Vikan - 12.04.1999, Síða 29
m
Til að koma okkur út úr
skuldunum ákvað mað-
urinn minn að þiggja
vel launaða en erf- |
iða vinnu erlendis í f
sex mánuði. Fá-
einum dögum
eftir að hann
fór kom til mín
tilkynning í
pósti um að
líftryggingin,
sem hann
hafði sótt
um, hefði
verið sam-
þykkt og
meðfylgj-
andi var
gíróseðill
fyrir fyrsta
iðgjaldi.
Þetta kom
mér ákaf-
lega á óvart
því við vorum
með hjónalíf-
tryggingu sem
ég vissi ekki
annað en væri í
gildi. Ég hringdi í
tryggingafélagið og
komst að því að
hann hafði sagt upp
þeirri tryggingu og tekið
aðra hærri í nafni systur
sinnar og föður. Ég reiddist,
hringdi í mágkonu mína og
spurði hverju þetta sætti.
Hún svaraði því til að ef
eitthvað kæmi fyrir hann
gæti fjölskyldan ekki treyst
því að ég borgaði skuldirnar
og þetta væri þeirra aðferð
til að tryggja sig. Ég spurði
hvort hún hefði enga sam-
visku gagnvart því að með
þessu væri hann í raun búin
að gera börnin sín og mig,
lögerfingja sína, arflausa og
bjargarlausa ef hann félli
frá. Þá var mér tilkynnt að
ég gæti treyst henni til að sjá
fyrir börnunum mínum. Ég
„Ekki datt mer í hug
á brúðkaupsdaginn að
tengdafjölskyldan
mundi hafna mér.“
var
ekki
sammála.
Ótal fleiri
minni atvik sitja enn í mér
og valda sárindum í hvert
sinn sem ég rifja þau upp.
Við hjónin skildum skömmu
eftir að hann kom að utan
og undanlátssemi hans við
systur sína á minn kostnað
átti mikinn þátt í hvernig
fór. Ég gat ekki fyrirgefið að
fullu þessa niðurlægingu.
Hún varð fyrst til að óska
manninum mínum til ham-
mgju
með að
vera laus við mig
og mér tilkynnti hún að ég
hefði kúgað manninn og
kvalið árum saman. Hann
fór utan aftur til að vinna
skömmu eftir skilnaðinn og
gaf systur sinni umboð til að
sjá um fjármál sín. Tvisvar
kom hún í veg fyrir að mér
væri greidd framfærsla sem
ég átti rétt á samkvæmt
skilnaðarsamningi og varð
ég að fá senda sérstaka stað-
festingu frá honum um að
víst ætti að greiða þessa
peninga. Ég átti
stórafmæli á þessu
tímabili og hann
var búinn að gefa
elsta syni okkar
fyrirmæli um að
nálgast
ákveðna upp-
hæð í bank-
anum til að
kaupa
handa mér
afmælisgjöf
frá börnun-
um en
systirin
bannaði út-
tektina.
Aftur þurfti
skeyti frá
honum í
bankann og
afmælisgjöfin
kom
nokkrum dög-
um of seint.
Ánægja mín af
henni var engin
eftir allt sem á
undan var gengið.
Ég er ekki langrækin
manneskja og ég óska
mágkonu minni einskis
ills en framkoma hennar
hefur sannfært mig um að
sumt er einfaldlega ekki
hægt að fyrirgefa.“
Steinarsdóttur
sogu sina Vilt þú deiia sögu þinni með okkur? Er eitthvað vr.:
sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þínu? Þér er velkomið að
skrifa eða hringja til okk- 1
ar. Við gætum fyllstu nafnleyndar.
HcimilisfnngiO er: Vikan - „Lífsrcynslusaga", Seljavegur 2,
101 Rcykjavík, Netfang: vikan@frodi.is J
Vikan 29