Vikan - 12.04.1999, Síða 27
FIMM EINFOLD RAÐ TIL ÞESS AÐ
GERA BAÐHERBERGIÐ FALLEGT
OG ÞÆGILEGT.
—
ERBERGI
5. Ekki spara fallega hiuti.
Það er fallegt að setja baðbursta, þvottapoka og sápur sam-
an í fallegar körfur og skálar. Einnig má setja sjampó og
fljótandi sápur í fallegar, gamaldags glerflöskur til þess að
láta þær líta út eins og spennandi ilmolíur í stað hversdags-
legra nauðsynja.
SNiÐUGAR GEYMSLULAUSNIR
Láttu hugmyndaflugið ráða þegar þú þarft að fá
þér nýjar geymsluhirslur í baðherbergið. Skápar,
hillur, borð, kistur og aðrir hlutir úr viði, sem í
raun og veru eru hannaðir með annars konar
herbergi í huga, geta ekki síður notið sín á bað-
herberginu og gefa því hlýlegt og virðulegt útlit.
I öllum baðherbergjum þurfa að vera opnar
hirslur þar sem hægt er að geyma fallega hluti,
svo sem handklæði og snyrtivörur í fallegum
umbúðum. Einnig er nauðsynlegt að hafa lokað-
ar hirslur fyrir lyf og aðra hluti sem verða að
vera óaðgengilegir börnum.
Það er fallegt að nota
gamlar hattaöskjur og
mynstruð blikkbox til þess
að geyma í smærri hluti,
svo sem sápur, krem,
snyrtivörur og hárvörur,
og fléttaðar körfur til þess
að geyma í upprúlluð
handklæði, stærri brúsa og
flöskur og jafnvel blöð og
bækur.
Vikan 27
1. Hafðu þægilegan stól í baðherberginu.
Það er bæði þægilegt og sniðugt að hafa fallegan stól á bað-
herberginu, eins og t.d. stólinn sem sýndur er hér á mynd-
inni. Auk þess er stólinn upplagður til þess að leggja á fötin
sem þú ætlar að klæðast þegar þú kemur upp úr baðinu. Ef
plássið er lítið er hægt að nota lítinn koll í sama tilgangi.
2. Falleg handklæði.
Ekki fela handklæðin inni í lokuðum skáp. Láttu þau liggja
frammi, sérstaklega ef þau eru litrík og falleg eins og þau
sem sýnd eru hér á myndinni. Handklæðin setja mjúkan og
fallegan svip á baðherbergið, hvort heldur sem þau liggja
kæruleysislega yfir stólbaki eða hengd upp á snaga. Einnig
er fallegt að rúlla handklæðunum upp og raða þeim í fallega
körfu.
3. Skreyttu veggina.
Það er ein góð regla sem hafa ber í huga þegar valdar eru
myndir á baðherbergisveggina. Þær eiga að láta þér líða vel
og koma þér í gott skap. Þú getur notað landslagsmyndir,
blómamyndir eða gamlar ljósmyndir. Þumalputtareglan er
sú að þú getur hengt á veggi baðherbergisins allt það sem
þú myndir hengja upp í öðrum herbergjum hússins. Það er
sniðugt að draga fram einn lit og nota hann í myndaramma
og gólfmottur.
4. Skreyttu með blómum.
Jafnvel þótt þú hafir ekki nema nokkurra sentímetra hillu-
pláss skaltu reyna að koma fyrir afskornum blómum og lif-
andi plöntum í baðherberginu. Blómin bera fegurð náttúr-
unnar inn í herbergið og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af
því að þau þrífist ekki. Flestar plöntur elska rakann sem til-
heyrir baðherberginu.
ÁiiSKfr ■