Vikan - 20.11.1995, Blaðsíða 25
Ieimili Lauren Hau-
ser, Magnúsar Ragn-
arssonar og tíu mán-
aða gamals sonar þeirra,
Stefáns, er við Sólvallagötu í
Reykjavík. Það vekur athygli
að gluggarnir, sem snúa út
að götunni, ná frá lofti og
niður á gólf og líkjast óneit-
anlega speglunum í ballett-
sölunum sem Lauren hefur
lifað og hrærst í undanfarin
tuttugu og átta ár. Hjónin
kynntust í gegnum sameig-
inlega kunningja í New York
vorið 1987 þar sem Magnús
stundaði leiklistarnám. „Fyrst
þegar ég hitti Lauren var
götuhátíð í gangi og hún rétt
náði að skjótast út úr leik-
húsinu á milli sýninga. Hún
var með stór, svört sólgler-
augu allan tímann vegna
þess að hún var svo mikið
máluð; með fölsku augnhár-
in og allar græjumar." Um
ást við fyrstu sýn var ekki að
ræða. „Ég var ástfangin af
öðrum en mér fannst Magn-
ús sætur," segir Lauren.
„Þetta tók ansi langan tíma,“
segir Magnús. Tveimur vik-
um síðar hélt hann í sumarfrí
til íslands. Ballerínan gerði
sér grein fyrir þvf að hún
væri orðin ástfangin af ís-
lendingnum unga en bjóst
ekkert við að hann kæmi aft-
ur til New York. Hann kom
þó um leið og haustvindarnir,
þau byrjuðu að vera saman
og það gekk á ýmsu. í byrjun
hafði það áhrif á sambandið
að Magnús vissi ekki hvort
hann ætlaði að vera áfram í
Bandaríkjunum. „Svona
millilandasambönd eru
voðalega erfið," segir hann.
„Ég man þegar ég kom
fyrst til íslands," segir Laur-
en. „Við vorum heima hjá for-
eldrum hans og hann var að
sýna mér íslendingasögurnar
sem hann á. Ég sagði að
hann ætti að taka þær með
sér til New York en hann
sagðist vilja hafa þær hér. Þá
gerði ég mér grein fyrir því
að hann mundi flytja aftur til
íslands. Ég var staðráðin í að
fylgja honum hvert sem hann
færi.“ Hjónin fluttu ekki til ís-
lands fyrr en fyrir tveimur og
hálfu ári þar sem Lauren var
að Ijúka ferli sínum hjá New
York City Ballet. „Hann var
mjög þolinmóður og beið eftir
mér,“ segir eiginkonan. Hún
viðurkennir að erfitt hafi verið
að segja skilið við dansflokk-
inn - og sviðið. „Þetta var
engu að síður góður tími til
að hætta. Ég var orðin þrjátíu
og fimm ára og vildi eignast
börn,“ segir hún og hampar
Stefáni. „Núna miðla ég af
reynslu minni hjá íslenska
dansflokknum.“
TEXTI:
SVAVA
JÓNS-
DOTTIR
UÓSM.:
GUNNAF
GUNN-
ARSSON
Ballettmeistarinn aö störfum meö íslenska dansflokknum.
11. TBL. 1995 VIKAN 25