Vikan - 20.11.1995, Blaðsíða 82
KOKUBLAÐ VIKUNNAR
Sextánda hverfið er eitt
af fallegri hverfum
Parísarborgar og það-
an kemur hún, konan sem
vegna áhuga á ferðalögum
kom hingað til að gera kvik-
mynd um ísland með nokkr-
um félögum sínum.
Þá var hún aðeins tvítug
að aldri. Núna, einum 16 ár-
um síðar, er hún búsett á ís-
landi ásamt eiginmanni sín-
um, John, og tveimur dætr-
um, en John er kannski
þekktastur fyrir að hlauga
leiðina milli Reykjavíkur og
Hafnafjarðar hvern dag.
Þau eru óvenjuleg þessi
„íslensku hjón“. Hún fer um á
hjóli og vinnur mikið. Hún hef-
ur nú hafið innflutning á
frönsku brauði og frönskum
kökum beint frá Paris og er
verslun hennar í Skeifunni 7.
Hún segir að hún versli við
besta fyrirtæki sem völ er á en
það er „Les Grands Moulins
De París“, fyrirtæki sem flytur
út brauð og kökur til 27 landa
og rekur 14 verksmiðjur sem
dreifðar eru um Frakkland og
eru þekktar fyrir að nota að-
eins besta fáanlegt hráefni.
Við gefum Beatrice orðið.
„Ég er mikil matargerðar-
kona og saknaði þess að fá
ekki brauðin og kökurnar
sem ég átti að venjast. Það
er nú ástæðan fyrir því að ég
fór að hugleiða að hefja inn-
flutning á þessum vörum
hingað til íslands. Úr þessu
varð síðastliðið haust. Ég
byrjaði smátt en viðskiptin
fara ört vaxandi.
La Baguette fyrirtækið
hefur sérstaka ánægju af að
bjóða íslendingum þessar
frönsku úrvalsvörur sem eru
frystivara sem þarf aðeins
að baka í nokkrar mínútur í
eigin ofni eða afþíða til að fá
þær sem nýkomnar úr bak-
aríinu.
Mér sýnist að þessi vara
kæmi sér vel úti á landi, í litl-
um þorpum og bæjum sem
hafa ekki eigin brauðgerðar-
hús. Við erum að leita að að-
ilum sem vilja dreifa fyrir
okkur vörunni úti á lands-
byggðinni. Það eina sem
þarf er að eiga góða frysti-
kistu en La Baguette selur
einnig frystikistur í mörgum
stærðum, á mjög góðu
verði.“
Einnig má geta þess að
Beatrice tekur að sér að sjá
um máltíðir hjá fyrirtækjum,
stórar og smáar, og geta fyr-
irtæki og félög pantað með
litlum fyrirvara morgunkaffi-
borð, hádegisverð, síðdeg-
iskaffi eða kvöldverð, allt eft-
ir aðstæðum, og sér Beatr-
ice um að útvega allt sem til
þarf, en hún er meistara-
kokkur.
Blaðamaður Vikunnar
gerði nýlega tilraun og bauð
tíu konum til matarboðs sem
La Baguette og Beatrice sáu
um. Beatrice kom með tvær
frystikistur með sér og skellti
upp veislu eitt sunnudags-
kvöld þegar máninn skein
sem skærast.
Það var glatt á hjalla, mik-
ið borðað og maturinn, sem
var kominn beint úr hámenn-
ingunni í París, dásamaður.
Á boðstólum voru bökur,
smjörbrauðshorn, lang-
brauð, Ijós og dökk, pottrétt-
ur, kryddkartöflur og eftirrétt-
ir, kökur, sítrónu- og ávaxta-
bökur, bæði litlar og stórar,
sem bornar voru fram með
frönsku kaffi og líkjör.
Eftir matinn versluðu svo
konurnar það sem þær
höfðu áhuga á að hafa heim
með sér og var mikið fjör við
frystikisturnar sem stóðu inni
í stofu.
„Þetta er góð hugmynd
fyrir saumaklúbba og herra-
klúbba; breyta til og hafa
„franskt kvöld'* þar sem hver
borgar fyrir sig og allir fá að
smakka það sem þá langar
til. Og versla á eftir eftir því
sem hver vill“ segir Beatice.
Það nýjasta, sem er að
frétta frá La Baguette, er að
það hefur opnað búð í versl-
unarmiðstöðinni Eiðistorgi á
Seltjarnarnesi og eru þar til
sölu vörurnar sem Beatrice
hefur valið til að kynna okkur
íslendingum. □
82 VIKAN 11. TBL. 1995
TEXTI: ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR UÓSM.: SVEINBJÖRN ÓLAFSSON