Vikan - 01.02.1999, Blaðsíða 32
Marentza Poulsen með
fíngrafæði sem skemmtilegt
er að bjóða upp á í veislum.
Takið eftir fallegu rósa- og
vínberjaskreytingunni.
Eggjakrem með
reyktum laxi og
rauðum kavíar á
ristuðu brauði
10 ristaðar brauðsneiðar
Eggjakrem:
2-3 harðsoðin egg
(eftir stœrð)
3 msk. sýrður rjómi (18%)
2 tsk. dijon sinnep
smá sítrónusafi
salt
20 þunnar laxasneiðar
Til skrauts:
rauður kavíar
ferskt basilíkum
Aðferð:
Stingið út með glasi eða
stungujárni ( fæst m.a. í
Húsasmiðjunni) tvær snittur
úr hverri brauðsneið. Gróf-
saxið eggin og blandið þeim
saman við sýrða rjómann og
sinnepið. Bragðbætið með
salti og sítrónusafa. Smyrjið
eggjakreminu á brauðið.
Leggið laxasneiðina í hring
(sjá mynd). Setjið smá kaví-
ar í miðjuna og skreytið
með fersku basilíkum.
Pönnukök-
ur með
laxafyll-
ingu
Pönnukökur:
11/2 dl hveiti
1/4 tsk. salt
3 dl mjólk
2 egg
2 msk. smjör
Aðferð:
Blandið saman
hveiti og salti og
blandið helm-
ingnum af
mjólkinni sam-
an við. Hrærið
þar til deigið
verður kekkja-
laust. Bætið
eggjunum út í,
32 Vikan
einu í einu, og hrærið vel á
milli og á eftir. Bræðið
smjörið á pönnukökupönnu,
blandið því saman við deig-
hræruna og bætið því sem
eftir er af mjólkinni út í.
Bakið fallega gulbrúnar
pönnukökur. Kælið.
Fylling:
300 g reyktur lax
3-4 msk. sýrður
rjómi (18%)
1 stk. harðsoðið egg
salt og pipar
Aðferð:
Skerið laxinn í bita og
grófmaukið í matvinnsluvél
ásamt egginu. Hrærið svo
sýrða rjómanum saman við
og bragðbætið með salti og
pipar eftir smekk. Þá er
þessu smurt á kaldar pönnu-
kökurnar, hverja fyrir sig,
og þeim síðan rúllað þétt
upp. Þetta má gera degin-
um áður. Best er að ská-
skera þær kaldar í litla bita
(sjá mynd).
Fyllt sellerí
6 stk. sellerístönglar,
skornir í bita
Fylling:
1 stk. ostarúlla með
koniaki og hnetum (125 g)
300 g rjómaostur
cayenne pipar á hnífsoddi
1 msk. koníak (másleppa
og þynna kremið í stað-
inn með 1 msk. rjóma eða
sýrðum rjóma (18%)).
saxaðar heslihnetur
Aðferð:
Hrærið rjómaostinum
saman við koníaks- og
hnetuostinn. Bragðbætið
með cayenne piparnum og
þynnið með koníaki eða
rjóma. Kreminu er síðan
sprautað inn í selleríbitana.
Þetta má gera deginum áður
og geyma í góðum brauð-
kassa (fæst í Kassagerðinni).
Stráið söxuðum heslihnet-
um yfir fyllinguna rétt áður
en rétturinn er borinn fram.