Vikan - 20.11.1995, Page 76
KOKUBLAÐ VIKUNNAR
INGIRÍÐARTERTA
SJÁ MYND BLS. 76
Hnetubotn:
2 egg
3 dl sykur
100 g smjörlíki
1 'A dl mjólk
100 g saxaðar möndlur
2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
Egg og sykur þeytt þar til
það er létt og Ijóst. Smjörlíkið
brætt og því hrært saman við
ásamt mjólkinni og þurrefnun-
um. Bakið við 150° í um 1 klst.
Marengsbotn:
3 eggjahvítur
125 g flórsykur
Þeytið eggjahvíturnar og
flórsykurinn mjög vel. Bakið
við sama hita og hnetubotn-
inn f 1 klst. Slökkvið þá á
ofninum og látið marengs-
botninn kólna inni í honum.
Súkkulaöibotn:
börkur af V2 appelsínu
safinn úr !4 appelsínu
1 tsk. sykur
2 tsk. koníak
100 g suðusúkkulaði
80 g kókosfeiti
Sjóðið saman appelsínu-
safa, appelsínubörk, sykur og
koníak. Þegar appelsínubörk-
urinn er orðinn mjúkur þá er
súkkulaðinu og kókosfeitinni,
sem var brætt saman í
vatnsbaði, sett út í. Sett í laus-
botna mót og kælt vel. Kakan
lögð saman með rjóma -
hnetubotn, rjómi, marengs-
botn, rjómi, súkkulaðibotn -
minnst 2 dögum fyrir neyslu.
KÓKOSMJÖLSTERTA
M/MYNTUBRAGÐI
SJÁ MYND BLS. 76
(2 botnar)
5 eggjahvítur
200 g sykur
200 g kókosmjöl
Eggjahvítur þeyttar vel, j
sykurinn settur út í og
síðast kókosmjölið. /!
Sett í 2 vel smurð og
hveitistráð, laus-
botna form.
Fyllings:
2/2 dl rjómi
3 stki. Pipp súkkulaði
Bakiðvið 180° f 15-20 mín.
Þegar botnarnir eru orðnir
kaldir eru þeir lagðir saman
með 2 '/2 dl af þeyttum rjóma
og 3 stk. Pipp piparmyntu-
súkkulaði sem eru brytjuð
frekar smátt.
Súkkulaöikrem:
5 eggjarauður
60 g flórsykur
50 g smjör
100 g suðusúkkulaði
Smjör og eggjarauður
hrært vel saman. Flórsykri
og bræddu suðusúkkulaði
bætt út í. Hrært vel. Smurt
yfir kökuna.
ÁVAXTAKAKA
M/NOUGATKREMI
SJÁ MYND BLS. 76
(2 botnar)
250 g smjörlíki
200 g sykur
4 egg
1 /2 tsk. vanillusykur
1 tsk. lyftiduft
180 g hveiti
Hrærið saman smjörlíki og
sykur þar til það verður létt
og Ijóst. Bætið eggjunum út
í, einu og einu í senn. Að
síðustu er hveiti, lyftiduft og
vanillusykur sett út í. Setjið í
2 vel smurð og hveitistráð,
lausbotna form.
Bakið við 180° í 15-20 mín.
Fylling:
2 14 dl rjómi, þeyttur
1 V2 banani, sneiddur
1 kfví, brytjað
76 VIKAN
11. TBL. 1995
'A dós ananas
10 jarðarber
Avextirnir skornir smátt og
settir út í rjómann.
Botnarnir lagðir saman m.
fyllingunni.
Nougatkrem:
100 g smjör
100 g blöd nougat
1 egg
100 g flórsykur
2 msk. rjómi
Hrærið smjör og nougat
vel saman. Bætið eggi, flór-
sykur og rjóma út í. Hrært
vel og smurt yfir kökuna.
MOMMUDRAUMUR
SJÁ MYND BLS. 76
(2 botnar)
100 g smjörlíki
200 g sykur
2 egg
% dl kalt vatn
% dl mjólk
14 tsk. vanilla
'A tsk. salt
180 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
3 msk. kakó
Smjörlíki og sykur hrært
saman, eggjunum bætt út í
og sfðan þurrefnum ásamt
mjólkinni og vatninu. Bakist
við 180°hita f 15-20 mín.
Súkkulaðikrem:
50 g smjörlíki
200 g flórsykur
2 /2 msk. kakó
2 14 msk. kakómalt
1 egg eða 2 eggjarauður
1-2 msk. mjólk
vanilludropar
Smjörlíki hrært þar til það
er orðið létt og Ijóst. Síðan er
öllu bætt út í og hrært vel
saman. Botnarnir lagðir
saman með kreminu.
MARENGSSMÁKÖKUR
SJÁ MYND BLS. 76
Uppáhald barnanna.
3 eggjahvítur
2 bollar kornflögur
'A bolli hakkaðar hnetur
'A tsk. vanilludropar
1 bolli sykur
1 bolli kókosmjöl
/i bolli gróft saxað
Petit súkkulaði frá
Freyju
Eggjahvíturnar
eru stífþeyttar
með sykrinum.
Öðru er
blandað
varlega
saman
við. Sett með teskeið á bök-
unarplötu, sem hefur verið
klædd með bökunarpappír,
og bakað við 180° þar til kök-
urnar eru Ijósbrúnar. Látið
kólna aðeins áður en kök-
urnar eru teknar af plötunni.
AMERÍSK RÚLLUTERTA
SJÁ MYND BLS. 76
4 eggjarauður
'A bolli sykur
/2 tsk. vanilludropar
Fyrst þeyta rauðurnar, síð-
an bæta sykrinum og vanillu-
dropunum út í og þeyta vel.
4 eggjahvítur
/2 bolli sykur
Þeyta þar til hvíturnar eru
stífar en þá skal setja sykur-
inn út í. Síðan blanda þessu
saman við eggjarauðurnar.
% bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
'A tsk. salt
Þessu er að endingu
blandað varlega út í.
Klæðið ofnskúffuna með
bökunarpappír. Penslið með
bræddu smjöri. Bakið við
220° í 12-15 mín. Þegar kak-
an er bökuð er henni hvolft á
bökunarpappír sem á hefur
verið stráð miklum sykri.
Rúllið kökunni upp og látið
hana kólna þannig. Þegar
kakan er orðin köld er slétt
úr henni, góðri sultu smurt
yfir hana og henni rúllað upp
aftur.
RÚSÍNUSMÁKÖKUR
SJÁ MYND BLS. 76
250 g hveiti
250 g smjörlíki (smjör)
250 g sykur
250 g kókosmjöl
1 egg
3 tsk. lyftiduft
rúsínur
Allt hnoðað saman, rúllað
upp í lengjur og kælt. Skorið
í sneiðar, raðað á bökunar-
plötu og bakað við 200° þar
til kökurnar hafa aðeins tekið
lit.
LOFTKÖKUR
SJÁ MYND BLS. 76
750 g flórsykur
8 tsk. kakó
2 tsk. hjartarsait
2 egg
Flórsykri, kakói og hjartar-
salti blandað saman, eggj-
unum bætt út í, hnoðað,
kælt. Mótað í hakkavél. Bak-
að við lítinn hita (130-150°) í
u.þ.b. 7 mín.