Vikan - 20.01.1996, Síða 62
Sóiariag. people, I very happy," segir
Sebi eöa „þiö mjög ham-
ingjusamar, ég líka ham-
ingjusamur." Já lífið gæti
ekki verið yndislegra. Eftir
þriggja tíma siglingu er drep-
iö á vélinni og netiö lagt. Við
sitjum reyndar bara eins og
fínar frúr og horfum á þá
vinna. Kona Seba hefur út-
búiö þetta fína nesti sem viö
borðum meðan við njótum
sólarlagsins. Hrísgrjón og
nýjan, steiktan hákarl sem
Marta og Magga láta fara vel um sig
meöan beöið er eftir aö komast í land.
bragöast konunglega þótt
hann sé auðvitaö ekkert á
viö hinn vestfirska. Við rekj-
um garnirnar úr Seba um líf
sjómanna á þessum slóöum
og þeir lifa greinilega tiltölu-
lega góðu lífi á indverskan
mælikvarða. Aöalerfiöleik-
arnir eru aö eignast bát. En
þó að Sebi sé ekki nema þrí-
tugur á hann þegar tvo. For-
eldrar hans hjálpuðu honum
aö kaupa þann fyrsta fyrir tíu
árum. Síöan kynntist hann ít-
ölskum manni sem gaf hon-
um 95.000 rúpíur eða um
200.000 íslenskar krónur til
aö kaupa nýjan bát, vél og
net. Strax á fyrsta mánuöi
náöi hann næstum því aö
borga bátinn upp en sá ít-
alski vildi ekki taka við pen-
ingunum til baka. Sebi á því
peninga í banka sem hann
segist nota til aö endurnýja
vél og veiðarfæri. Sebi segir
að þaö sé gott að vera fiski-
maður. Hann sé eigin herra
og fari á sjó þegar vel fiskist,
annars taki hann sér bara frf.
Á sumrin, meöan á regntím-
anum stendur, er ekki hægt
aö veiða. Þá dyttar hann aö
bátnum eöa fer í sumarfrí
sem er meira en flestir Ind-
verjar geta leyft sér. Kona
Seba fer meö aflann og sel-
ur hann á fiskmarkaði í
næsta þorpi. Báturinn fær
helming af andvirði aflans en
afgangnum er skipt milli há-
setanna sem eru þrír, einn í
hverri ferð. Stærsti hluti Ind-
verja er hindúatrúar og borö-
ar ekki fisk en grundvöllur
fyrir veiöum er góöur þarna
á ströndinni þar sem tiltölu-
lega mikið er af kristnu fólki í
Góa fylki. Ferðamenn eiga
þarna líka stóran hlut aö
máli. Kílóverö á túnfiski
hækkaði t.d. tífalt þegar
hann varö vinsæll matur á
veitingahúsum.
ÞRÖNGT MEGA LÚNIR
LIGGJA
Nú er komiö aö háttatíma
og þá fer gamanið aö kárna.
Hásetinn verður aö engu og
hniprar sig saman í skutn-
um. Magga brýtur sig saman
og leggst þvert yfir bátinn.
Ég verö að láta mig hafa þaö
að troöa mér í stafninn
ásamt Seba. Ég dreg inn
magann og sný mér aö
borðstokknum. Þaö er mjög
þröngt og Sebi notar tæki-
færið og tekur utan um mig
þegar hann leggst niöur. Nei,
fjandakorniö, svo þröngt er
nú ekki hérna, hugsa ég
meö mér og geri honum
skiljanlegt aö hann verði aö
snúa sér í hina áttina sem
hann gerir aö lokum. Karl-
menn! hugsa ég. Þaö er ekki
laust viö aö viö systurnar
finnum fyrir sjóveiki þar sem
báturinn liggur og vaggar en
meö viljastyrk er hún kveðin
niður. Nú er komið myrkur
og þúsundir stjarna blika og
sama tungliö og heima skín
þó aö það snúi öðruvísi.
Okkur byrjar að kólna en
teppin þunnu bjarga því
nokkurn veginn. Viö dormum
til hálfþrjú þegar þeir byrja
aö draga inn netin við
kyndlaljós. Okkur systrunum
líst ekki á. Allt bendir til aö
viö séum fiskifælur, þrátt fyrir
allt. Um fjögur er verkinu lok-
iö og þá hefur lika ræst úr
aflanum. Einn stórfiskur sem
Sebi segir drýgindalega aö
hann geti fengið 800 rúpíur
eöa 1700 krónur fyrir. Þetta
hljómar reyndar hálf ótrúlega
þegar sex manna fjölskylda,
sem viö hittum í fátækra-
hverfi, þurfti að lifa á 600
rúpium á mánuöi. Annar
minni fiskur er þarna sömu
tegundar, einn sem þeir kalla
„kingfish", tveir túnfiskar og
krabbi. Viö siglum til baka í
myrkrinu og sólin er aö
koma upp yfir pálmatrén
þegar við náum landi á ný.
Stallsystur okkar tvær koma
um svipaö leyti og þar hefur
líka fiskast vel.
„ÉG SIGLA MED
YKKURSKOÐA
HÖFRUNGA"
Sebi, skælbrosandi: „Nú
þiö fara sofa. Koma aftur
klukkan 10:00. Ég sigla með
ykkur skoða höfrunga. Kost-
ar ekkert. Þiö vinir mínir. Þiö
nemendur." Síöan réttir hann
okkur annan túnfiskinn og
segir okkur að fara meö
hann á uppáhaldsveitinga-
staöinn okkar og láta elda
hann fyrir okkur þegar viö
komum aftur. Sem viö gerum
og ekki er hægt aö lýsa því
með orðum hvaö hann er
góöur. Viö förum svo allar
meö þessum nýfengna vini
okkar og sjáum höfrungana
leika sér. Tilveran er dásam-
leg. □
62 VIKAN 1. TBL. 1996