Vikan - 01.02.1999, Blaðsíða 54
l
...Bókinni Alias Grace eftir
Margaret Atwood. Atwood er
þekkt hér á landi fyrir bók sína
Saga þernunnar en þessi nýjasta af-
urð er ekki síðri. Þar er sögð saga
konu sem dæmd var samsek í morð-
máli í Kanada um síðustu aldamót.
Kanadamenn skiptust mjög í tvö horn
á þeim tíma um hvort stúlkan væri hið
versta skrímsli eða saklaus unglingur
sem hefði verið táldreginn af óprúttn-
um manni til óhæfuverka. Bókin er einstaklega vel skrifuð
og í raun er ekki tekin afstaða til þess hvort Grace
eitthvert frumkvæði að glæpnum eða ekki og les-
andanum látin sá dómur eftir. Bókin segir hins veg-
ar margt um tíðarandann; að fimmtán ára barn skuli
hafa verið talið slíkt tálkvendi að
það lciddi til tveggja
morða. Atwood tekst
einnig frábærlega að lýsa
aðbúnaði og líli fátækra
vinnustúlkna á þeim
tíma er sagan
...Erlendu
sjónvarps-
stöðvunum
sem í boði eru.
Fjölvarpið
býður t.d. upp
á CNN, BBC
Prime og
margar fleiri
áhugaverðar
stöðvar. Frétta-
skýringaþáttur-
inn Insight er í
boði á CNN og
er hann vel
unninn og ein-
staklega
áhugaverður
þáttur, þar sem
„heitt" frétta-
efni er rætt
fram og til
baka af mik
innsæi. JP'
...Heitum súpum í pokum til að taka
með í vinnuna núna í kuldanum. Þær eru
til í ýmsum bragðtegundum. Einn poki í
bollann og þú hefur hressandi drykk eða
smámáltíð sem gefur þér hita í kroppinn
á vetrardegi.
...Góðum kremum á húð-
ina þegar þú ferð út í kuld-
ann. Aldrei þurfum við eins
mikið á því að halda að
verja húðina eins og á vet-
urna. Gott krem í
andlitið, á hendurnar og
góðan varasalva á þurrar
varir. Láttu það eftir
þér, þú átt það skilið.
•aNH
... Því að hafa eitthvað app-
clsínugult eða sólgult í eld-
húsinu í skammdeginu. Það
gerir kraftavcrk á sálinni að
hafa bjarta liti í kringum sig
og skærir, hlýir
litir í eldhúsinu hafa sér-
staklega hvetjandi áhrif á
alla. - Dúkur,
ávaxtaskál (helst full af c-
vítamínríkum ávöxtum) eða
plastglös. Bara
eitthvað sem færir sólina
inn í tilveru þína.
Ekki missa af...
54 Vikan