Vikan


Vikan - 12.04.1999, Page 20

Vikan - 12.04.1999, Page 20
„Það má segja að ég hafi alveg söðl- að um. Ég var bú- Sölumaðurinn sem va inn að vera í sölu- mennsku og mark- aðsmálum alla tíð og hafði ágætis laun, en núna er ég orðinn heimavinn- andi og með kostn- að þar að auki“. Segir Sveinbjörn Pétursson, pólunar- meistari og húsfað- ir, sem auk þess að vera heima er í námi í hómópatísk- um fræðum við Practical School of Homoeopathy í Bretiandi. „Þetta hafði aldrei hvarflað að mér fyrr en ég varð fer- tugur. Þá gaf frænka mín, sem er hjúkrunarfræðingur og nuddari, mér gjafakort í meðferð hjá sér. Hún hafði lært í Boulder, Kali- forniu en þar eru alls kyns óhefð- bundnum lækn- ingaaðferðum gert hátt undir höfði og þær eru mjög al- gengar og sjálf- sagðar meðal al- mennings. / g mætti auðvitað og hélt ég væri að fara í nudd, en hún sagðist ætla bjóða mér upp á svolít- ið bland í poka, - nudd og pólun. Ég fór í nokkur skipti og fannst þetta mjög gott. Ég fann að ég var að kynnast einhverju alveg nýju. Ég átt- aði mig strax á því þarna hvað ég þurfti til þess að mér liði vel og hvað ég vildi gera. Stuttu seinna benti frænka mín mér á að það væri að hefjast nám í pólunarmeð- ferð hér á Islandi og ég dreif mig fyrir hennar áeggjan. Ég var eini karlmaðurinn í náminu og fékk þar af leið- andi á mig viðurnefnið „Prins póló“ Ég geng enn undir því nafni hjá konunum sem voru með mér þarna. Þetta nám hafði mikil áhrif á mig. Ég var alls ekki vanur að snerta fólk svona og mér var flökurt allan daginn af spennu, ég kunni þetta ekki, þetta var mér algerlega nýtt! Við vorum auðvitað í meðferð hjá hvert öðru í náminu og gengum í gegn- um þetta ferli tvisvar sinn- um á dag. Það var ótrúlegt hvað við breyttumst öll. Við breyttumst meira að segja í útliti og manni brá þegar maður leit í spegil. Ég fann vöðva og bein í líkamanum sem ég vissi ekki af. Það er ekkert skrýtið að maður breytist þegar verið er að vinna með orkuflæði líkam- ans, grunnorku manns sjálfs sem skiptir öllu máli að sé í lagi. Þarna er verið að koma jafnvægi á alla starfsemi lík- amans, jafnt andlega, líkam- lega og tilfinningalega og það hlýtur að hafa áhrif. Einstaklingar upplifa þessa meðferð þó á ólíkan hátt og taka henni misvel, en bótin kemur hjá öllum sem gefa þessu tíma og tækifæri. Það þarf yfirleitt 3 til 7 tíma áður en fólk fer að finna mun á sér, en allir upplifa djúpa afslöppun og verða meðvit- aðri um sjálfa sig og flestir fá endurbót á lífi sínu og heilsu við pólunina. Fljót- lega eftir þetta námskeið hætti ég að vinna utan heimilis. Það varð að sam- komulagi milli okkar hjón- anna að ég einbeitti mér að þessu. Áður var heimili okk- ar eins og flestra annarra. Við unnum bæði utan heim- ilisins og það var lítill tími til að sinna hvoru öðru. Við vorum alltaf á hlaupum og það var verið að koma seint heim og skella einhverju fljótlegu í pottana og allir voru dauðþreyttir. Ég man að sonur minn spurði þegar ég var nýhættur að vinna:,, Af hverju er pabbi heima?“ Þannig er að örugglega á fleiri heimilum að pabbinn er eiginlega aldrei heima og ef hann er það þá hlýtur að vera eitthvað að. Ég er núna eins og mömmurnar í hverfinu, fer á foreldrafundi og þess háttar. Síðastliðið rúmt hef ég verið heima á daginn, sé um þrifin, þvott- ana og matseldina og er hér til staðar fyrir börnin tvö á heimilinu, þau Magnús Inga 12 ára og Birgittu Rún 6 ára. Konan mín Guðrún rekur sitt eigið fyrirtæki, Bergís, og getur einbeitt sér að því og þarf ekki að hafa áhyggj- ur af heimilinu. Hún hvílist 20

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.