kassa bolla og diska fyrir fjóra eða
sex. Einnig er hægt að kaupa
staka bolla og diska auk ýmissa
aukahluta svo sem skálar, föt,
sósukönnur, kaffikönnur og tekatla.
SYKURLAUS
SMÁBRJ4UD
OG KOKUR
MUFFINS
(u.þ.b. 15 stk.)
Sjá mynd bls. 78
2 egg
2 dl Hermesetas strásæta
(samsvarandi 2 dl af sykri)
1 Vá dl mjólk
50 g brætt smjör eða smjör-
líki
2 ’/á dl hveiti (150 g)
2 tsk. lyftiduft
Til skreytingar:
Saxaðar möndlur eða
möndluflögur
Aðferð:
Egg og sætuefni þeytt vel
saman. Bætið í bræddu
smjöri ásamt mjólk. Blandið
saman hveiti og lyftidufti og
bætið því saman við. Hrærið
vel. Deigið látið í pappírs-
form, möndlunum stráð yfir
og bakað í miðjum ofni við
175° hita í u.þ.b. 10 mín eða
þar til kökurnar eru fallega
Ijósbrúnar. Þessar kökur má
frysta.
HVEITIBOLLUR
(u.þ.b. 30 stk.)
Sjá mynd bls. 78
50 g pressuger
75 g smjör
3 dl mjólk (má vera léttmjólk)
/2 - % dl strásæta
1 tsk. kardemommur
8 dl hveiti
þeytt egg til penslunar og
möndluflögur
Aðferð:
Myljið pressugerið í skál.
Bræðið smjörið í potti og
bætið mjólkinni út í. Hitið í
37°. Hellið mjólkurblöndunni
yfir gerið og hrærið þar til
það er uppleyst. Sætuefni,
kardemommum og mestum
hluta hveitisins bætt í hrær-
una. Hnoðið saman í mjúkt
en ekki of þétt deig. Látið
deigið í skál, breiðið rakt
stykki yfir og látið deigið lyfta
sér í u.þ.b. í 30 mín. Deigið
sett á hveitistráð borð og af-
gangnum af hveitinu hnoðað
upp í þar til það er orðið
mjúkt. Rúllið því síðan upp í
lengju og skiptið í 30 hluta.
Myndið bollur úr hlutunum
og raðið á bökunarpappírs-
klædda plötu. Breíðið rakt
stykki yfir bollurnar og látið
þær lyfta sér á hlýjum stað í
30 mín. Bollurnar penslaðar
með hrærðu eggi og skreytt-
ar með möndluflögum. Bak-
aðar við 250° hita í miðjum
ofninum í u.þ.b. 10 mín. eða
þar til þær hafa fengið á sig
fallegan lit. Látnar kólna á
rist og breiðið dúk yfir á
meðan.
LÍTIL
FORMKAKA
SJÁ MYND BLS. 78
4 egg
1 dl strásæta (Hermesetas)
1 tsk. lyftiduft
50 g hveiti
50 g kartöflumjöl
Aðferö:
Egg og strásæta þeytt vel
saman. Þurrefnunum bætt út
í og hrært. Sett í vel smurt
og raspstráð form. Kakan
sett í kaldan ofn og bökuð
við 200° hita í 30 mín.
NOTIÐ
SÆTUEFNIN
RETT
Til eru allmargar gerðir
sætuefna sem koma eiga í
stað sykurs. Lesið vel leið-
beiningar á umbúðunum
varðandi notkun þeirra og
hvort þau þoli hitun og séu
þar af leiðandi nothæf til
matseldar og baksturs.
Á umbúðunum er einnig
að finna upplýsingar um hve
mikið sætuefni skuli nota í
stað þess magns sykurs
sem gefið er upp í uppskrift.
Aðeins fá sætuefni (og ekk-
ert af þeim efnum sem hér
fást nú) hafa sama eðlis-
massa og strásykur. Þess
vegna verður að nota bolla-
mál eða vökvamál (t.d. desi-
lítramál) til að færa magn
sykurs yfir á það sætuefni
(t.d. strásætu) sem nota á.
Hinsvegar er t.d. rúmmál
Hermesetas strásætu það
sama og sykurs þannig að 1
dl af strásætu = 1 dl sykurs.
Hafið hugfast að þrátt fyrir
að kökurnar séu sykurlausar
geta þær innihaldið mikið
magn fitu og eru því ekki allt-
af heppilegar fyrir sykur-
sjúka.
78 VIKAN n.tbl 1995