Vikan - 07.06.1999, Blaðsíða 59
Texti: Hrund Hauksdóttir
Tær í toppformi!
Andleg og líkamleg líðan end-
urspeglast oft í ástandi fóta
okkar. Pegar þeir eru
þreyttir eða aumir hafa þeir slæm áhrif á
göngulag okkar. Við stólum á að fæturnir
beri okkur fjórum til fimm sinnum vega-
lengdina í kringum hnöttinn á ævi-
skeiði okkar svo það gefur auga leið
að nauðsynlegt er að halda þeim í
góðu ásigkomulagi.
Vel snyrtir og hirtir fætur skapa sér-
lega vellíðan. Pað er mjög gott að
fara reglulega á snyrtistofu til að sinna
fótunum en það er líka ýmislegt sem hægt
er að gera heima án mikillar fyrirhafnar
og vissulega er það ódýrara.
Fótadekur
• Notaðu nokkra dropa af góðri olíu
(t.d. ólífuolíu) til þess að nudda fætur
og tær. Ymsar nuddolíutegundir fást
nú víða og mælum við sérstaklega
með myntu- eða lavendilolíum til að
lina þrautir og þreytu í fótum. Kam-
fóra eykur líka blóðstreymið.
• Settu einn bolla af þurrmjólk út í
volgt vatn, blandaðu henni vel saman
við vatnið og láttu fæturna vera í
þessu baði í tíu mínútur. Þetta er
mýkjandi fyrir húðina.
• Fáðu þér litla úðaflösku með fersku
vatni, bættu út í hana nokkrum drop-
um af uppáhaldsolíunni þinni og
kældu hana í ísskápnum. Tilvalið að
nota á heitum sumar-
degi til að kæla sig og
mýkja húðina um leið.
Gott að hafa í huga í
sólarlöndum.
Fótsnyrting heima
Þetta þarftu í fótsnyrtinguna: þjöl fyrir neglur, bóm-
ull, naglalakkseyði, naglaklippur eða skæri, olíu,
naglabandahreinsi, skrúbbkrem fyrir fætur, vaska-
fat, handklæði, grunnlakk, naglalakk og yfirlakk.
Hreinsaðu táneglurnar vandlega. Notaðu bóniull eða
eyrnapinna til að hreinsa undir hverri nögl. Bleyttu bómull-
ina með naglalakkseyði og hreinsaðu varlega af hverja ögn
af gömlu lakki, þrýstu bómullarhnoðranum að hverri nögl í
nokkrar sekúndur svo að allt lakk leysist vel upp.
Notaðu naglaklippur eða
þægileg skæri til að klippa
neglurnar þvert fyrir og ekki
lengra en að tábroddinum.
Notaðu grófari hluta þjalar-
innar til að móta hliðarnar
ef þörf krefur. Varastu að raspa of
mikið með þjölinni því það veikir
mótstöðu og styrkleika naglarinnar.
Nuddaðu naglabandaeyði á naglaböndin, settu
eina lúku af grófu baðsalti eða olíu út í fótabaðið
og hafðu fæturna í því í fimm til tíu mínútur. Það
er alls ekki síðra að notast bara við sjávarsalt.
Notaðu tímann á meðan á baðinu stendur til að
hlusta á góða tónlist, nudda andlit þitt eða lesa
Vikuna! Þurrkaðu síðan fæturna vel.
Næsta skref er að nota
skrúbbkremið og nudd-
aðu því í hringi á húðina.
Yttu naglaböndunum
niður að rót naglanna.
Hreinsaðu síðan
skrúbbkremið af og
dýfðu fótunum í kalt
vatn í 30 sekúndur, það
örvar blóðrásina. Þurrk-
aðu vel.
Nú er komið að Iökkuninni. Þess verður að gæta að neglurnar
séu þurrar og hreinar og rennið nú yíir þær með bómull vættri í
naglalakkseyði. Settu grunnlakk fyrst og síðan tvær umferðir
af uppáhaldsnaglalakkinu þínu. Lakkaðu ekki ofan í nagla-
bandasvæðið, hafðu hárfínt bil á milli. Ljúktu síðan fótsnyrt-
ingunni með því að setja yfirlakk sem heldur lakkinu lengur og
varnar því að upp úr því kvarnist.
Vikan 59