Vikan - 12.04.1999, Side 50
Smásaga
Gerið það fyrir mig að
hætta að rífast, heyrðist frá
hálfsystur þeirra. Ég þoli ekki
rifrildi og sérstaklega ekki
undir þessum kringumstæð-
um. Aftur þurrkaði hún sér
um augun með bleika vasa-
klútnum.
Joachim Vinger virti hana
fyrir sér glottandi.
Mér þykir leitt að segja það
Bente, en nú líkist þú konunni
sem þú lékst síðast á sviði. Pú
hefur víst ekki fengið nein til-
boð eftir þá frammistöðu?
Vel máluð augu Bente Vin-
ger Dale skutu gneistum. Hún
hallaði sér aftur í sófanum,
kveikti sér í sígarettu og virti
bróður sinn fyrir sér.
Eitt veit ég, kæri Joachim,
að ég leik hlutverk min betur
en þú málar þessi málverk þín.
Nú er nóg komið, sagði Ar-
ild Vinger ákveðinn. Við skul-
um frekar tala um hvernig við
eigum að haga málum okkar
varðandi þetta undarlega upp-
átæki föður okkar. Við lítum á
það sem lélegan brandara en
e.t.v. var honum alvara. Hann
horfði á þau til skiptis. Pabbi
var nú aldrei neinn venjulegur
maður og það er m.a. ástæða
þess hvað hann var alla tíð
frábær leikstjóri, sagði hann.
En eins og þið vitið þá breytist
fólk með árunum. Ég tel mig
ekki fara með neinar ýkjur
þegar ég segi að hann hafi ver-
ið svolítið undarlegur síðustu
árin sem hann lifði. Og hann
neitaði að setjast í helgan
stein. Hann hafði jú efni á að
halda áfram að framleiða
kvikmyndir og ein þeirra er sú
sem við erum að horfa á hér í
kvöld.
Þau hin kinkuðu kolli.
Mér finnst þetta furðulegt
uppátæki. Ekkert okkar var í
nánu sambandi við pabba.
Hann var alltaf of upptekinn
við að skapa meistaraverk.
Það getur verið að hann hafi
iðrast þess og sá möguleiki er
einnig fyrir hendi að hann hafi
verið haldinn ofsóknaræði síð-
ustu árin.
Hann þagnaði og horfði á
hálfsystkini sín.
Ekkert okkar var látið vita
af dauða hans fyrr en þessi ná-
ungi, Graff, sendi okkur ljósrit
af andlátsfréttinni fyrir mán-
uði síðan, sagði hann rólega.
Eins og við vitum fór útförin
fór fram í kyrrþey. Nú hefur
Graff kallað okkur á sinn fund
og á vissan hátt hefur pabbi
einnig kallað okkur á sinn
fund. Með því hefur hann sýnt
okkur heiður þrátt fyrir þessa
furðulegu ásökun. Sjálfur hef
ég aldrei óskað pabba dauða
og ég get ekki ímyndað mér
að nokkurt ykkar hafi gert
það heldur.
Þessi orð eru eins og töluð
úr mínum munni, sagði Bente
Vinger Dale.
Já, ég ætlaði einmitt að
segja það sama, heyrðist í
Joachim Vinger. Okkur þótti
vænt um hann, við vorum öll
stolt af honum og það var
leiðinlegt að við fengum aldrei
tækifæri til þess að kynnast
honum neitt að ráði. En nú
erum við hér og við erum erf-
ingjar hans. A.m.k. tveir
þriðju hlutar eigna hans renna
til okkar.
E.t.v. fannst honum ekki
neitt til okkar koma, hélt hann
áfram hugsi á svip. Kannski
fannst honum miður að þurfa
að láta okkur horfa á þessa
undarlegu mynd. Við skulum
halda ró okkar. Við skulum
einfaldlega horfa á myndina
sem síðasta meistaraverk
hans. Við vitum að ekkert
okkar hefði látið sér til hugar
koma að myrða hann.
Nú talar þú eins og skyn-
samur maður Joachim, sagði
Bente Vinger Dale. Ég kann
óneitanlega betur við það.
Ráðskonan kom inn og
benti á dúkað borðið sem stóð
við arininn.
Gjörið þið svo vel.
Carl Vinger leit út fyrir að
vera úthvíldur og afslappaður.
Hann fékk sér stóra sneið af
marsípantertunni. Við og við
lyfti hann líkjörsglasinu og
skálaði.
