Vikan - 12.04.1999, Blaðsíða 26
Þú getur auðveld-
lega búið til þína
eigin heilsulind með
því að gera baðher-
FALLEG BAÐH
bergið þitt fallegt og
notalegt. Það þarf
ekki að vera kostn-
aðarsamt, það eina
sem þú þarft að
nota er hugmynda-
flugið, fallegir litir
og hlutir.
BAÐ(I)HERBERGI
Á þessari mynd sjáum við ekki hið dæmigerða flísalagða
baðherbergi. Það er engu líkara en baði og klósetti hafi
verið komið fyrir í notalegri stofu. Þetta baðherbergi er
skreytt fallegu, gömlu borði og kolli sem er yfirdekktur
með gamalli krosssaumsmynd. Á borðinu eru gamlar
fjölskyldumyndir og hlutir úr messing og á gólfinu er
þykkt, mynstrað ullarteppi. Innrammaðar teikningar af
börnunum á heimilinu prýða veggina og skeljasafn
skreytir hilluna fyrir ofan baðkerið. I þessu herbergi hafa
flísar verið notaðar á ákaflega hógværan hátt, meira til
þess eins að skreyta viðarpanelinn umhverfis baðið.
Það er í rauninni und-
arlegt hversu lítið
pláss arkitektarnir
ætla oft fyrir baðherbergi.
En jafnvel lítið baðherbergi
er það herbergi íbúðarinnar
þar sem best er að slaka á
eftir annríki dagsins. Þegar
þú liggur í heitu baðvatninu,
sem þú hefur auðvitað sett
ilmandi olíu út í, og fyllt
herbergið ilmkertum þá
finnur þú stress dagsins bók-
staflega líða í burtu. Hér
ætlum við að sýna ykkur
hvernig auðveldlega má
gera baðherbergið að einka-
himnaríki þar sem hægt er
að safna kröftum fyrir átök
næsta dags.