Vikan - 07.06.1999, Blaðsíða 49
Stigatafla
1. a-2 b-0 c-1
2. a-1 b-2 c-0
3. a-1 b-0 c-2
4. a-2 b-0 c-1
5. a-1 b-2 c-0
6. a-2 b-0 c-1
7. a-0 b-1 c-2
8. a-2 b-1 c-0
9. a-1 b-0 c-2
10. a-1 b-0 c-2
16 stig cða hærra
Hrokafull prinsessa
Þótt sjálf'strausl sc aðals-
merki hverrar þeirrar mann-
eskju sent lifir í sátt við
sjálfa sig er þitt risavaxna
„egó" á stærð við t'relsis-
styttuna. Þú varst sennilega
litla dekurdúkkan þeirra
pabba og mömmu og senni-
lega hel'ur enginn haft fyrir
að gagnrýna þig eða leið-
beina. Afleiðingin er sú að
þú erl einfaldlega hrokafull
og yfir þig hrifin af sjálfri
þér. Það kann að hljóma
kaldhæðnislega en hið l'ull-
komna yfirbragð, sem þú
sýnir heiminum. er oft að-
eins gríma til að hylja afsak-
anlega galla þína. Þú ert
dauðhrædd við að horfast í
augu við að undir yfirborð-
inu ertu jafn viðkvæm og
kvíðin og hver annar.
Reyndu að hcmja gyðjuna á
stalli sínum með því að leyfa
öðrum að njóta sín þótt þú
sért nálægt. Bentu á hvcrsu
vel vinir þínir og samslarfs-
menn standa sig eða hvetlu
þá til að gera sitt besta.
Líttu svo á að hver einasta
óeigingjörn setning eða
gjörð sé skref í átt lil betra
lífs. Brátl muntu átta þig á
að það er ekki bara gott að
vera hrósað heldur einnig
ánægjulegt aö hrósa öðrum.
8-15 stig
Anægð og jákvæð
persóna
Þú ert ánægð með sjálfa
þig og lelur að þú sért bara
ágæt eins og þú ert. Fólki
líkar einfaldlega við þig þess
vegna. Þú hefur lært að
þekkja sjálfa þig scm per-
sónu og hefur sætt þig við
takmarkanir þínar og galla.
Þar með er ekki sagt að þú
verðir aldrei fyrir vonbrigð-
um en sú sálarró sem þú
hel'ur náð hjálpar þér að
komast yfir allar hindranir.
Manneskja sem er sátt viö
sjálfa sig sýnir það best með
aðlögunarhæfni sinni. Sátt
ntanneskja veit hverjir kostir
hennar eru og nýtir sér þá.
Hún er umburðarlynd gagn-
vart sjálfri sér og öðrum. Ef
hún nær ekki takmarki sínu í
dag veil hún að á morgun er
annar dagur og önnur mark-
mið til að keppa að munu
koma í Ijós.
7 stig cða minna
Sjálfshatursfullur
vesalingur
Snákur í hamskiptum er
ánægðari með útlit sitt en þú.
Að velta stöðugt fyrir sér við-
brögðum og hugsunum ann-
arra er þitt eðli og ætti ekki
að koma á óvart því þú ert
alls ekki viss um hver þú ert,
hvað þú vill eða hvað þú met-
ur mest. Allir misstíga sig af
og til en þú stígur aldrei ör-
uggunt fótum lil jarðar og
hrasirðu magnar þú atvikið
upp þar til að það líkist jarð-
skjálfta, að styrkleika 7 á
Richter. Fleslir sem eru fullir
sjálfshaturs áttu foreldra sem
voru mjög gagnrýnir eða
veiltu þeim lítinn stuðning.
Fyrsta skrefið til jákvæðari
sjálfsímyndar er að reyna að
umgangast sem oftast þá sem
meta þig að verðleikum og
þykir vænt um þig. Gott ráð
er einnig að hafa yfir með
sjálfum sér styrkjandi möntr-
ur (setningar sem hugleiðslu-
fólk o.fl. söngla fyrir sjálfa
sig) sem tíunda kosti þína og
reyna þannig að þagga niður
röddina sem stöðugl gerir líl-
ið úr þér og bendir á gallana.
Ef þú ýtir frá þér stöðugri
sjálfsgagnrýni og leitar já-
kvæðari lífsviðhorfa, ættir þú
að verða ánægðari og ánægð-
ari með lífið eftir því sem þú
kemst lcngra á nýrri braut.
49