í fyrstu talaði hann um dag-
inn og veginn en allt í einu
sagði hann með þrumuraust.
Kæru börn. Ég er viss um
að þið áttuð uppbyggilegar
samræður eftir matinn. Enn-
fremur er ég viss um að það
ykkar sem myrti mig gaf það
ekki á nokkurn hátt til kynna
eða kom upp um sig. Það
undrar mig ekki. En nú vil ég
vekja athygli ykkar á hlutnum
sem stendur á miðju borðinu.
Ég skal veðja við ykkur að þið
kannist við hann.
Erfingjarnir þrír litu á fal-
legu krukkuna sem stóð á
borðinu milli tveggja blóma-
vasa. Guð minn góður, þetta
er askan, sagði Bente Vinger
Dale skjálfandi röddu. Ég þoli
þetta ekki...
Einmitt, þetta er askan,
kom eins og bergmál frá Carli
Vinger. Þetta eru jarðneskar
leifar mínar. Eins og þið vitið
vil ég að aska mín verði grafin
hér á Carlsbo.
Arild Vinger var eldrauður í
andliti. Joachim Vinger var
sveittur á enninu.
Nú er nóg komið, tautaði
hann og starði á systkini sín
fjarlægu augnaráði.
Og nú, hélt Carl Vinger
áfram, er orðið tímabært að
þið fáið að vita hvernig dauða
minn bar að höndum. Graff,
ég gef þér orðið.
Lögmaðurinn, sem sat með
þeim við kaffiborðið, tók bréf
úr töskunni sinni og hóf lest-
urinn:
Hinn látni fannst 26. júlí
1989, í vatninu við landareign
sína að Carlsbo. Dánarorsökin
var drukknun. Það fundust sár
á enni hins látna. Það virðist
sem hann hafi látist af slysför-
um, að hann hafi stungið sér
af bakkanum í grunnt vatnið
og skollið með höfuðið á
stein. Höfuðmeiðslin eru í
sjálfu sér ekki banvæn en or-
sökuðu meðvitundarleysi og
því drukknaði hann.
Graff stakk bréfinu aftur í
töskuna og starði á skjáinn.
Carl Vinger þagði stutta
stund. Síðan sagði hann:
Já, svona bar dauða minn
að höndum. Þið skuluð ekki
halda að ég hafi dáið eðlileg-
um dauðdaga. Ef svo væri þá
væruð þið ekki hér til þess að
svara til saka.
En nú ætla ég að sýna ykkur
ósviknar myndir af síðasta
þætti þessarar harmsögu. Og
ef þið furðið ykkur á því
hvernig og hvers vegna þessar
myndir voru teknar, vil ég
upplýsa hér og nú að ég gerði
samning við einn besta og
tryggasta kvikmyndatöku-
manninn minn. Ef eitthvað
kæmi fyrir mig átti strax að
láta hann vita þannig að hann
gæti komið og tekið þær
myndir sem nauðsynlegt var
að taka. Nú skulum við horfa
á það sem fyrir augu hans bar.
Okunn mannsrödd útskýrði
það sem sást á myndunum.
Fyrst komu myndir af land-
areigninni, teknar úr fjarlægð.
Því næst komu nærmyndir af
hópi fólks sem stóð við vatnið
Aðrar nærmyndir sýndu
Carl Vinger, íklæddan sund-
skýlu einni saman, liggjandi á
börum með dauðasvip á and-
litinu, grátt úfið hár og ljótt,
eldrautt sár á enninu.
Aumingja pabbi...
Bente Vinger Dale var með
grátstafinn í kverkunum. Hún
snökti og faldi andlitið í hönd-
um sér. Arild Vinger hélt fyrir
munninn og kúgaðist eins og
hann væri að því kominn að
kasta upp. Joachim Vinger var
náfölur og leit allt í einu út
fyrir að hafa elst um tíu ár.
Nei, sagði hann, það getur
ekki verið.
Hálfbróðir hans leit á hann
grunsemdaraugum.
Hvað getur ekki verið,
spurði hann.
Að hann hafði dáið eðlileg-
um dauðdaga. Pabbi stakk sér
aldrei af vatnsbakkanum.
Munið þið það ekki?
Rödd Carl Vinger rauf
þögnina. Nú er tími til kominn
að hinn seki gefi sig fram. Ef
50 Vikan